Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 70
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202270
Það er svolítið síðan að ég prófaði
„smábíl“ svo að ég fór í Toyota og
fékk að prófa nýjustu útgáfuna af
Toyota Yaris bensínbíl, sjálfskiptan
með 10 þrepa skiptingu og
sagður eyða 5,7 lítrum af bensíni
í blönduðum akstri á hundraðið.
Oftast læt ég um 100 km akstur
duga, en þessi bíll var eitthvað
svo náttúrulegur að eftir því sem
ég keyrði lengra líkaði mér hann
betur og betur og endaði í næstum
200 km akstri.
Stærri að innan og rýmri
Toyota Yaris er sennilega mest seldi
smábíllinn á Íslandi síðustu 20 árin
og alltaf jafn vinsæll, síðast prófaði
ég hér í blaðinu Yaris með 90 hestafla
dísilvél í apríl 2011, en sá bíll var
einstaklega hagkvæmur í rekstri,
eyddi litlu, gott að keyra og hefur
reynst mörgum vel.
Yarisinn sem ég prófaði núna
er með 1,5 lítra bensínvél sem á
að skila 125 hestöflum. Það fyrsta
sem ég tók eftir var hvað bíllinn
var allur rýmri að innan, meira
fótapláss og olnbogarými. Sætin
góð og þá sérstaklega aftursætin.
Farangursrýmið er gott miðað við
stærð bíls og þar undir plötunni er
varadekk sem ég kalla „aumingja“,
en samt varadekk sem vantar orðið
í of marga bíla.
Prufuaksturinn var lengri
en til stóð
Ég byrjaði prufuaksturinn á
innanbæjarakstri og eftir um 50
km akstur sagði aksturstölvan að
mín eyðsla hafi verið 6,7 lítrar á
hundraðið. Næst var um 70 km
utanbæjarakstur (í töluvert miklum
vindi), en þá var eyðslan mín 5,6
lítrar á hundraðið.
Þegar ég skilaði bílnum eftir
tæplega 200 km akstur var mín
meðaleyðsla 6,5 lítrar á hundraðið,
nokkuð gott fannst mér miðað við
veður og að uppgefin meðaleyðsla
væri 5,9 lítrar á hundraðið.
Eins og áður sagði leið mér
alltaf betur og betur í bílnum eftir
því sem ég fór lengra. Fjöðrun góð
og á malarveginum tók fjöðrunin
vel hefðbundnar malarvegaholur.
Aðeins var þó steinahljóð frá grófum
vetrardekkjunum undir bílnum,
einkum frá framdekkjunum (hef
stundum kallað þetta steinahljóð upp
undir bíla „baukahljóð“).
Hávaðamælingin kom vel út.
Svona smábílar hafa yfirleitt mælst
á bilinu 71-73db., en þessi mældist
70,9 db. á 90 km. hraða.
Mikið af nýjum öryggisbúnaði
Verðið á bílnum er ekki nema
3.980.000 sem mér finnst ekki mikið
miðað við það sem í bílnum er. Bílnum
fylgir 7 ára ábyrgð, akreinalesari og
hraðastillir þannig að hægt er að
fylgja hraðanum á næsta bíl á undan.
Þá er í honum neyðarbremsubúnaður,
blindhornsvari og ýmislegt fleira sem
ekki var í eldri árgerðum af Yaris.
Það eru ekki margir neikvæðir
hlutir sem ég sá við þennan bíl,
en ég er samt aldrei sáttur við að
þurfa alltaf að kveikja ökuljósin í
hvert sinn sem ekið er af stað og
að þurfa að muna að slökkva þau
svo að loknum akstri. Fyrir mér ætti
að banna bíla með AUTO takka
fyrir ljósin því hann er í flestum
tilfellum alltaf ólöglegur samkvæmt
íslenskum umferðarlögum. Í akstri
eru bara ljóstírur að framan og engin
afturljós. Þegar maður er stopp og
á að vera með stöðuljós eru engin
afturljós og of sterk framljós.
Þó að ég kalli varadekkið
aumingja þá er þessi bíll með dekk
til að bjarga sér í neyð, en ég hefði
viljað að allir bílar væru með fullbúið
varadekk. Það er ekki vanþörf á slíku
í akstri á holóttu íslensku vegakerfi.
Hægt að fá nokkrar
útgáfur af Yaris
Toyota hefur í boði nokkrar útgáfur
af Yaris, hybrid og ekki hybrid
með bensínvélum frá 72 hestöflum
upp í 125 hestöfl, en bíllinn sem
prófaður var er með 125 hestafla
bensínvél og ekki með neitt
rafmagn til að hjálpa.
Hybrid Yarisinn er með 92
hestafla bensínvél og fer betur
með eldsneyti og sagður eyða
í blönduðum akstri 3,8 til 4,9
lítrum á hundraðið. Sá bíll er
aðeins dýrari í innkaupum og
örlítið þyngri.
Eini ókostur rafmagnsbílsins er
að hann má ekki draga þyngra en
450 kg á meðan hinir Yarisbílarnir
mega draga 850 kg kerru. Nánar
má fræðast um Toyota Yaris á
vefslóðinni www.toyota.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 960-1.180 kg
Hæð 1.500 mm
Breidd 1.745 mm
Lengd 3.940 mm
Helstu mál og upplýsingar
Yaris
Toyota Yaris. Myndir / HLJ
Fannst bíllinn sóða sig lítið út að aftan. 175 cm maður og ágætis pláss fyrir framan hné, sitjandi í aftursætinu.
Mín skoðun er að það eigi að banna innflutning á bílum með AUTO takka,
íslensk lög eru ekki í takt við þennan valkost.
Mjög sáttur við lokaniðurstöðuna á eyðslunni miðað við akstur í roki og
rigningu.
70,9 desíbel er með betri hávaða
mælingu sem ég hef áður gert á bíl
sem ég kalla smábíl.