Skessuhorn - 04.04.2022, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 202236
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Pennagrein
Lengi hefur verið stundaður öfl
ugur landbúnaður í Borgarbyggð
þó svo á seinni árum hafi hann
breyst mikið, búin hafa stækk
að og þeim fækkað. Með breyttri
heimsmynd á síðustu árum og vik
um, eiga klárlega eftir að verða enn
meiri breytingar t.d. meiri krafa
um sjálfbærni þ.e.a.s með aukinni
framleiðslu á korni, höfrum, repju,
grænmeti og ávöxtum. Með öll
um þeim jarðgæðum (hita og landi)
sem í sveitarfélaginu er þá eru mörg
tækifæri á þessum sviðum.
Áhugi ungs fólks á því að flytja
aftur heim eftir nám hefur aukist,
þetta fólk sækir síðan vinnu annað.
Til þess að við getum boðið þessu
fólki að grípa öll þau tækifæri sem
dreifbýlið býður upp á þurfa inn
viðir samfélagsins að vera í lagi og
þjónustan að vera þar sem hennar
er þörf.
Góðir grunn og leikskólar eru
lykillinn að því að barnafjölskyld
ur sækist eftir að flytja í sveitarfé
lagið okkar. Við erum mjög lánsöm
að vera með mjög hátt menntun
arstig kennara sem kenna við okk
ar skóla, bæði á grunn og leik
skólastigi en þar megum við hvergi
slaka á. Á síðasta kjörtímabili hefur
verið framkvæmt mikið við skóla
byggingarnar, bæði byggt nýtt og
bætt við. Þar erum við á réttri leið
og ætlum okkur að halda því áfram
á næstu árum. Þetta er gríðarlega
mikilvægt til þess að bæði nemend
um og starfsfólki líði vel í leik og
starfi. Einnig eru tómstundir barna
og unglinga mikilvægur þáttur
og hefur sveitarfélagið í samstarfi
við Samtök sveitarfélaga á Vestur
landi og Menntaskóla Borgarfjarð
ar gert samning við strætó um tóm
stundaakstur í Borgarfjarðarhéraði
sem tryggir mjög bætta þjónustu
við þá sem þar búa. Annars staðar
í sveitarfélaginu er unnið að lausn
um til þess að koma til móts við
börn og foreldra. Við í Sjálfstæð
isflokknum viljum gera þeim for
eldrum sem þurfa að keyra börn sín
i tómstundir langt að og geta ekki
nýtt tómstundaakstur, kost á því að
sækja um fjárstyrk til sveitarfélags
ins. Er þetta gert til að jafna stöðu
og aðgengi barna sveitarfélagsins
að íþrótta og tómstundastarfi.
Í mörgum verkefnum sem þarf
að keyra áfram í dreifbýlinu hefur
sveitarfélagið ekki öll spil á hendi
og því er mikilvægt að horfa áfram
til samstarfsverkefna og að nýta
samlegð með t.d. Rarik og Vega
gerð þar sem það er mögulegt.
Síðastliðin fjögur ár hafa jákvæð
ir hlutir gerst, sveitarfélagið er að
leggja ljósleiðara og á það verk
efni að klárast þessu ári. Þetta gjör
breytir möguleikum fólks að geta
unnið meira heima við. Eins þá að
stunda nám og allt það sem alnetið
býður uppá. Árið 2021 var farið í að
leggja þriggja fasa rafmagn í hluta
af sveitarfélaginu og nýtt ákveðin
samlegð með verkefni sveitarfé
lagsins með lagningu ljósleiðara og
getum við tekið þetta verkefni sem
fyrirmynd um hvernig við getum
bætt samfélagið. Þó svo að þetta
hafi verið mikill áfangi, þá verðum
við að halda áfram að þrýsta á Rarik
að halda þessu verkefni áfram. Við
vitum að þarna eru mikil tæki
færi fyrir alls konar uppbyggingu
í dreifbýlinu t.d. smáiðnað í dreif
býlinu. Það er klárlega víða þekk
ing og reynsla til að stofna smáfyr
irtæki en eitt af því sem staðið hef
ur þeirri uppbyggingu til þrifa er að
þriggja fasa rafmagn hefur ekki ver
ið til staðar. Einnig er uppbygging
í ferðaþjónustu og tala nú ekki um
þá framtíðarsýn að við munum öll
keyra á rafmagnsbílum eftir nokkur
ár, og til þess þurfum við að fjölga
hleðslustöðvum.
Ferðaþjónusta í Borgarbyggð
hefur á síðustu árum aukist gríðar
lega mikið og enn eru mörg tæki
færi þar. Eitt mikilvægasta í því að
fá ferðamenn í héraðið er að bæta
samgöngur og til þess þurfum við
að tala einni röddu og pressa á rík
ið að auka fjármagn til okkar. Við
erum með mikið magn tengivega í
sveitarfélaginu og hefur undanfarin
ár verið sett meira fjármagn í þá, en
það þarf að auka það enn meir t.d.
á Mýrunum, þar sem við erum með
mörg stór kúabú og þar af leið
andi mikla þungaflutninga. Nátt
úruperlur eru margar á þessu svæði
og saga landsins á hverju strái sem
gerir þessar slóðir vinsælar. Að síð
ustu er ekki hjá því komist að fjöldi
barna sem eru búsett á svæðinu
þurfa að hossast í skólabílum alla
daga á ónýtum vegum. Þetta viljum
við bæta.
Fjarskipti eru víða í ólestri í
sveitarfélaginu og nú síðast í mars
voru lagðar niður gömlu kopar
símalínurnar. Þetta þýðir að víða til
sveita eru menn háðir því að standa
og sitja á á réttum stað þegar þarf
að grípa símann til að hringja t.d.
í 112 þegar slys, eldur eða eitthvað
enn verra dynur á, vegna þess að
gsm samband er mjög dapurt og
jafnvel ekkert. Þar af leiðandi er
öryggi við íbúa og ferðamenn víða
mjög ábótavant. Þarna er verk að
vinna og taka þarf samtalið við fjar
skiptafélögin og ríkið.
Við viljum sjá að vegur um Uxa
hryggi verði kláraður og með því
bætt vegtenging við Suðurland,
koma nýjum vegi og brú á Hvítá
við Stafholtsey á vegaáætlun og
með því verði enn betri tenging
innan sveitarfélagsins og þannig
getum við nýtt innviði sveitarfé
lagsins betur í nánustu framtíð. Við
ætlum að þrýsta á að Heydalsvegur
verði lagaður og lagt á hann slitlag.
Þessi vegur er og verður gríðar
lega mikilvægur fyrir tengingu við
Dalina, Vestfirði og ekki síst Norð
urland. Þetta kom berlega í ljós í
vetur þegar bæði Holtavörðuheiði
og Brattabrekka voru illfær, þá er
þessi vegur fær.
Við erum gott samfélag og við
viljum öll gera það betra, horfum
til framtíðar og nýtum þau tæki
færi sem klárlega eru til staðar fyr
ir Borgarbyggð. Tækifæri til fram
tíðar.
Kristján Ágúst Magnússon, í
fimmta sæti fyrir Sjálfstæðismenn í
Borgarbyggð
Sigurjón Helgason, í þrettánda sæti
fyrir Sjálfstæðismenn í Borgarbyggð
Bætum búsetuskilyrðin í dreifbýlinu