Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 35 KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is LOFTPRESSUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika. Við bjóðum upp á allar stærðir og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum. Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi. Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Samkvæmt nýlegum rannsóknum vísindamanna Oregon State- háskóla Bandaríkjanna, hefur komið fram að efnasambönd hampplöntunnar geti mögulega komið í veg fyrir útbreiðslu veirunnar Covid-19. Efnasamböndin cannabigerolic sýra, eða CBGA, og cannabidiolic sýra, eða CBDA, geti með því að bindast gaddapróteinum SARS- CoV-2 veirunnar sem veldur Covid- 19, minnkað möguleika eða jafnvel komið í veg fyrir framgengi smita og sýkingu. (SARS stendur fyrir Severe Acute Respiratory Syndrome, eða á íslensku; heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu.) Rannsókninni er stýrt af vísindamanninum Richard van Breemen, en hann telur gögn er komið hafa fram sýna jákvæð áhrif CBDA og CBGA gegn þeim tveimur afbrigðum Covid-veirunnar sem rannsökuð voru – og vonast sé til þess að sú virkni nái til annarra núverandi og framtíðarafbrigða. Þótt frekari rannsókna sé þörf lítur út fyrir að hægt sé að þróa lyf sem kemur þá í veg fyrir eða meðhöndlar Covid-19 með því að hindra inngöngu veirunnar og jafnvel í bland við bólusetningar ætti sú meðferð að verða til þess að aðstæður verði veirunni afar krefjandi. Van Breemen tekur fram að enn geti þó ónæm afbrigði komið upp en líklegt sé að þau eigi þá erfitt með að dreifa sér. Nánari upplýsingar má lesa á vefsíðu Forbes, www.forbes.com og ef lesendur eru forvitnir um jákvæð áhrif kannabisplöntunnar í tengslum við Covid-19 má sjá grein á vefsíðu Open Access Government www. openaccessgovernment.org, sem sett var inn fyrir ári síðan. /SP Covid & Kannabis Eyjaklasi og ríki Tonga á Kyrrahafi samanstendur af byggð 36 eyja af þeim176 sem á svæðinu eru, rúm- lega 100 þúsund íbúa. Tongaríki hefur, líkt og heimurinn allur, ekki farið varhluta af holskeflu Covid-veirunnar – en þó hafa yfir- völd og íbúar verið gríðarlega var- kár og smit verið í algeru lágmarki. Í raun er Tonga eitt fárra svæða á heimsvísu þar sem smitaðir finnast vart ekki. Einungis hefur um eitt smit verið að ræða, nú fyrir hálfu ári, en það greindist hjá fullbólusettum einstaklingi, ferðamanni sem kom flugleiðis frá Nýja-Sjálandi. Hart var brugðist við fréttum af smitinu en strax komu upp tillögur að útgöngu- banni í einhvern tíma auk þess sem íbúar flykktust í bólusetningu. Áður hafði aðeins þriðjungur þeirra verið fullbólusettur. Það hlýtur að þykja kald- hæðnislegt, eftir slíka velgengni í kappi við veiruna, að lenda í nátt- úruhamförum þeim er hafa dunið yfir á síðustu dögum. Aðstæður í kjölfar sprengigossins og þá flóð- bylgjunnar er skullu á um miðjan mánuðinn eru hræðilegar. Fyrstu hjálpargögn hafa þó borist eyjaskeggjum en nú hafa flugbraut- ir verið ruddar öskunni sem þekur annars allt sem augað eygir. Er þetta mikið fagnaðarefni enda hefur sam- band eyjunnar við umheiminn verið slitrótt vegna þess sæstrengs sem fór í sundur við hremmingarnar og yfirsýn yfir eyðilegginguna ekki verið góð. Stephane Dujarric, talsmaður Sameinuðu þjóðanna, telur að ham- farirnar hafi valdið nær öllum eyja- skeggjum einhverju eða þó nokkru tjóni en að minnsta kosti tvær eyjar hafa látið mikið á sjá. Mjög miklar skemmdir voru meðal annars á stærstu eyju ríkisins, Tongatapu, en mildi er að enn hafa skráð mannslát í kjölfar gossins ekki verið fleiri en þrjú. /SP Eldfjallið Hunga Tonga-Hunga Ha'apai: Sprengigos toppar smithættu Myndin sýnir sprengingu sem átti sér stað er neðansjávareldfjallið Hunga Tonga-Hunga Ha'apai gaus af miklum krafti um miðjan janúarmánuð. Næsta blað kemur út 10. febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.