Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 71
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 71
Í gegnum árin hef ég verið nei
kvæður út í stórar felgur og lág
dekk undir bílum, þ.e.a.s. dekk sem
eru með lágan prófíl og fjaðra lítið
sem ekkert í holum og ójöfnum, t.d.
hér í prófunarpistlunum mínum á
bílum á síðunni hér til hliðar þar
sem fjallað er um nýja bíla og tæki.
Það er engin furða að ég sé
neikvæður út í svona dekk, en
vegakerfið sem við búum við er ekki
„fýsilegt“ fyrir dekk með litla fjöðrun.
Það er vissulega fallegt fyrir augað
að sjá bíl á stórum felgum, en
fyrir mér er það bara fáránleiki
og heimska að stækka felgur
undir bílum á Íslandi í því „holu-
vegakerfi“ sem við búum við.
Hvað þýðir dekkjastærðin
undir bílnum?
Einhver fáránlegasta talnaruna
sem fyrirfinnst er heiti dekkja,
tökum dæmi:
• 225/50/18 (dekk sem ég
vil meina að eigi ekkert
erindi á íslenska vegi).
• 225 stendur fyrir 22,5 cm
breidd á dekki,
• 50 stendur fyrir 50%
af 22,5 cm sem er hæð
dekksins og myndi vera
11,25 cm. Það er ekki
mikil fjöðrun úr slíku
dekki.
• 18 er felgustærðin mæld í
tommum.
Sem sagt þrjár mismunandi tölur
lesnar út úr dekkja stærð = cm,
%, tommur, engin furða að fólk
átti sig ekki á hvað dekkjastærð
gengur út á.
Fyrir mér þá finnst mér aðalatriðið
að miðjutalan sé sem hæst. Það er að
segja að hæð dekksins frá felgu að
snertifleti við jörð sé sem mest og
fari helst aldrei niður fyrir 60% af
slitfleti dekks.
Ef við tökum jafn breitt dekk og
hér að ofan og segðum að það héti
225/75/18 þá værum við komin með
dekk sem væri komið í 16 cm hæð
frá slitfleti og að felgu. Slíkt dekk
gefur betri fjöðrun en fyrra dekkið
og hentar betur til að taka högg þegar
ekið er í holur og ójöfnur.
Líftími dekkja er ekki nema 6 ár
Flestir betri dekkjaframleiðendur
taka ábyrgð á sinni framleiðslu í
almennt nálægt 90 mánuði. Ekki
ósvipað og bílar sem eru með 3-7
ára ábyrgð. Eftir þann tíma eru dekk
farin að missa grip, bremsueiginleika
og annað sem þeim er ætlað að gera
þar sem að rakastig dekkja minnkar
með árunum.
Til að sjá hvað dekk er gamalt
eru flestir dekkjaframleiðendur með
framleiðsluviku og ár á hlið dekksins,
sporöskjulaga ramma með fjórum
tölustöfum. Fyrstu tveir tölustafirnir
eru vika ársins og seinni tvær er
ártalið. Þannig að ef á dekki stendur
0516 þá var dekkið framleitt í fimmtu
viku ársins 2016. Það er því orðið
meira en sex ára og ekki lengur í
ábyrgð frá framleiðanda. Flestir
dekkjainnflytjendur á Íslandi passa
upp á að svona gömlum
dekkjum sé fargað og þau
fari ekki í sölu.
Val á dekkjum getur
verið erfitt, en hvað viltu
að dekkið geri?
Flestir sem eru að kaupa
dekk hugsa fyrst og fremst
út í verð og endingu, en
nútímakröfur hjá mörgum
er að dekkin spari eldsneyti,
séu ekki hávaðasöm og
gefi gott grip í rigningu
og bleytu. Á límmiða utan
á dekkjum eru uppgefin
númer og bókstafir um
gæði dekkja við ofangreind
atriði og flokkast þannig
dekk í að vera A-, B- eða
C-dekk. Síðan eru það
rafmagnsbílarnir sem eru
almennt þyngri bílar en
hefðbundnir fólksbílar og
ættu að vera á sérstyrktum
„rafmagnsbíladekkjum“,
en þau dekk eru ekki
alls staðar til. Því þarf að
nota dekk sem oft þola
illa þann þunga sem er í
rafmagnsbílum. Þau endast
ekki eins vel, eyða meira rafmagni
og eru í meiri hættu á að höggvast í
sundur á hliðinni þegar ekið er í djúpa
holu eða á hvassa brún.
Hugsaðu vel um dekkin
og þá endast þau
Til að dekkin endist sem lengst þá
þarf að hugsa vel um þau. Réttur
loftþrýstingur er þar númer eitt.
Aldrei á að vera of lítill þrýstingur.
Betra að það sé 1-2 psi. of mikið
í dekkjunum. Í flestum bílum er
réttur loftþrýstingur uppgefinn í
hurðarfalsinu á bílstjórahurðinni.
Á örfáum bílum er þessi miði inni í
ytra bensínlokinu.
Gott ráð er að víxla fram- og
afturdekkjum á um 5.000 km
millibili. Persónulega reyni ég að fá
mér mjúk dekk sem gefa gott grip
við flestar aðstæður og heyrist ekki
hátt í. Ég víxla fram og aftur á um
2.000-5.000 km fresti, en mjúk dekk
með miklu gripi endast styttra og eru
oft að eyða aðeins meira af eldsneyti.
Það getur reynst erfitt að fá allt
fyrir ekkert, en ég kýs veggrip fram
yfir endingu.
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
SALLI TÍMABILS NÆPA SEFA HLJÓÐFÆRI VESÆL
SSKRÍN M Á H I R S L A SNEPLA
KLYGN Y R R NAUTNA-
LYF Ó P Í U M
EKVK NAFN L S FARMUR
SNJÁLDUR F E R M I
S VÍSA
ÁRSTÍÐ S T A K A BÖÐLAST Ð
EYÐA
DÓM-
GREIND
Í RÖÐ S A N S A R ELDI J TVEIR EINS
ROSA A A
DETTASNEIÐA
RÍ RÖÐ
MÁLMUR
A
S A M T TVÍHLJÓÐI
FORMA A U BYLGJAST Ý F A S T BALARÞÓ
A F N Á M EINÓMUR
FÁEINAR M Ó N Ó UMSTANG
MÁLREIF V A SNIÐUR-
FELLING
M M SVEIMA
ÆMT L Ó N A EFTIRSJÁ
HUGBOÐ I Ð R A S TTVEIR
EINS
H Á S PLAN
LOKKAR T O R G YRKJA
SVIPAN R Æ K T ARÁMUR
V UNGUN
AFGANGUR K L A K BLÓMI
SEPI R A U Ð A ÓSKIPU-
LAG M
E L R I STIRÐ-
BUSI K L U N N I EMJAN
HRÓPA Ó PTRÉ
R E I Ð FLANDUR R A N D SKART
TVEIR EINS N Æ L AILL
F
A
I
F
M
T
I
R
VARA
A
A
R
F
ATFERLI
U
R
R
Á
Ð
Ð
SAM-
STÆÐA
L
P
A
A
G
RLIPURÐ
HINDRAR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
171
SJÓÐA RÖST RÓGUR DAGSETUR ÁLÍTA DREIFT
TIL-
HÖGUNAR SÖGU
ÞYRFTI DREN
GORT
MÓÐGA
VITLEYSA
AÐ BAKI
HÓGVÆR
VÍÐÁTTA
BAND
DRYKKUR
TVEIR EINS
HEITI
ANNARS
KRYDDMYRKVAST
Í RÖÐ
BRODD
STING
VÍTA
LITÞROTA
TÓNN
RÍKI Í
AFRÍKU
PÍNU-
LÍTILLA
TITILL
FJAÐRA
GEGNSÆR
MISMUNUR
JARÐAR
DUND
ÞOKKA
MYNDABÓK
ÁVÖXTUR
FIKTATITILL
UNDIROKA
SIÐA
RUNNI
AMA
ÞANGAÐ
TIL
GARÐI
JARÐEFNI
GAUR
VEIKI
FLÍK
RÍKI Í
AFRÍKU
HVAÐ
FORSÖGN
UPP-
HRÓPUN
SKJÖGRA
SVENGJA
SJÚK-
DÓMUR
RÓMVERSK
TALA
TVEIR EINS
FÆÐA
MASAR
RÓLEGUR
HJÚPURSTIG
SKRAMBI
M
Y
N
D
:
G
A
B
R
IE
LE
K
O
TH
E-
H
EI
N
R
IC
H
(
CC
B
Y
-S
A
3
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
172
Árlegur vordekkjapistill
Ónýt felga sem á hafði verið mjög
lágt dekk og ekið var á stein, dekkið
var í lagi en felgan er ónýt og ekki
hægt að laga.
Fæðingarvottorð dekks, vika 5 árið
2016, of gamalt til að selja.
Fær einkunn C í sparneytni, B í bleytu og gefur 70db.
hávaða, en flokkast í A flokk dekkja samt.