Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202216 Sýnd veiði Miklar vonir eru bundnar við að yfirstandandi loðnuvertíð verði gjöful enda er útgefinn kvóti sá stærsti í 20 ár. Áætlað hefur verið að útflutningsverðmæti loðnuafurða gæti numið á bilinu 60-70 milljarðar króna. Þessir peningar eru þó hreint ekki í hendi því árang urinn veltur á veðurfari á miðunum, afkastagetu vinnslu fyrir tæk j- anna í landi og ástandi á mörk- uðum. Útgefinn loðnukvóti til Íslend­ inga á þessari vertíð er 662 þúsund tonn sem er næstum tíu sinnum meira en kvótinn á síðustu vertíð. Á árinu 2021 nam útflutningsverðmæti loðnuafurða samtals um 24 milljörðum króna (sjá töflu). Vegna þess hve aflinn var takmarkaður (um 70 þúsund tonn) tókst að ráðstafa megninu af honum í framleiðslu heilfrystrar loðnu og loðnuhrogna sem gefa mest verðmæti en mjög litlu var landað til bræðslu í fiskimjöl og lýsi, ef frá er talið frákast frá hrognatöku. Lítið framboð af loðnuafurðum á heimsvísu hafði líka hagstæð áhrif á verðþróun á markaði. Verð var í hæstu hæðum á hrognaloðnu og loðnuhrognum bæði í Asíu og Austur­Evrópu. Tíðarfarið ræður úrslitum Nú horfir dæmið öðruvísi við. Framleiðendur þurfa að sætta sig við að aukið fram­ boð leiði til verðlækkana. Jafn­ framt er hreint ekki gefið að fiskimjölsverksmiðjurnar hafi undan að vinna þann afla sem kemur að landi. Á það reyndi fyrir skemmstu þegar Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar, var sendur til Noregs með 3.000 tonna loðnuafla vegna löndunarbiðar á Íslandi, svo dæmi sé tekið. Eins og ávallt veltur velgengni á vertíðinni fyrst og fremst á því hvernig viðrar, ekki síst á þeim tiltölulega skamma tíma þegar hrognaloðnan er verðmætust og þegar hrognatakan getur farið fram, en einnig þurfa veiðar í bræðslu að geta átt sér stað jafnt og þétt án teljandi tafa svo ekki myndist langvarandi löndunarbið. Lokun Rússlandsmarkaðar mikill skellur Rússland var langstærsti einstaki markaðurinn fyrir frysta loðnu áður en Rússar ákváðu að loka honum fyrir þeim löndum sem tóku þátt í efnahagslegum refsi­ aðgerðum gegn þeim vegna Úkraínudeilunnar. Ísland var þeirra á meðal. Síðustu tvö árin fyrir lokunina, eða árin 2014 og 2015, fór um helmingur af útflutningi heilfrystrar loðnu Íslendinga til Rússlands, eða tæp 27 þúsund tonn fyrra árið og 22 þúsund tonn seinna árið. Síðan ekki söguna meir. „Lokun Rússlandsmarkaðar var mikill skellur fyrir okkur. Undir venju legum kringumstæðum værum við núna að frysta í öllum vinnslu stöðvum fyrir Rússland, því á þessum tíma er loðnan feitust og best fyrir þann markað, en það er nánast engin frysting í gangi,“ segir Sigurgeir Brynjar Krist geirsson, framkvæmdastjóri Vinnslu­ stöðvarinnar í Vestmanna eyjum. Hrognamarkaðurinn einnig mikilvægur Fram kom í máli hans að rúss­ nesku mælandi lönd hafi einnig verið stærsti einstaki mark­ aðurinn fyrir loðnuhrogn. Hrogna markaðurinn þar eystra hefði verið byggður upp af fyrirtæki í Hvíta­Rússlandi, Santa Bremur, sem byrjaði að kaupa loðnuhrogn í tilraunaskyni árið 2003 og var þetta orðinn 6.000 tonna markaður áður en Rússar skelltu í lás. Þrátt fyrir lokun Rússlands­ markaðar hefur sala til annarra rússneskumælandi landa á heil­ frystri loðnu og loðnuhrognum haldið áfram en markaðurinn í heild í þessum heimshluta er verulega laskaður. Að frágengnu Rússlandi eru Úkraína og Hvíta­Rússland aðalmarkaðslöndin af ríkjum fyrrum Sovétríkjanna en ólga er í stjórmála­ og efnahagslífi þessara landa sem áhrif hefur á viðskipti. Japan er áfram tryggur kaupandi loðnuafurða af hæstu gæðum og aukin sala er á loðnu til vinnslu í Kína en þær afurðir fara svo að mestu leyti til sölu í Japan. Framleiðslan bundin við fjögur lönd Aðeins fjögur lönd í heiminum framleiða heilfrysta loðnu, Ísland, Noregur og Kanada og Færeyjar að takmörkuðu leyti. Á meðfylgjandi súluriti má sjá að heildar framboðið hefur farið hraðminnkandi undanfarin ár, eða úr rúmlega 190 þúsund tonnum árið 2013 í 10 þúsund tonn árið 2020. Hluti af skýringunni er auðvitað sá að loðnuveiðibann hefur ríkt í Barentshafi árum saman og sömuleiðis var sam­ dráttur í kvóta við Ísland og svo veiðibann um tveggja ára skeið. Þrengingar á loðnumörkuðum með lokun Rússlandsmarkaðar hafa þó ekki síður vegið þungt því eins og sannaðist á síðasta ári er hægt að gera mikil verðmæti úr litlum kvóta. Minnkuð afkastageta í fiskimjölsvinnslu Sú spurning vaknar hvers vegna vafi ríkir á því að það takist á veiða allan loðnukvótann að þessu sinni í ljósi þess að afli Íslendinga hefur fyrr á árum oft verið umtalsvert meiri en nú er heimilt að veiða, jafnvel um og yfir milljón tonn. Gunnþór Ingason, framkvæmda­ stjóri Síldarvinnslunnar í Nes kaup­ stað, svarar því til að afkastageta íslenskra fiskimjöls verksmiðja hafi frá árinu 2003 minnkað úr 16­17 þúsund tonnum á dag í 11­12 þúsund tonn á dag. Fjölmargar verksmiðjur hafa verið lagðar niður, í Helguvík, Bolungarvík Siglufirði, Eyjafirði, Raufarhöfn, Reyðarfirði, Djúpavogi og Þorlákshöfn. Ekki reiknað með risavertíðum „Aflinn hefur farið minnkandi síðustu ár. Við erum með nýja aflareglu í loðnu þar sem ekki er reiknað með risavertíðum eins og áður og meiri jafnstöðuafla. Menn hafa verið að aðlaga sig að því og ekkert sem réttlætir risa umframafkastagetu til þess að ná einhverjum toppi. Svo má ekki gleyma því að þegar aflinn var hvað mestur var einnig veitt á sumrin og fram á haust þannig að aflinn dreifðist á miklu lengri tíma en síðar varð,“ sagði Gunnþór. Núna hófst veiðin í desember síðastliðnum og hafa skipin þurft að hafa mikið fyrir henni, en Gunnþór segist samt enn þá vongóður um að kvótinn náist. Í upphafi þessarar viku var búið að veiða 179 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni. Það er 27% af útgefnum kvóta upp á 662 þúsund tonn. NYTJAR HAFSINS Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Ísland 80.000 42.000 27.000 18.000 27.000 23.000 7.000 2.000 Noregur 84.000 37.000 24.000 26.000 0 0 0 0 Kanada 20.000 21.000 26.000 27.000 19.000 17.000 26.000 8.000 Færeyjar 8.000 3.000 13.000 0 0 0 0 0 Samtals 192.000 103.000 90.000 71.000 46.000 40.000 33.000 10.000 0 50.000 100.000 150.000 200.000 250.000 Útflutningur á heilfrystri loðnu eftir löndum 2013-2020 To nn 18 30 34 16 30 18 18 18 8 3 24 60 0 10 20 30 40 50 60 70 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Verðmæti loðnuafurða frá Íslandi 2011-2022 ÁÆ TL UN (í milljörðum króna)ma.kr. Heimild: Hagstofa Íslands Útflutningur loðnuafurða frá Íslandi árið 2021 Tegund framleiðslu Tonn Milljónir kr.* kr/kg Fryst hrogn 6.699 14.185 2.117 Heilfryst loðna 20.298 7.282 358 Sjófryst loðna 4.137 1.093 263 Loðnumjöl 4.390 1.043 237 Loðnulýsi 2.145 590 275 Samtals 37.669 24.193 *Umreiknað úr evrum á meðalgengi ársins 2021 sem var 157 kr. Mestur hluti loðnuaflans í fyrra var unninn í afurðir til manneldis og var meðalútflutningsverð veiddrar loðnu um 350 krónur kílóið eða svipað og verð á þorski upp úr sjó á vertíðinni í fyrra. Ef spár um 60 milljarða vertíð í ár ganga eftir og allur kvótinn veiðist verður meðalútflutningsverð rétt innan við 100 krónur kílóið enda færi stærstur hluti aflans í bræðslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.