Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 65
LESENDARÝNI
Íslenskur landbúnaður og fæðuöryggi
Nú er komin upp sú staða í
þriðja skiptið á fáeinum árum að
spurningar vakna um fæðuöryggi
á Íslandi. Fyrst var um að ræða
fjármálakreppu á heimsvísu
sem vakti menn til umhugsunar.
Næst var það heimsfaraldur
kórónuveirunnar, en nú er það
styrjaldarástand í Úkraínu og
möguleg heimsstyrjöld sem illu
heilli gæti fylgt í kjölfarið.
Hér á landi hafði landbúnaður
ásamt sjávarútvegi séð þjóðinni fyrir
lífsnauðsynlegri næringu frá landnámi
og fram á 21. öldina. Þá bar svo við
að sífellt fleiri stjórnmálamenn létu
glepjast af hagsmunum innflytjenda
og stórkaupmanna á kostnað
innlendrar framleiðslu. Þessir
hagsmunir vel stæðra kaupmanna
voru og eru gjarnan skreyttir með
þeim fögru orðum að um hagsmuni
neytenda sé að ræða fremur en að þeir
snúist um arðgreiðslur stórfyrirtækja
í vasa fáeinna útvalinna einstaklinga.
Þessi stefnubreyting stjórnvalda
hefur valdið mikilli fækkun meðal
bænda og lífskjör þeirra hafa
versnað til muna. Er nú svo komið
að byggð víða um land er í hættu
þar sem rekstur búanna er ekki
lengur sjálfbær.
Ráðherra segir engar
vísbendingar um að fæðuöryggi
sé ógnað!
Á Alþingi Íslendinga kom nýverið
upp umræða um fæðuöryggi lands
manna, en slík umræða hefur vart
fengist upp á borð stjórnvalda þrátt
fyrir að blikur hafi verið á lofti um
alllanga hríð. Þá ber svo við að
nýlegur ráðherra land búnaðarmála,
Svandís Svavarsdóttir, segir að
ekkert bendi til þess að fæðuöryggi
Íslendinga verði ógnað í nánustu
framtíð. Aðeins megi reikna með lítils
háttar hiksta í framleiðslukeðjunni
vegna stríðsátakanna í Úkraínu.
Það er þyngra en tárum taki að
ráðherra fæðuöryggismála sjái ekki
hættuna sem stafar af snarminnkandi
landbúnaðarframleiðslu vegna
stóraukins kostnaðar en um leið lítilla
væntinga bænda um leiðréttingar á
afurðaverðum til samræmis.
Ef illa fer munu bændur ekki
sjá sér annað fært en að draga
mikið úr ásetningi næsta haust og
jafnvel að fækka mikið í bústofnum
sínum næsta og þarnæsta haust og
einhverjir munu væntanlega hætta
rekstri. Framleiðsla matvæla tekur
tíma og breytingar gerast ekki hratt.
Þá er óvíst að þeir sem bregða búi
geti eða vilji hefja framleiðslu á ný.
Afskiptaleysi yfirvalda leiðir til
aukins innflutnings
Grænmetis og loftslagsblæti ráðherra
landbúnaðar er orðið vandræða legt á
að hlusta. Svo virðist sem mjólkur og
kjötframleiðsla séu bannorð úr hennar
munni þar sem fátt annað heyrist úr
þeirri átt en þessi þrjú orð: Tækifæri,
loftslagsmál og grænmetisrækt, í
þessari röð að því er virðist.
Það eru örugglega flestir Íslend
ingar áfram um að rækta sem allra
mest af því grænmeti sem við neytum
hér á landi og þeirra á meðal er
undirritaður, en þrátt fyrir heilnæmi
og hreinleika þess eru hlutfallslega
ekki margir sem telja sig geta lifað
á grænmetinu einu saman. Því mun
kaffæring kjöt og mjólkurframleiðslu
ásamt afskiptaleysi yfirvalda af
grein unum aðeins verða til þess að
innflutningur verður aukinn, það er
að segja þegar og ef ekkert kemur
í veg fyrir það, svo sem fjármála
hrun, heimsfaraldur veirusýkinga
eða stórstyrjaldir.
Ekki byggt á sterkum
vísindalegum rökum
Hvað þarf að gera til að ekki fari
illa í matvælaframleiðslu hér á
landi? Jú, það þarf að fara að hlúa
að og vernda greinina í stað þess
að vinna gegn henni á beinan eða
óbeinan máta. Það væri til dæmis
gott ef stjórnmálasamtök létu ógert
að tala gegn neyslu ákveðins hluta
innlendrar landbúnaðarframleiðslu
eins og flokkur umrædds ráð herra
gerði um árið með sínu „kjötlausa“
landsþingi.
Áróður fámenns hóps gegn
kjötneyslu hérlendis byggir ekki á
sterkum vísindalegum rökum, heldur
fremur tilfinningum, vafasömum
rannsóknum (eða engum) og
ágiskunum. Íslenskar rannsóknir
vantar, en nýbirt rannsókn fræði
manna í Landbúnaðarháskóla Íslands
á losun kolefnis frá túnum í mýrlendi
hér á landi sýnir að himinn og haf er
á milli þeirrar ímynduðu losunar sem
yfirvöld gefa upp og raunverulegrar
losunar sem rannsóknin bendir til.
Slíkt hið sama gæti hæglega gilt
um aðra þætti íslensks landbúnaðar,
en það kemur ekki í ljós nema málin
verði rannsökuð.
Stórefling innlendrar
matvælaframleiðslu
Það má að lokum benda á að
Miðflokkurinn hefur ítrekað lagt
fram viðamikla þings ályktunar tillögu
í 24 liðum um stóreflingu innlendrar
matvælaframleiðslu og öruggt og
fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi
landbúnaðar.
Gott væri ef stjórnar flokkarnir
brytu odd af oflæti sínu og færu í að
hrinda þessum tillögum í framkvæmd,
ef ekki á illa að fara.
Högni Elfar Gylfason
Korná
Höfundur er sauðfjárbóndi
og áhugamaður um þjóðmálin
í víðu samhengi.
Högni Elfar Gylfason.
Kemur næst út
28. apríl
Frjó umbúðasalan, hluti af
Samhentum síðan 2016