Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 25
UTAN ÚR HEIMI
Svipir sviðsins
Tilhugsunin um reimleika hefur
gjarnan loðað við gömul leikhús
enda vart hægt að finna meira
viðeigandi stað þar sem alls kyns
verur vakna til lífsins.
Hér koma nokkur þeirra leikhúsa
sem eru þekkt fyrir draugagang
og væri gaman að heimsækja og
sannreyna gildi þeirra sagna.
Dramatík Henry Jewett
Boston University Leikhúsið í Boston,
Massachusetts, Banda-ríkjunum
opnaði árið 1923. Þar segja sögur að
megi finna afturgöngu Henry Jewett
nokkurs, ástrals leikara sem stjórnaði
hóp kollega sinna og sá fyrir sér hina
ýmsu leiksigra á sviðinu. Ekki fór
betur en svo að leikhúsinu var, um
1930, breytt í kvikmyndahús enda
höfðu kvikmyndir vinninginn hjá
almenningi á þeim tíma. Henry Jewett
hengdi sig í mótmælaskyni, enda
dramatískur að hætti margra þeirra
sem eru á sviði – hengdi sig reyndar
undir sviðinu og hefur hrekkt gesti
hússins síðan. Honum barst liðsauki
ekki löngu seinna, en þá fyrirfór
búningastúlkan sér og svífur, síðan
þá, um í setustofunni.
Grafreitur harmkvælanna
Óperuhúsið Huguan Huiguan í
Beijing, Kína hefur staðið plikt sína
síðan árið 1807 og má nærri geta að
þar kenni ýmissa óútskýrðra hluta.
Til dæmis segir sagan að í seinni
heimstyrjöldinni hafi einhver fullur
hjartagæsku tekið þá ákvörðun að
byggja húsnæði ætlað þeim efnaminni
í grenndinni – og í þeim hamagangi
jafnað gamlan grafreit við jörðu sem
stóð við óperuhúsið.
Það varð auðvitað til þess að
grafarró þeirra dauðu var allillilega
raskað og má heyra kveinstafi þeirra
og harmavæl ef gengið er út á lóðina
– nú ef fólk tekur sig til og kastar þar
steinvölum heyrist draugaleg rödd
æpa að því skuli hætta.
New York - Olive Thomas
New Amsterdam Leikhús New York
borgar opnaði dyr sínar árið 1903
en saga þeirrar ólánsömu stúlku er
hrellir gesti þar mætti líkja við hinu
leikrænustu tragedíu sem hægt væri
að setja á svið.
Stúlkan, Olive Thomas að nafni
kom til Manhattan sextán ára gömul,
varð meðlimur hinna vinsælu
Ziegfeld Follies auk þess að hljóta
titilinn Fegursta stúlka New York.
Frægðin bar hana þó ofurliði með
þeim afleiðingum að hún tók líf sitt
árið 1920, þá 25 ára gömul. Olive
Thomas sem endaði lífdaga sína
með því að gleypa kvikasilfurstöflur
í miklu magni. Ekki löngu eftir
dauða hennar mátti sjá henni bregða
fyrir með pilluglasið sitt í hendinni
og herjar hún helst á unga menn.
Starfsmenn leikhússins hafa þó að
venju, enn þann dag í dag, að bjóða
mynd af henni er hangir baksviðs
góðan daginn – og svo góða nótt er
húsinu er lokað.
Gráklæddi maðurinn
Elsta leikhús Lundúnaborgar, Theatre
Royal Drury Lane (í daglegu kallað
Drury Lane eftir götunni í Covent
Garden) hefur verið starfrækt síðan
árið 1663 þó byggingin eins og hana
má sjá í dag er síðan árið 1812.
Þar sem þetta er, eins og áður sagði,
elsta leikhús Lundúna er eðlilegt að
þar megi finna allrahanda yfirnáttúrleg
fyrirbæri. Frægast þeirra er vera sem
kölluð er „Gráklæddi maðurinn“ en
hann ber gjarnan þríhyrndan hatt þó
klæðnaður hans að öðru leyti fylgi
tísku 18.aldar. Gráklæddi maðurinn
situr vanalega á efri svölum og ef eftir
honum er tekið, þykir hann merki um
velgengni sýningar. /SP
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.
Kemur næst
út 10. febrúar
PORTABLE
generatori
INDUSTRIAL
generatoriHVAÐ TEKUR VIÐ EF
RAFMAGNIÐ FER?
VARAAFLSTÖÐVAR
SEM SNIÐNAR ERU AÐ
ÞÍNUM ÞÖRFUM TAKA
VIÐ EF RAFMAGNIÐ
FER SVO STARFSEMIN
GETUR HALDIÐ ÁFRAM
ÓBREYTT.
KÍKTU Í VEFVERSLUN
OKKAR Á DYNJANDI.IS TIL
AÐ SJÁ MÖGULEIKANA
EÐA HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU FAGLEGA
RÁÐGJÖF HJÁ STARFS-
FÓLKINU OKKAR.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is