Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202216
Sýnd veiði
Miklar vonir eru bundnar við að
yfirstandandi loðnuvertíð verði
gjöful enda er útgefinn kvóti
sá stærsti í 20 ár. Áætlað hefur
verið að útflutningsverðmæti
loðnuafurða gæti numið á
bilinu 60-70 milljarðar króna.
Þessir peningar eru þó hreint
ekki í hendi því árang urinn
veltur á veðurfari á miðunum,
afkastagetu vinnslu fyrir tæk j-
anna í landi og ástandi á mörk-
uðum.
Útgefinn loðnukvóti til Íslend
inga á þessari vertíð er 662
þúsund tonn sem er næstum
tíu sinnum meira en kvótinn á
síðustu vertíð. Á árinu 2021 nam
útflutningsverðmæti loðnuafurða
samtals um 24 milljörðum króna
(sjá töflu). Vegna þess hve aflinn
var takmarkaður (um 70 þúsund
tonn) tókst að ráðstafa megninu
af honum í framleiðslu heilfrystrar
loðnu og loðnuhrogna sem gefa
mest verðmæti en mjög litlu var
landað til bræðslu í fiskimjöl
og lýsi, ef frá er talið frákast frá
hrognatöku. Lítið framboð af
loðnuafurðum á heimsvísu hafði
líka hagstæð áhrif á verðþróun á
markaði. Verð var í hæstu hæðum
á hrognaloðnu og loðnuhrognum
bæði í Asíu og AusturEvrópu.
Tíðarfarið ræður úrslitum
Nú horfir dæmið öðruvísi
við. Framleiðendur þurfa að
sætta sig við að aukið fram
boð leiði til verðlækkana. Jafn
framt er hreint ekki gefið að
fiskimjölsverksmiðjurnar hafi
undan að vinna þann afla sem
kemur að landi. Á það reyndi fyrir
skemmstu þegar Börkur NK, skip
Síldarvinnslunnar, var sendur til
Noregs með 3.000 tonna loðnuafla
vegna löndunarbiðar á Íslandi, svo
dæmi sé tekið.
Eins og ávallt veltur velgengni
á vertíðinni fyrst og fremst á því
hvernig viðrar, ekki síst á þeim
tiltölulega skamma tíma þegar
hrognaloðnan er verðmætust og
þegar hrognatakan getur farið
fram, en einnig þurfa veiðar í
bræðslu að geta átt sér stað jafnt
og þétt án teljandi tafa svo ekki
myndist langvarandi löndunarbið.
Lokun Rússlandsmarkaðar
mikill skellur
Rússland var langstærsti einstaki
markaðurinn fyrir frysta loðnu
áður en Rússar ákváðu að loka
honum fyrir þeim löndum sem
tóku þátt í efnahagslegum refsi
aðgerðum gegn þeim vegna
Úkraínudeilunnar. Ísland var
þeirra á meðal.
Síðustu tvö árin fyrir lokunina,
eða árin 2014 og 2015, fór um
helmingur af útflutningi heilfrystrar
loðnu Íslendinga til Rússlands, eða
tæp 27 þúsund tonn fyrra árið og
22 þúsund tonn seinna árið. Síðan
ekki söguna meir.
„Lokun Rússlandsmarkaðar
var mikill skellur fyrir okkur.
Undir venju legum kringumstæðum
værum við núna að frysta í öllum
vinnslu stöðvum fyrir Rússland, því
á þessum tíma er loðnan feitust og
best fyrir þann markað, en það er
nánast engin frysting í gangi,“ segir
Sigurgeir Brynjar Krist geirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslu
stöðvarinnar í Vestmanna eyjum.
Hrognamarkaðurinn einnig
mikilvægur
Fram kom í máli hans að rúss
nesku mælandi lönd hafi einnig
verið stærsti einstaki mark
aðurinn fyrir loðnuhrogn.
Hrogna markaðurinn þar eystra
hefði verið byggður upp af
fyrirtæki í HvítaRússlandi, Santa
Bremur, sem byrjaði að kaupa
loðnuhrogn í tilraunaskyni árið
2003 og var þetta orðinn 6.000
tonna markaður áður en Rússar
skelltu í lás.
Þrátt fyrir lokun Rússlands
markaðar hefur sala til annarra
rússneskumælandi landa á heil
frystri loðnu og loðnuhrognum
haldið áfram en markaðurinn í heild
í þessum heimshluta er verulega
laskaður. Að frágengnu Rússlandi
eru Úkraína og HvítaRússland
aðalmarkaðslöndin af ríkjum fyrrum
Sovétríkjanna en ólga er í stjórmála
og efnahagslífi þessara landa sem
áhrif hefur á viðskipti. Japan er
áfram tryggur kaupandi loðnuafurða
af hæstu gæðum og aukin sala er
á loðnu til vinnslu í Kína en þær
afurðir fara svo að mestu leyti til
sölu í Japan.
Framleiðslan bundin við
fjögur lönd
Aðeins fjögur lönd í heiminum
framleiða heilfrysta loðnu,
Ísland, Noregur og Kanada og
Færeyjar að takmörkuðu leyti.
Á meðfylgjandi súluriti má sjá
að heildar framboðið hefur farið
hraðminnkandi undanfarin ár, eða
úr rúmlega 190 þúsund tonnum
árið 2013 í 10 þúsund tonn árið
2020. Hluti af skýringunni er
auðvitað sá að loðnuveiðibann
hefur ríkt í Barentshafi árum
saman og sömuleiðis var sam
dráttur í kvóta við Ísland og svo
veiðibann um tveggja ára skeið.
Þrengingar á loðnumörkuðum
með lokun Rússlandsmarkaðar
hafa þó ekki síður vegið þungt
því eins og sannaðist á síðasta ári
er hægt að gera mikil verðmæti
úr litlum kvóta.
Minnkuð afkastageta í
fiskimjölsvinnslu
Sú spurning vaknar hvers vegna
vafi ríkir á því að það takist á
veiða allan loðnukvótann að
þessu sinni í ljósi þess að afli
Íslendinga hefur fyrr á árum oft
verið umtalsvert meiri en nú er
heimilt að veiða, jafnvel um og
yfir milljón tonn.
Gunnþór Ingason, framkvæmda
stjóri Síldarvinnslunnar í Nes kaup
stað, svarar því til að afkastageta
íslenskra fiskimjöls verksmiðja
hafi frá árinu 2003 minnkað úr
1617 þúsund tonnum á dag í 1112
þúsund tonn á dag. Fjölmargar
verksmiðjur hafa verið lagðar
niður, í Helguvík, Bolungarvík
Siglufirði, Eyjafirði, Raufarhöfn,
Reyðarfirði, Djúpavogi og
Þorlákshöfn.
Ekki reiknað með risavertíðum
„Aflinn hefur farið minnkandi
síðustu ár. Við erum með nýja
aflareglu í loðnu þar sem ekki er
reiknað með risavertíðum eins
og áður og meiri jafnstöðuafla.
Menn hafa verið að aðlaga sig að
því og ekkert sem réttlætir risa
umframafkastagetu til þess að ná
einhverjum toppi. Svo má ekki
gleyma því að þegar aflinn var hvað
mestur var einnig veitt á sumrin
og fram á haust þannig að aflinn
dreifðist á miklu lengri tíma en
síðar varð,“ sagði Gunnþór.
Núna hófst veiðin í desember
síðastliðnum og hafa skipin
þurft að hafa mikið fyrir henni,
en Gunnþór segist samt enn þá
vongóður um að kvótinn náist.
Í upphafi þessarar viku var
búið að veiða 179 þúsund tonn af
loðnu á vertíðinni. Það er 27% af
útgefnum kvóta upp á 662 þúsund
tonn.
NYTJAR HAFSINS
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
Ísland 80.000 42.000 27.000 18.000 27.000 23.000 7.000 2.000
Noregur 84.000 37.000 24.000 26.000 0 0 0 0
Kanada 20.000 21.000 26.000 27.000 19.000 17.000 26.000 8.000
Færeyjar 8.000 3.000 13.000 0 0 0 0 0
Samtals 192.000 103.000 90.000 71.000 46.000 40.000 33.000 10.000
0
50.000
100.000
150.000
200.000
250.000
Útflutningur á heilfrystri loðnu eftir löndum 2013-2020
To
nn
18
30
34
16
30
18 18 18
8
3
24
60
0
10
20
30
40
50
60
70
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Verðmæti loðnuafurða frá Íslandi 2011-2022
ÁÆ
TL
UN
(í milljörðum króna)ma.kr. Heimild: Hagstofa Íslands
Útflutningur loðnuafurða frá Íslandi árið 2021
Tegund framleiðslu Tonn Milljónir kr.* kr/kg
Fryst hrogn 6.699 14.185 2.117
Heilfryst loðna 20.298 7.282 358
Sjófryst loðna 4.137 1.093 263
Loðnumjöl 4.390 1.043 237
Loðnulýsi 2.145 590 275
Samtals 37.669 24.193
*Umreiknað úr evrum á meðalgengi ársins 2021 sem var 157 kr.
Mestur hluti loðnuaflans í fyrra var unninn í afurðir til manneldis og var meðalútflutningsverð veiddrar loðnu um
350 krónur kílóið eða svipað og verð á þorski upp úr sjó á vertíðinni í fyrra. Ef spár um 60 milljarða vertíð í ár ganga
eftir og allur kvótinn veiðist verður meðalútflutningsverð rétt innan við 100 krónur kílóið enda færi stærstur hluti
aflans í bræðslu.