Skessuhorn - 04.04.2022, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 29
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Það eru margir fallegir og áhuga
verðir staðir til að leika sér með
myndavélar á Akranesi og þetta
er einn af þeim. Guðmundur St.
Valdimarsson ljósmyndari smellti
þessari mynd af Höfrungi AK
91 á sunnudagskvöldið. Þetta er
fyrsta skipið sem smíðað var fyr
ir Harald Böðvarsson á Akranesi.
Það var gert árið 1955 og hef
ur skipið mikla sögu að segja. Nú
stendur Höfrungur gamli fremur
umkomulaus á klettunum utan við
skipasmíðastöðina. Guðmundur
getur þess að mikið væri nú gaman
ef það yrði aðeins tekið til í kring
um skipið og ýmsu járni sem þarna
er komið fyrir á einum stað svo
betra væri að fanga mótífið. „Er
ekki annars korter í kosningar,“
spyr hann.
mm/ Ljósm. gsv
Dagur er að kveldi kominn
Eitt af mínum hjartans málum, sem
ég tel þörf á að ræða, er staða mála
hjá Heilsugæslunni okkar í Borg
arnesi. Þar eigum við frábært starfs
fólk sem leggur sig allt fram um
að veita góða þjónustu. En það er
ekki nóg því ef ekki tekst að manna
sumar stöður nema um stundarsak
ir þá þurfa hinir að hlaupa hraðar.
Heilbrigðisþjónusta í Borgar
byggð er grunnurinn að öryggis
neti íbúanna. Einnig er mikil
vægt að aðrir þeir sem eiga ferð
um sveitarfélagið eða dvelja þar
um skemmri hríð geti treyst á
öryggisnetið þegar þeir þurfa á
því að halda. Fólksfjöldi marg
faldast í héraðinu yfir sumartím
ann og einnig flestar helgar. Það er
ekki tekið með í reikninginn þegar
fjöldi stöðugilda er ákveðinn. Ákall
um ríkari þjónustu hefur lengi ver
ið upp á borðinu og verður það eitt
af forgangsmálum á komandi kjör
tímabili hjá okkur í Framsókn.
Heilsugæslan í öndvegi
Við þurfum aukna viðveru
heilsugæslulækna, til að sinna þeim
sem sækja þjónustu á heilsugæslunni
í Borgarnesi. Það er illa þolandi að
þurfa jafnvel að bíða í tvær til fjór
ar vikur eftir tíma hjá heilsugæslu
lækni þegar eitthvað bjátar á. HVE
þarf að tryggja að það séu fleiri
en einn læknir búsettur í Borgar
byggð til þess að stöðugleiki komist
á í heilbrigðisþjónustu við íbúana.
Þetta þýðir að sveitarstjórn Borg
arbyggðar þarf að taka upp samtal
við HVE og ríkisvaldið til að tak
ast á við þetta verkefni. Við þurfum
að fá úrbætur í þessum málaflokki
en á sama tíma þurfum við að horfa
víðar yfir sviðið í allri þjónustu við
íbúa og sér í lagi eldra fólk.
Við viljum hjálpa afa og
ömmu að vera lengur
heima
Áskoranir varðandi eldra fólk
eru sífellt að aukast í okkar samfé
lagi. Meðalaldur er að hækka og á
næstu árum er sífellt stærri hópur
sem er að komast á eftirlaun og þarf
á þjónustu að halda. En hvernig
leysum við þann vanda? Ein leiðin
er að styðja vel við okkar ágæta
dvalarheimili Brákarhlíð sem hef
ur unnið frábært starf á undanförn
um áratugum, en við þurfum fleiri
úrræði og leiðir til að ná settum
markmiðum.
Aukin hreyfing og efling lýð
heilsu eldra fólks, bætir lífsgæði og
hjálpar þessum hópi að vera lengur
án þess að þurfa að nýta sér hjúkr
unar eða dvalarrými sem eru dýr
og af skornum skammti.
Með fjarlækningum, aukinni
utanspítalaþjónustu og tæknivæð
ingu samhliða heimaþjónustu er
hægt að hafa mun betri stuðning
við þennan hóp og þar viljum við
vera í fararbroddi. Það er ekki nóg
að vilja hafa fólk sem lengst heima
það verður að gera fólki það kleift á
sínum forsendum.
Við viljum móta stefnu til þess að
hjálpa afa og ömmu að vera lengur
heima. Stefnu þar sem við tvinn
um saman þá þjónustu sem er í dag,
utanspítalaþjónustu hins opinbera
og með tæknilausnum sem virka.
Við þurfum að setja í algjöran for
gang að geðheilbriðgisþjónusta fyr
ir alla aldurshópa sé alltaf aðgengi
leg. Við sem skipum lista Fram
sóknar í Borgarbyggð viljum veg
Heilsugæslunnar sem mestan og
bestan.
Bætt heilbrigðisþjónusta er for
gangsmál okkar allra.
Sigrún Ólafsdóttir
Höfundur skipar 5. sæti Fram-
sóknarflokksins í Borgarbyggð.
Heima í
Borgarbyggð
Ég hef verið með lögheimili í Borg
arfirðinum svo til allt mitt líf. Ég er
alinn upp í Hálsasveit, en hef búið
í Reykholtsdalnum síðan ég settist
varanlega að aftur í Borgarfirðinum
2012. Kvæntur Vigdísi Sigvalda
dóttur kennara og saman eigum
við 5 börn. Ég er verkfræðimennt
aður og hef starfað hjá Norðuráli
sem sérfræðingur í kerskála en síð
ustu ár sem vaktstjóri. Ég býð mig
fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn til
komandi sveitarstjórnarkosninga í
Borgarbyggð.
Borgarbyggð er í þeirri einstöku
stöðu að geta boðið upp á búsetu
kosti við svo til allra hæfi; Borg
arnes, Hvanneyri, Varmaland,
Reykholt, Bæjarsveit og Klepp
járnsreykir og svo dreifbýlið allt.
Það ættu allir að geta unað hag sín
um vel hér.
Ég vil líka sjá að skipulagðar séu
stórar lóðir í dreifbýlinu þar sem
fólk getur verið með hesthús eða
vélaskemmu á sinni lóð, hvort sem
er til afþreyingar eða í atvinnuskyni.
Það sem brennur þó helst á mér
er að skipulagsmál séu einfölduð
til muna. Hið opinbera verður að
treysta einstaklingum til athafna.
Það stendur uppbyggingu fyrir
þrifum hversu flókið er að komast
af stað. Sveitarfélagið á að einfalda
sín skipulagsmál eins og lög leyfa
og krefja ríkisvaldið frekari úrbóta
og einföldunar þar sem lagaramm
inn aftrar sveitarfélaginu þess að
veita íbúunum frelsi.
Einfalt og augljóst dæmi er að
landeigendur í dreifbýli ættu að
hafa um það mun frjálsari hend
ur hvernig þeir ráðstafa sínu landi,
án þess að nokkur yfirföld þurfi að
koma þar að.
Við þurfum líka að stýra fram
kvæmdum á vegum sveitarfélags
ins betur og halda vel utan um fjár
muni íbúanna. Á lista Sjálfstæðis
flokksins er að finna fólk með góða
reynslu af framkvæmdum og fáum
við umboð til, þá munu kjósendur
sjá enn betur farið með sitt skattfé.
Það eru allir sammála um að
framundan sé vaxtarskeið í Borg
arbyggð. Kjósendur þurfa því að
gera það upp við sig, hverjir séu lík
legastir til þess að stýra þeim vexti
þannig að hagur okkar allra verði
sem bestur. Við því er svarið í mín
um huga augljóst, kjósum Sjálf
stæðisflokkinn þann 14. maí, X við
D.
Bjarni Benedikt Gunnarsson
Höf. skipar 11. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Borgarbyggð
Kjósum uppbyggingu
Nú er liðið á annað ár síðan yfir
völd í Borgarbyggð (slökkviliðs
stjóri, byggingarfulltrúi og sveitar
stjórn) úthýstu starfsemi Fornbíla
fjelagsins í Brákarey (FBF). Frestur
til að tæma húsnæðið var gefinn til
15. maí nk. Að öðru leyti er okkur
meinaður aðgangur að okkar leigu
aðstöðu nema rétt að skjótast inn
með sérstöku leyfi forstöðumanns
áhaldahúss bæjarins. Slíkt geng
ur auðvitað ekki til lengdar að bíl
ar, tæki og búnaður sé í vanhirðu
þar sem aðgangsheimildir okkar ná
ekki til neinna athafna innanhúss.
Stóru mistök sveitarstjórnarinnar
voru að beita svo fyrirvaralausum
og harkalegum aðgerðum gagn
vart leigutökum í gamla sláturhús
inu og fjárréttarskemmunni í Brák
arey sem raun bar vitni um. Engin
minnsta tilraun var gerð til samtals
um hvernig mætti bæta úr aðfinnsl
um og ábendingum eftirlitsaðila.
Hvað varðar þá aðstöðu sem FBF
hefur í kjallara sláturhússins var
það minni háttar, sem félagið hefði
tekið á sig að laga. Slökkviliðsstjóri
hefur síðar samsinnt því að ef svo
yrði gert með fullnægjandi hætti þá
mætti opna fyrir starfsemi félagins
þar enda væri aðstaðan þá sem
lokaður hellir frá öðrum hlutum
hússins. Viðbrögð sveitarstýru voru
þau að það væri ekki hægt, því þá
yrði að hleypa öðrum leigjendum
inn. Skrýtin viðbrögð það. Þetta
er hið eina samtal sem fengizt hef
ur um möguleika á að halda uppi
starfseminni í gamla sláturhúsinu.
Allt annað samtal hefur snúizt um
að leysa úr vandræðum leigjend
anna með öðrum hætti annars stað
ar og gengið misjafnlega. Starfsemi
FBF t.d. verður ekki flutt til í hand
farangri.
Þegar stjórn FBF barst tilkynn
ing sveitarstjórnar um riftun leig
usamningsins s.l. haust var leit
að lögfræðilegs álits á þeirri gerð.
Niðurstaðan var sú að líkur væru
FBF mjög í hag ef málið færi fyr
ir dóm en næsta víst að ekki yrði
staðar numið við fyrsta dómstig
af hálfu sveitarstjórnar á meðan
niðurstaða væri henni í óhag. Slík
niðurstaða dygði þó ekki til þess
að FBF endurheimti húsnæðið.
Dómur um ólögmæti riftunarinn
ar myndi hins vegar styrkja bóta
kröfugerð félagsins. Stjórn FBF
hefur enga löngun til slíkra dóms
stólastimpinga né heldur að félag
ið hafi fjárhagslega burði til þess.
Sveitarstjórn hefur viðurkennt
bótaskyldu sveitarfélagsins en frá
leitt er að tilboð um afhendingu
réttarskemmunar komi þar upp á
móti; síður en svo. Sveitarstjórn
hefur látið dæma skemmuna ónýta
og 200 mkr. þarf til að rífa hana
og byggja nýja skv. Verkís verk
fræðistofu ehf. Jafnvel bjartsýnustu
væntingar um bótagreiðslur nægja
ekki FBF til að ráðast í slíka fram
kvæmd. Fjárhagur félagsins leyfir
ekki slíkt. Því er að óbreyttu fyrir
sjáanlegt að innan skamms verðum
við á götunni með starfsemi félags
ins og samgönguminjasafnsins. Tal
um að félagið sé að fara að opna
safnið í sumar er byggt á einhverj
um misskilningi og ekki frá okkur
komið. Þvert á móti eru áform FBF
um samgöngusafn í Borgarnesi
í algjöru uppnámi og kannski úr
sögunni fyrir fullt og fast. En ef til
vill er England víðar að finna en í
Kaupmannahöfn eins og fullyrt var
eitt sinn.
Leigusamningurinn sem FBF
gerði við Borgarbyggð 2018 var
til ársins 2035. Af hálfu FBF var
horft til þess að geta byggt upp
framtíðarsjóð til framkvæmda eða
kaupa á húsnæði í fyllingu tímans.
Mikið hefur verið gert úr hinum
langa gildistíma innan ráðhússins
og jafnvel talin óhæfa. En þá er
ekki gætt að því að í samningnum
var gert ráð fyrir möguleika til upp
sagnar árið 2025 eða síðar ef þær
aðstæður kæmu upp svo sem veru
legar skipulagsbreytingar á þeim
lóðum sem umræddar byggingar
standa á. Þá skyldi fyrst leita leiða
til samkomulags við leigutaka en
ella gæti leigusali sagt samningnum
upp einhliða. Verri enn svo er þessi
samningur ekki fyrir sveitarfélagið.
Árið 2025 er í sjónmáli. Það renn
ur upp um mitt næsta kjörtímabil
verðandi sveitarstjórnar. Enn
þá örlar ekki á skipulagsbreyting
um í Brákarey né hugmyndum í þá
veru, hvað þá um slípun á „dem
antinum.“ Ef sveitarstjórnin hefði
virt þetta uppsagnarákvæði í anda
þess sem að baki bjó hefði hún átt
möguleika á að segja samningnum
upp með sæmd.
Jón G. Guðbjörnsson
Höf. er stjórnarmaður í Fornbíla-
fjelagi Borgarfjarðar
Brákarey og
Fornbílafjelagið
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is