Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 13
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 125
R A N N S Ó K N
drep, heilablóðfall, æðatengdir fylgikvillar og fylgikvillar tengdir
TAVI-loku, þar á meðal hjartaþelsbólga (endocarditis), blóðsega-
rek og vanstarfsemi gerviloku. Hluti breytanna var færður inn í
SwedeHeart-gagnagrunninn í aðgerðinni en öðrum breytum var
bætt við í þessari rannsókn.
Meðal eftirfylgnitími var 2,4 ár (bil 0-7,8) en samtals náði eft-
irfylgd 444 sjúklingaárum. Tölfræðiúrvinnsla var gerð í tölfræði-
forritinu R, útgáfu 3.6.2 (R Foundation for Statistical Computing,
2016). Samfelldar normaldreifðar breytur eru gefnar upp sem
meðaltöl með staðalfráviki eða miðgildi með bili. Flokkabreytur
eru birtar sem fjöldi með tiltekið gildi. Heildarlifun var reiknuð
með aðferð Kaplan-Meier og lifun íslensks viðmiðunarhóps af
sama kyni og sama aldri metin með upplýsingum frá The Human
Mortality Database.20 Samanburður á lifunarkúrfum var gerður
með log-rank prófi. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi
<0,05.
Niðurstöður
Alls gengust 189 sjúklingar undir TAVI-aðgerð á tímabilinu, 110
karlar (58,2%) og 79 konur (41,8%). Meðalaldur sjúklinga var 83 ±
6 ár (bil 67-93 ára). Að meðaltali voru gerðar 24 aðgerðir á ári (bil
9-37) á tímabilinu 2012 til 2019 (mynd 1), en fyrstu 7 mánuði ársins
2020 var gerð 21 aðgerð.
Tafla I sýnir lýðfræðilega þætti sjúklings, fyrri heilsufars-
sögu og aðra bakgrunnsþætti. Samtals reyndust 81,5% sjúklinga í
NYHA flokki III-IV og miðgildi EuroSCORE-II var 4,9 (bil 0,9-32).
Rúmlega helmingur sjúklinga (51,3%) hafði sögu um kransæða-
sjúkdóm, 60,8% háþrýsting og um fjórðungur (27,0%) gáttaflökt.
Útæðasjúkdómur var til staðar í 13,2% tilfella, tveir sjúklingar
(1,1%) höfðu postulínsósæð, rúmlega fimmtungur (21,7%) hafði
áður farið í opna hjartaaðgerð og þriðjungur (33,3%) í kransæða-
víkkun. Tæplega fjórðungur sjúklinga (23,3%) var með ígræddan
varanlegan gangráð fyrir aðgerð og tveir (1,6%) höfðu gengist undir
belgvíkkun á ósæðarloku. Hlutfall sjúklinga sem höfðu langvinna
lungnateppu samkvæmt öndunarmælingum (FEV1/FVC <70%) var
24,3% en af þeim var aðeins helmingur með greindan langvinnan
lungnasjúkdóm í sjúkraskrá. Sykursýki höfðu 19,6% sjúklinga og
23,2% nýrnabilun fyrir aðgerð. Hrumleiki metinn af hjartalækni
var til staðar í 22,2% tilfella og að meðaltali gátu sjúklingar gengið
310 ± 110 metra (bil 0-590) á 6 mínútum. Nt-proBNP mældist með
miðgildi 1100 ng/L (bil 33-18000).
Niðurstöður hjartaómskoðunar fyrir TAVI-aðgerð eru sýndar í
töflu II. Alls höfðu 13 sjúklingar (6,9%) tvíblöðku ósæðarloku. Mælt
lokuflatarmál var að meðaltali 0,67 cm2 og hámarks þrýstings-
fallandi yfir ósæðarlokuna að meðaltali 78 ± 23 mmHg. Helmingur
sjúklinga (51,9%) hafði eðlilegt útfallsbrot vinstra slegils (>50%) en
6,3% verulega skert útfallsbrot (<30%). Rúmlega helmingur (54,5%)
sjúklinga var með vægan ósæðarlokuleka, 12,7% með meðal leka en
einn sjúklingur (0,5%) alvarlegan leka. Stærð gerviloku var að með-
altali 29,5 mm (bil 23-34). Helmingur sjúklinga fékk 29 mm loku, um
fimmtungur 26 mm loku og sama hlutfall 34 mm loku.
Niðurstöður hjartaómskoðunar mánuði eftir aðgerð má sjá
í töflu III. Hámarks þrýstingsfallandi var að meðaltali 14 ± 7,3
mmHg. Samtals höfðu 61,4% sjúklinga eðlilegt útfallsbrot (>50%)
og 2,6% verulega skert útfallsbrot (<30%). Vægur randstæður
Tafla I. Bakgrunnsþættir sjúklinga. Gefinn er upp fjöldi (%), meðaltal ±
staðalfrávik eða miðgildi (bil).
(n=189)
Aldur 83 ± 6
Kvenkyn 79 (41,8)
Líkamsþyngdarstuðull [kg/m2] 28 ± 11
NYHA flokkuna
I 5 (2,6)
II 18 (9,5)
III 122 (64,6)
IV 32 (16,9)
EuroSCORE IIb 4,9 (0,9 - 32)
Kransæðasjúkdómur til staðar 97 (51,3)
Fyrri opin hjartaaðgerð 41 (21,7)
Fyrri kransæðavíkkun 63 (33,3)
Saga um heilablóðfall 21 (11,1)
Útæðasjúkdómur 25 (13,2)
Postulínsósæðc 2 (1,1)
Háþrýstingur 115 (60,8)
Gáttaflökt 51 (27,0)
Varanlegur gangráður 44 (23,3)
Saga um krónískan lungnasjúkdóm 24 (12,7)
FEV1 /FVC < 0,70d 46 (24,3)
Sykursýki 37 (19,6)
Langvinn nýrnabilun 43 (23,2)
Hrumleiki til staðare 42 (22,2)
Göngupróf (m/6min)f 310 ± 110
Blóðrauði (g/L) 129 ± 16
Se-kreatínín (µmol/L) 114 ± 50
Se-Nt-proBNPg (ng/L) 1100 (33-18000)
aUpplýsingar um NYHA-flokk vantaði hjá 12 sjúklingum. bUpplýsingar um EuroSCORE II vantaði
hjá 53 sjúklingum. cUpplýsingar um postulínsósæð vantaði hjá 15 sjúklingum. dLungnateppa
á öndunarmælingum var skilgreind sem FEV1 /FVC undir 70%. Niðurstöður öndunarmælinga
vantaði hjá 21 sjúklingi. eUpplýsingar um hrumleika vantaði hjá 12 sjúklingum. fNiðurstöður úr
gönguprófi vantaði hjá 71 sjúklingi. gUpplýsingar um Se-Nt-proBNP vantaði hjá 5 sjúklingum.
Mynd 1. Árlegur fjöldi sjúklinga sem fór í TAVI-aðgerð á Landspítala 2012-2019. Sjúk-
lingar sem gengust undir aðgerðina á fyrri hluta ársins 2020 (n=21) eru ekki sýndir á
myndinni.