Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 25 UTAN ÚR HEIMI Svipir sviðsins Tilhugsunin um reimleika hefur gjarnan loðað við gömul leikhús enda vart hægt að finna meira viðeigandi stað þar sem alls kyns verur vakna til lífsins. Hér koma nokkur þeirra leikhúsa sem eru þekkt fyrir draugagang og væri gaman að heimsækja og sannreyna gildi þeirra sagna. Dramatík Henry Jewett Boston University Leikhúsið í Boston, Massachusetts, Banda-ríkjunum opnaði árið 1923. Þar segja sögur að megi finna afturgöngu Henry Jewett nokkurs, ástrals leikara sem stjórnaði hóp kollega sinna og sá fyrir sér hina ýmsu leiksigra á sviðinu. Ekki fór betur en svo að leikhúsinu var, um 1930, breytt í kvikmyndahús enda höfðu kvikmyndir vinninginn hjá almenningi á þeim tíma. Henry Jewett hengdi sig í mótmælaskyni, enda dramatískur að hætti margra þeirra sem eru á sviði – hengdi sig reyndar undir sviðinu og hefur hrekkt gesti hússins síðan. Honum barst liðsauki ekki löngu seinna, en þá fyrirfór búningastúlkan sér og svífur, síðan þá, um í setustofunni. Grafreitur harmkvælanna Óperuhúsið Huguan Huiguan í Beijing, Kína hefur staðið plikt sína síðan árið 1807 og má nærri geta að þar kenni ýmissa óútskýrðra hluta. Til dæmis segir sagan að í seinni heimstyrjöldinni hafi einhver fullur hjartagæsku tekið þá ákvörðun að byggja húsnæði ætlað þeim efnaminni í grenndinni – og í þeim hamagangi jafnað gamlan grafreit við jörðu sem stóð við óperuhúsið. Það varð auðvitað til þess að grafarró þeirra dauðu var allillilega raskað og má heyra kveinstafi þeirra og harmavæl ef gengið er út á lóðina – nú ef fólk tekur sig til og kastar þar steinvölum heyrist draugaleg rödd æpa að því skuli hætta. New York - Olive Thomas New Amsterdam Leikhús New York borgar opnaði dyr sínar árið 1903 en saga þeirrar ólánsömu stúlku er hrellir gesti þar mætti líkja við hinu leikrænustu tragedíu sem hægt væri að setja á svið. Stúlkan, Olive Thomas að nafni kom til Manhattan sextán ára gömul, varð meðlimur hinna vinsælu Ziegfeld Follies auk þess að hljóta titilinn Fegursta stúlka New York. Frægðin bar hana þó ofurliði með þeim afleiðingum að hún tók líf sitt árið 1920, þá 25 ára gömul. Olive Thomas sem endaði lífdaga sína með því að gleypa kvikasilfurstöflur í miklu magni. Ekki löngu eftir dauða hennar mátti sjá henni bregða fyrir með pilluglasið sitt í hendinni og herjar hún helst á unga menn. Starfsmenn leikhússins hafa þó að venju, enn þann dag í dag, að bjóða mynd af henni er hangir baksviðs góðan daginn – og svo góða nótt er húsinu er lokað. Gráklæddi maðurinn Elsta leikhús Lundúnaborgar, Theatre Royal Drury Lane (í daglegu kallað Drury Lane eftir götunni í Covent Garden) hefur verið starfrækt síðan árið 1663 þó byggingin eins og hana má sjá í dag er síðan árið 1812. Þar sem þetta er, eins og áður sagði, elsta leikhús Lundúna er eðlilegt að þar megi finna allrahanda yfirnáttúrleg fyrirbæri. Frægast þeirra er vera sem kölluð er „Gráklæddi maðurinn“ en hann ber gjarnan þríhyrndan hatt þó klæðnaður hans að öðru leyti fylgi tísku 18.aldar. Gráklæddi maðurinn situr vanalega á efri svölum og ef eftir honum er tekið, þykir hann merki um velgengni sýningar. /SP Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is VETRARBÚNAÐUR Salt- og sanddreifarar. Amerísk gæðatæki sem endast. Kemur næst út 10. febrúar PORTABLE generatori INDUSTRIAL generatoriHVAÐ TEKUR VIÐ EF RAFMAGNIÐ FER? VARAAFLSTÖÐVAR SEM SNIÐNAR ERU AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM TAKA VIÐ EF RAFMAGNIÐ FER SVO STARFSEMIN GETUR HALDIÐ ÁFRAM ÓBREYTT. KÍKTU Í VEFVERSLUN OKKAR Á DYNJANDI.IS TIL AÐ SJÁ MÖGULEIKANA EÐA HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ STARFS- FÓLKINU OKKAR. Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.