Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2021, Side 15

Læknablaðið - 01.03.2021, Side 15
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 127 R A N N S Ó K N fylgikvilla en einnig reyndist 30 daga dánarhlutfall lágt (1,6%) og heildarlifun sambærileg við íslenskt viðmiðunarþýði af sama kyni og aldri. Ísetning varanlegs gangráðs eftir TAVI-aðgerð var þó tíð (26,5%) en í samræmi við erlendar rannsóknir þar sem einnig var notuð sjálfþenjandi gerviloka (17,4-25,9%).12,14 Við mat á gangráðsí- setningu er notast við ákveðin viðmið um leiðslutruflanir eft- ir TAVI.21 Sjúklingar í okkar rannsókn voru ívið eldri en í sam- bærilegum erlendum rannsóknum og auk þess eru sjúklingar með miklar kalkanir í vinstri útstreymisrás oft útilokaðir frá þátttöku, en það eykur líkur á gangráðsþörf eftir aðgerðina. Flestir sjúk- linganna höfðu flókna heilsufarssögu auk ósæðarlokuþrengsla en þeir sem voru undir áttræðu höfðu iðulega sögu um alvarlega sjúkdóma eða höfðu áður gengist undir opna hjartaaðgerð. Einnig er áberandi hversu mikil einkenni sjúklingarnir höfðu en 81,5% samanburði við íslenskt viðmiðunarþýði af sama kyni og sama aldri. Einu ári frá aðgerð reyndist lifun 93,5% (95% ÖB: 89,8-97,3) og ekki reyndist marktækur munur á heildarlifun TAVI-sjúk- linga og viðmiðunarhóps á fyrstu fjórum árum frá TAVI-aðgerð (p=0,232, log-rank próf). Umræður Þessi afturskyggna rannsókn lýsir árangri allra TAVI-aðgerða sem framkvæmdar hafa verið á Íslandi. Í ljós kemur að árangur aðgerð- anna er góður, bæði með tilliti til alvarlegra fylgikvilla innan 30 daga og heildarlifunar fyrstu árin eftir aðgerð. Árangur TAVI-aðgerða á Íslandi er sambærilegur við helstu erlendar rannsóknir (tafla V). Þetta á við um tíðni alvarlegra Tafla V. Samanburður við helstu erlendu rannsóknir á TAVI-aðgerð með sjálfþenjandi gerviloku. Gefið er prósentu- hlutfall eða meðaltal ± staðalfrávik. Reardon, et al. 201712 (n=864) Popma, et al. 201914 (n=1403) Adams, et al. 201411 (n=795) Þessi grein, 2021 (n=189) Tegund loku Medtronic (Corevalve® og Evolut R®) Medtronic (Corevalve®, Evolut R® og PRO®) Medtronic (Corevalve®) Medtronic (Corevalve®, Evolut R® og PRO®) Meðalaldur, ár 80 ± 6,2 74 ± 5,8 83 ± 7,1 83 ± 5,9 NYHA III-IV 60,2 25,1 85,7 81,5 Áhættuskor (meðaltal) 11,9 ± 7,6 (logEuroSCORE) 1,8 ± 0,7 (STS skor) 17,7 ± 13,1 (logEuroSCORE) 6,9 ± 5,5 (EuroSCORE II) 30 daga dánarhlutfall 2,2 0,5 3,3 1,6 1 árs dánarhlutfall 6,7 2,4 14,2 6,5 Mikill randstæður leki 3,4 3,4 7,8 0,5 Heilablóðfall <30 daga 3,4 0,5 4,9 2,6 Alvarlegir æðatengdir fylgikvillar <30 daga 6,0 3,8 5,9 1,6 Ísetning varanlegs gangráðs 25,9 17,4 19,8 26,5 Mynd 2. Heildarlifun sjúklinga (Kaplan-Mei- er) sem gengust undir TAVI-aðgerð (rauða lína, en gráa svæðið sýnir 95% öryggisbil), samanborið við íslenskt viðmiðunarþýði af sama kyni og sama aldri (svört lína). Neðst á myndinni er sýndur fjöldi TAVI-sjúklinga í áhættu á hverjum tíma.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.