Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 39
hjá Samhentum umbúðalausnum,
afhenti Sigurði Haraldssyni,
Kjötmeistara Íslands 2022,
verðlaunagripinn. Mælti Guðráður
nokkur orð við þetta tækifæri
og þakkaði Meistarafélagi
kjötiðnaðarmanna sérstaklega fyrir
að veita fyrirtækinu tækifæri til að
taka þátt í þessum viðburði.
Sagði hann að Valdimar Gíslason
(VGÍ ehf.) hafi afhent verðlaunin í
mörg ár en síðan hafi Samhentar
umbúðalausnir tekið við því
hlutverki eftir að hafa keypt VGÍ
árið 2007. Þá hafi fleiri haft þetta
hlutverk með höndum, en nú væri
boltinn aftur kominn til Samhentra.
Stórkostleg samvinna búgreina
og kjötiðnaðarmanna
„Við erum mjög stolt af því að
vera bakhjarl Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna. Ég tók eftir
því að það voru hér verðlaun frá
búgreina félögunum (Landssamband
sauðfjárbænda, Landssamtök kúa
bænda, Svínaræktarfélag Íslands,
Félag kjúklingabænda og Hrossa
ræktendur, en búgreinafélögin
eru nú öll orðin að deildum í
Bændasamtökum Íslands). Ég
skrifaði einmitt langan pistil
í Bændablaðið á sínum tíma
um að ég saknaði þess að þessi
félög mættu á þennan viðburð.
Samvinna búgreinanna og íslenskra
kjötiðnaðarmanna er einmitt alveg
stórkostleg. Þarna fer fram samtal
sem þarf að eiga sér stað alla daga.
Það eru ofboðslega margar flottar
vörur sem hér eru framleiddar
og mikill metnaður í íslenskum
kjötiðnaðarmönnum og í raun eru
kjötiðnaðarmeistarar sendiherrar
búgreinafélaganna á markaði.“
Frábært að upplifa jákvætt
viðmót kjötiðnaðarmanna
„Ég hef ferðast um landið í ein 18 ár
og selt krydd, umbúðir og fleira og
oft verið með útlendinga með mér
í þessum ferðum. Alltaf dást þeir af
því hversu hátt gæðastig er í okkar
framleiðslu og á okkar kjöti. Hversu
allar kjötvinnslur eru vel tækjum
búnar og hversu jákvætt viðmót er
hjá íslenskum kjötiðnaðarmönnum
og kjötiðnaðarmeisturum til
nýjunga. Það sé frábært að upplifa
það að fá að koma fram með
hugmynd og alltaf sé viðkvæðið hjá
þeim jákvætt; við gerum þetta bara.
Ég er ótrúlega stoltur af því að fá
alltaf þetta jákvæða viðmót, það er
algjörlega frábært,“ sagði Guðráður
G. Sigurðsson um leið og hann afhenti
Sigurði Haraldssyni verðlaunagripinn.
101 vara send í keppnina
Alls var 101 vara send inn í keppn
ina og fengu 72 vörur verðlaun.
Þar af fengu 53% innsendra vara
gullverðlaun, 53% fengu silfur
verðlaun og 30% fengu brons
verðlaun.
• Til þess að fá gullverðlaun þurfti
varan að fá 4950 stig og vera
nánast gallalaus.
• Til þess að fá silfurverðlaun
þurfti varan að fá 4648 stig og
mátti aðeins vera með lítils háttar
galla.
• Til þess að fá bronsverðlaun
þurfti varan að fá 4245 stig.
Kjötiðnaðarmeistarar úr MFK sáu
um að dæma vörurnar í húsnæði
Menntaskólans i Kópavogi. Verð
launa peningar voru í boði Kötlu.
Athyglisverðasta nýjung
keppninnar
Fyrir athyglisverðustu nýjungina
var veitt sérstök viðurkenning og
var það Bewi Iceland sem veitti þau
verðlaun. Hlutskarpastur í þessum
flokki var Bjarki Freyr Sigurjónsson
hjá Sláturfélagi Suðurlands fyrir
Hangikæfu með uppstúf.
Verðlaun búgreina – Besta varan
unnin úr nautakjöti
Landssamband kúabænda veitti
verðlaun fyrir bestu vöruna unna
úr nautakjöti. Þar var Steinar
Þórarinsson, Sláturfélagi Suðurlands,
hlutskarpastur með Sælkeranaut
(pipargrafið nautafile).
Verðlaun búgreina – Lambaorðan
Landssamtök sauðfjárbænda
veitti lambaorðuna þeim kjöt
iðnaðarmanni sem átti bestu vöruna
unna úr lambakjöti. Þar var Bjarki
Freyr Sigurjónsson frá Sláturfélagi
Suðurlands hlutskarpastur með
Hangikæfu með uppstúf.
Verðlaun búgreina – Besta varan
unnin úr alifuglakjöti
Félag kjúklingabænda veitti sérstök
verðlaun fyrir bestu vöruna unna úr
alifuglakjöti. Hlutskarpastur í þeim
flokki var Jónas Pálmar Björnsson
frá Sláturfélagi Suðurlands með
Konfektkæfu.
Verðlaun búgreina – Besta varan
unnin úr svínakjöti
Svínaræktarfélag Íslands veitti
verðlaun fyrir bestu vöruna unna
úr svínakjöti. Þar var Sigurður
Haraldsson í Pylsumeistaranum
hlutskarpastur með Rúllupylsu.
Verðlaun búgreina – Besta varan
unnin úr folaldakjöti
Kjötframleiðendur og hrossa
ræktendur veittu sérstök verðlaun
fyrir bestu vöruna unna úr hrossa
eða folaldakjöti. Jónas Þórólfsson í
Frávik var þar hlutskarpastur með
Hvanngrafið hrossafile.
Sérverðlaun – Bestu varan í
flokknum eldaðar kjötvörur
Danól veitti verðlaunin fyrir þenn an
flokk þar sem Sigurður Haralds son í
Pylsumeistaranum var hlut skarpastur
með Rúllupylsu.
Sérverðlaun – Bestu varan í
flokknum soðnar pylsur
PMT veitti verðlaunin þar sem
Sigurður Haraldsson í Pylsu
meistaranum var líka hlutskarpastur
með EM pylsu, reykta og soðna.
Sérverðlaun – Besti reykti
eða grafni laxinn
Verslunartækni Geiri veitti þar verð
laun. Hlutskarparpastur í þeim flokki
var Rúnar Ingi Guðjónsson hjá Frávik
með Grafinn lax.
Sérverðlaun – Besta varan í
flokknum sælkeravörur
Matvélar og umbúðir veitti verðlaunin
þar sem Jónas Þórólfsson í Frávik var
hlutskarpastur með Hvannargrafið
hrossafile.
Sérverðlaun – Besti varan í
flokknum kæfur og paté
Fyrirtækið ÍSAM veitti verðlaun í
þessum flokki, en Steinar Þórarinsson
hjá Sláturfélagi Suðurlands var
hlutskarpastur með Súkkulaðikæfu
með jarðarberja hlaupi.
Sérverðlaun – Besti reykti eða
grafni silungurinn
Katla veitti verðlaun í þessum
flokki. Þar varð Ómar Fransson í
Sólskeri hlutskarpastur með Reyktan
regnbogasilung.
Yfirdómari var Eðvald Sveinn
Valgarðsson. Meðdómarar voru Árni
Níelsson, Arnar Sverrisson, Erla Jóna
Guðjónsdóttir, Ómar B. Hauksson,
Kristján G. Kristjánsson, Magnús
Friðbertsson, Hreiðar Örn Zoëga
Stefánsson og Þorsteinn Þórhallsson.
Fagkeppnisnefnd MFK stóð á bak við
þennan viðburð, en hana skipa Jón
Þorsteinsson formaður, Sigurfinnur
Garðarsson, Ingólfur, Baldvinsson
og Hafþór Hallbergsson, en ritari er
Björk Guðbrandsdóttir.
Frá árinu 1992 hefur Meistara
félag kjöt iðnaðarmanna staðið
fyrir fagkeppni á meðal kjöt
iðnaðar manna, um nýjungar í
kjöt og fiskafurðum, en félagið
var stofnað 5. febrúar 1990.
Keppn in, sem haldin var í mars,
var sú 15. í röðinni.
Fagkeppninni var frá upphafi
ætlað að efla gæðavitund kjöt
iðnaðar manna með því að verðlauna
þá sem sköruðu fram úr í gæðum. Í
framhaldi af fyrstu keppninni var
tekið þátt í alþjóðlegri fagkeppni
í Danmörku þar sem Íslendingar
unnu til margra verðlauna og þá
sérstaklega fyrir unnar vörur úr
lambakjöti.
Mikil gróska hefur verið í
íslenskum kjötiðnaði hin síðustu
ár og er það að hluta til vegna
innlendra sem erlendra keppna sem aðilar tengdum
kjötiðnaði hafa tekið þátt í. Fagkeppnin fer fram í
þremur flokkum ásamt aukakeppni þar sem lax og
silungur er aðalinnihald vöru.
Í gegnum tíðina hafa búgreinafélögin stutt
keppnina með því að veita verðlaun fyrir bestu
vöruna í eftirfarandi flokkum: Nautakjöti, lambakjöti,
alifuglakjöti, svínakjöti og hrossa og folaldakjöti,
og þarf því að tilgreina hver sé meginkjöttegundin
í vörunni. Einnig eru sérstök verðlaun veitt fyrir
bestu elduðu vöruna, bestu hráverkuðu vöruna,
athyglisverðustu nýjungina, bestu
kæfuna/paté og bestu soðnu vöruna.
Þær vörur sem flest stig hljóta frá
hverjum keppanda telja í lokin til
titils Kjötmeistara Íslands, en þann
titil hlýtur eins og áður sá sem flest
stig hlýtur í heildina.
Allar vörur sem tilheyra
kjötiðnaðinum eru gjaldgengar,
eins og verið hefur í fyrri keppnum,
hvort sem þær eru unnar úr kjöti,
fiski, fuglum, innyflum eða allt
það sem að menn telja að tilheyri
faginu. Keppandinn sem hlýtur flest
stig samanlagt úr fimm stigahæstu
vörum sínum í keppninni hlýtur
titilinn „Kjötmeistari Íslands 2022“.
Síðustu ár hefur töluvert verið
rætt um þróun iðnmenntunar á
Íslandi. Hlutfall þeirra nema sem
ljúka iðnámi fer fækkandi. Þessi
þróun er þó ekki séríslenskt fyrirbæri heldur er þetta
þekkt víða í nágrannalöndum okkar.
Áhyggjur okkar iðnaðarmanna eru þó nokkrar og
mikið hefur verið rætt um að finna leiðir til að auka
áhuga ungs fólks á iðnámi. Eitt af markmiðum MFK
er að kynna iðngreinina fyrir ungu fólki, að það sjái
fjölbreytileikann í starfi kjötiðnaðarmannsins. Ein slík
leið er í keppnum iðnaðarmanna, eins og fagkeppni
kjötiðnaðarmanna.
Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson
Fagkeppni í 30 ár
Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson.
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
CONVOTHERM
VANDAÐIR OFNAR
Convotherm 4 easyDial eru frábærir ofnar með 7 eða 11 skúffum.
Þægilegt viðmót og auðveldir í notkun.
Magnús Friðbergsson og Árni Níelsson meta eina keppnisvöruna.
Guðráður G. Sigurðsson, sölustjóri
hjá Samhentum umbúðalausnum,
Sigurður Haraldsson og Jón
Þorsteinsson, sem var m.a. Kjöt
iðnaðar meistari árið 2014.