Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 31
VÆNTANLEGIR Í MARS!
ÞJARKURINN - SK252D G2700 HD+
G1200 HD
G1200 er nett vél en öflug sem er einstaklega hentug við þröngar
aðstæður.
Vélin er til sýnis í Joserabúðinni í Kópavogi - Ögurhvarfi 2
Grunnútfærsla G1200
- 25hö kubota D902 diesel
- Mesta lyftigeta 1.000 kg
- Aukinn keyrsluhraði 19km/h
- Hámarks lyftihæð með skóflu 2,2 metrar
- Þriðja og fjórða svið
- Akstursljós
- Dekk: 24x13-12
- Vökvalás
- 70 kg þyngingar
- Dráttarkrókur
Verð: 3.990.000 kr. + vsk.
FRÉTTIR
Samstarfsnefnd um sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps:
Kosið verði um sameiningu í lok mars
Samstarfsnefnd um sameiningu
Langanesbyggðar og Svalbarðs
hrepps leggur til að íbúar þessara
tveggja sveitarfélaga fái tækifæri til
að kjósa um sameiningu þeirra 26.
mars næstkomandi. Sveitarstjórnir
þeirra beggja samþykktu í des
ember á liðnu ári að stofna
samstarfsnefnd um samein ing una.
Formaður hennar er Þorsteinn
Ægir Egilsson og Sigurður Þór
Guðmundsson varaformaður. Fram
hafa farið opnir samráðsfundir við
íbúa.
Sveitarfélögin hafa átt í farsælu
samstarfi um langa hríð og er það
mat nefndarinnar, að því er fram
kemur í tilkynningu að sameining
geti skapað tækifæri til skilvirkari
stjórnsýslu og þjónustu auk þess sem
tækifæri sé til frekari atvinnuþróunar
og nýsköpunar.
Sterkur fjárhagur
Vísbendingar séu um að fjárhagur
sameinaðs sveitarfélags verði sterkur
og fjárfestingargeta meiri en hjá
hvoru sveitarfélagi um sig, ekki síst
með um 548 milljón króna áætluðu
sameiningarframlagi úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Samstarfsnefndin leggur til
að í stjórnskipulagi sameinaðs
sveitarfélags verði nefnd sem
fjalli sérstaklega um hagsmuni
dreifbýlisins og landbúnaðarmál. Á
þann hátt verði komið til móts við
áhyggjur íbúa í dreifbýli af því að
missa áhrif á ákvarðanatöku.
Haldið utan um jarðeignir
Samstarfsnefnd tekur undir
ábendingar íbúa um að nauðsynlegt
sé að halda sérstaklega utan um
jarðeignir sveitarfélaganna og nýta
tekjur af þeim til að skapa tækifæri
til styrkingar mannlífs, byggðar og
atvinnutækifæra. Nefndin leggur til
að stofnaður verði sérstakur sjóður í
þeim tilgangi og hefur unnið tillögu
að samþykktum fyrir slíkan sjóð.
/MÞÞ
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
GRUNDARGATA 45, 350 GRUNDARFJÖRÐUR.
EFRI HÆÐ Í TVÍBÝLI.
Ríkiskaup kynna 113,4 m2 íbúð á efri hæð í steinsteyptu
tvíbýlishúsi byggðu árið 1963. Íbúðin er með sér inngangi og
skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi og
baðherbergi. Þá er geymsluloft yfir íbúðinni og geymsla undir
útitröppum. Svalir eru út af stofu.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is
Verð: 10,9 mkr.
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
LAMBHELDU
HLIÐGRINDURNAR KOMNAR
Áfram hagstætt verð þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaði
Lægsta verð 24.900 auk vsk ef keyptar eru fimm grindur eða fleiri
Lamasett og loka aðeins kr. 3.900 settið, auk vsk.
Breidd 420 cm. Hæð 110 cm. Möskvastærð 10 x 15 cm.
Verðskrá hliðgrindur: 1 stk. kr. 29.900 auk vsk.
2-4 stk. kr. 27.900 auk vsk.
5 stk. eða fleiri 24.900 auk vsk.
Upplýsingar og pantanir í síma 669 1336 og 899 1776.
Afgreitt á Hvolsvelli og í Sundahöfn án aukakostnaðar. Sent hvert á land sem er.
Meira fyrir aurinn
L mbheldu hliðgrindurnar
Þessar hliðgrindur hafa slegið í gegn um land allt. Lambheldar, léttar og auðveldar
í uppsetningu.
Breidd 4.20 m, hæð 1.10 m. Möskvastærð 10x15.
Verð á grind kr. 24.90 stk. auk vsk.
Ef keypt eru 2 til 4 stk., verð kr. 22.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 5 eða fleiri, verð kr. 19.900 stk. auk vsk.
Til afhendingar á Hvolsvelli eða í Sundahöfn án aukakostnaðar
en sent hvert á land sem er.
Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 1336.
Smáauglýsingar
56-30-300
Tjörneshreppur:
Varmadælur settar
upp á hverju heimili
Tjörneshreppur hefur undanfarin
misseri staðið í húshitunarátaki í
hreppnum en líkt og gildir víða á
landsbyggðinni er ekki aðgengi
að hitaveitu þar nema að mjög
litlu leyti.
Aðalsteinn J. Halldórsson,
oddviti Tjörneshrepps, segir að
ákveðið hafi verið að bjóða íbúum
hreppsins upp á kaup og uppsetningu
á varmadælum sem koma í stað
upphitunar með hefðbundnum
þilofnum eða vatnshitakerfi í
gengum hitatúbu.
Tjörneshreppur greiddi fyrir kaup
á bæði búnaði og uppsetningu hans
í hverju húsi í hreppnum og segir
Aðalsteinn að kostnaður íbúanna
sjálfra hafi verið óverulegur.
Hreppurinn naut liðsinnis frá
fyrirtækinu Hagvarma ehf. sem
reyndist ómetanlegur stuðningur
að sögn oddvita. Hagvarmi er
ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig
meðal annars í varmadælulausnum
og annarri húshitun.
„Við vorum líka svo lánsöm
hér að einn íbúanna, Aðalsteinn
Guðmundsson á Kvíslarhóli, tók að
sér að vinna stóran hluta verklega
þáttarins við þessa uppsetningu og
reyndist það mikill happafengur fyrir
hreppinn og framgang verkefnisins,“
segir Aðalsteinn.
Alls eru 13 heimili og eitt
félagsheimili í hreppnum sem tengd
verða í fyrsta og stærsta hluta þessa
áfanga í verkefninu, en áætluð verklok
eru í febrúar næstkomandi. „Seinni
áfangar þessa húshitunarverkefnis
eru minni í sniðum og verkið því
langt komið. Fyrstu dælurnar voru
tengdar snemma í fyrrasumar og
fyrstu mælingar á orkunotkun þeirra
heimila lofa mjög góðu,“ segir
Aðalsteinn. /MÞÞ