Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 71

Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 71
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 71 Í gegnum árin hef ég verið nei­ kvæður út í stórar felgur og lág dekk undir bílum, þ.e.a.s. dekk sem eru með lágan prófíl og fjaðra lítið sem ekkert í holum og ójöfnum, t.d. hér í prófunarpistlunum mínum á bílum á síðunni hér til hliðar þar sem fjallað er um nýja bíla og tæki. Það er engin furða að ég sé neikvæður út í svona dekk, en vegakerfið sem við búum við er ekki „fýsilegt“ fyrir dekk með litla fjöðrun. Það er vissulega fallegt fyrir augað að sjá bíl á stórum felgum, en fyrir mér er það bara fáránleiki og heimska að stækka felgur undir bílum á Íslandi í því „holu- vegakerfi“ sem við búum við. Hvað þýðir dekkjastærðin undir bílnum? Einhver fáránlegasta talnaruna sem fyrirfinnst er heiti dekkja, tökum dæmi: • 225/50/18 (dekk sem ég vil meina að eigi ekkert erindi á íslenska vegi). • 225 stendur fyrir 22,5 cm breidd á dekki, • 50 stendur fyrir 50% af 22,5 cm sem er hæð dekksins og myndi vera 11,25 cm. Það er ekki mikil fjöðrun úr slíku dekki. • 18 er felgustærðin mæld í tommum. Sem sagt þrjár mismunandi tölur lesnar út úr dekkja stærð = cm, %, tommur, engin furða að fólk átti sig ekki á hvað dekkjastærð gengur út á. Fyrir mér þá finnst mér aðalatriðið að miðjutalan sé sem hæst. Það er að segja að hæð dekksins frá felgu að snertifleti við jörð sé sem mest og fari helst aldrei niður fyrir 60% af slitfleti dekks. Ef við tökum jafn breitt dekk og hér að ofan og segðum að það héti 225/75/18 þá værum við komin með dekk sem væri komið í 16 cm hæð frá slitfleti og að felgu. Slíkt dekk gefur betri fjöðrun en fyrra dekkið og hentar betur til að taka högg þegar ekið er í holur og ójöfnur. Líftími dekkja er ekki nema 6 ár Flestir betri dekkjaframleiðendur taka ábyrgð á sinni framleiðslu í almennt nálægt 90 mánuði. Ekki ósvipað og bílar sem eru með 3-7 ára ábyrgð. Eftir þann tíma eru dekk farin að missa grip, bremsueiginleika og annað sem þeim er ætlað að gera þar sem að rakastig dekkja minnkar með árunum. Til að sjá hvað dekk er gamalt eru flestir dekkjaframleiðendur með framleiðsluviku og ár á hlið dekksins, sporöskjulaga ramma með fjórum tölustöfum. Fyrstu tveir tölustafirnir eru vika ársins og seinni tvær er ártalið. Þannig að ef á dekki stendur 0516 þá var dekkið framleitt í fimmtu viku ársins 2016. Það er því orðið meira en sex ára og ekki lengur í ábyrgð frá framleiðanda. Flestir dekkjainnflytjendur á Íslandi passa upp á að svona gömlum dekkjum sé fargað og þau fari ekki í sölu. Val á dekkjum getur verið erfitt, en hvað viltu að dekkið geri? Flestir sem eru að kaupa dekk hugsa fyrst og fremst út í verð og endingu, en nútímakröfur hjá mörgum er að dekkin spari eldsneyti, séu ekki hávaðasöm og gefi gott grip í rigningu og bleytu. Á límmiða utan á dekkjum eru uppgefin númer og bókstafir um gæði dekkja við ofangreind atriði og flokkast þannig dekk í að vera A-, B- eða C-dekk. Síðan eru það rafmagnsbílarnir sem eru almennt þyngri bílar en hefðbundnir fólksbílar og ættu að vera á sérstyrktum „rafmagnsbíladekkjum“, en þau dekk eru ekki alls staðar til. Því þarf að nota dekk sem oft þola illa þann þunga sem er í rafmagnsbílum. Þau endast ekki eins vel, eyða meira rafmagni og eru í meiri hættu á að höggvast í sundur á hliðinni þegar ekið er í djúpa holu eða á hvassa brún. Hugsaðu vel um dekkin og þá endast þau Til að dekkin endist sem lengst þá þarf að hugsa vel um þau. Réttur loftþrýstingur er þar númer eitt. Aldrei á að vera of lítill þrýstingur. Betra að það sé 1-2 psi. of mikið í dekkjunum. Í flestum bílum er réttur loftþrýstingur uppgefinn í hurðarfalsinu á bílstjórahurðinni. Á örfáum bílum er þessi miði inni í ytra bensínlokinu. Gott ráð er að víxla fram- og afturdekkjum á um 5.000 km millibili. Persónulega reyni ég að fá mér mjúk dekk sem gefa gott grip við flestar aðstæður og heyrist ekki hátt í. Ég víxla fram og aftur á um 2.000-5.000 km fresti, en mjúk dekk með miklu gripi endast styttra og eru oft að eyða aðeins meira af eldsneyti. Það getur reynst erfitt að fá allt fyrir ekkert, en ég kýs veggrip fram yfir endingu. OG VINNUM ÚR ÞEIM LAUSNIR TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 SALLI TÍMABILS NÆPA SEFA HLJÓÐFÆRI VESÆL SSKRÍN M Á H I R S L A SNEPLA KLYGN Y R R NAUTNA- LYF Ó P Í U M EKVK NAFN L S FARMUR SNJÁLDUR F E R M I S VÍSA ÁRSTÍÐ S T A K A BÖÐLAST Ð EYÐA DÓM- GREIND Í RÖÐ S A N S A R ELDI J TVEIR EINS ROSA A A DETTASNEIÐA RÍ RÖÐ MÁLMUR A S A M T TVÍHLJÓÐI FORMA A U BYLGJAST Ý F A S T BALARÞÓ A F N Á M EINÓMUR FÁEINAR M Ó N Ó UMSTANG MÁLREIF V A SNIÐUR- FELLING M M SVEIMA ÆMT L Ó N A EFTIRSJÁ HUGBOÐ I Ð R A S TTVEIR EINS H Á S PLAN LOKKAR T O R G YRKJA SVIPAN R Æ K T ARÁMUR V UNGUN AFGANGUR K L A K BLÓMI SEPI R A U Ð A ÓSKIPU- LAG M E L R I STIRÐ- BUSI K L U N N I EMJAN HRÓPA Ó PTRÉ R E I Ð FLANDUR R A N D SKART TVEIR EINS N Æ L AILL F A I F M T I R VARA A A R F ATFERLI U R R Á Ð Ð SAM- STÆÐA L P A A G RLIPURÐ HINDRAR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 171 SJÓÐA RÖST RÓGUR DAGSETUR ÁLÍTA DREIFT TIL- HÖGUNAR SÖGU ÞYRFTI DREN GORT MÓÐGA VITLEYSA AÐ BAKI HÓGVÆR VÍÐÁTTA BAND DRYKKUR TVEIR EINS HEITI ANNARS KRYDDMYRKVAST Í RÖÐ BRODD STING VÍTA LITÞROTA TÓNN RÍKI Í AFRÍKU PÍNU- LÍTILLA TITILL FJAÐRA GEGNSÆR MISMUNUR JARÐAR DUND ÞOKKA MYNDABÓK ÁVÖXTUR FIKTATITILL UNDIROKA SIÐA RUNNI AMA ÞANGAÐ TIL GARÐI JARÐEFNI GAUR VEIKI FLÍK RÍKI Í AFRÍKU HVAÐ FORSÖGN UPP- HRÓPUN SKJÖGRA SVENGJA SJÚK- DÓMUR RÓMVERSK TALA TVEIR EINS FÆÐA MASAR RÓLEGUR HJÚPURSTIG SKRAMBI M Y N D : G A B R IE LE K O TH E- H EI N R IC H ( CC B Y -S A 3 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 172 Árlegur vordekkjapistill Ónýt felga sem á hafði verið mjög lágt dekk og ekið var á stein, dekkið var í lagi en felgan er ónýt og ekki hægt að laga. Fæðingarvottorð dekks, vika 5 árið 2016, of gamalt til að selja. Fær einkunn C í sparneytni, B í bleytu og gefur 70db. hávaða, en flokkast í A flokk dekkja samt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.