Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Síða 16

Læknablaðið - 01.03.2021, Síða 16
R A N N S Ó K N 128 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 höfðu mæði flokkaða í NYHA flokki III eða IV. Þetta endurspegl- ast einnig í háum Se-Nt-proBNP-gildum (miðgildi 1100 ng/L) fyrir ísetninguna en há gildi samræmast hjartabilun. Rannsóknin tekur til allra sjúklinga sem gengust undir að- gerðina hérlendis fremur en til sérstakra áhættuhópa. Þannig voru í þýðinu bæði óskurðtækir sjúklingar, sjúklingar í mikilli áhættu (EuroSCORE-II >8%) og sjúklingar í meðal áhættu (EuroSCORE-II 4-8%).22 Þar að auki voru sjúklingar í lítilli áhættu (EuroSCORE <4%) en margir þeirra voru þátttakendur í framskyggnri slembi- rannsókn sjúklinga yngri en 75 ára með ósæðarþrengsl, NOTION II, sem Landspítali tekur þátt í. Hafa ber í huga að áhættuskor, eins og EuroSCORE-II, eru takmörkunum háð og taka til að mynda ekki til ýmissa alvarlegra sjúkdóma eins og postulínsósæðar, gigt- sjúkdóma og ónæmisbælingar en þeir auka áhættu í bæði TAVI og opnum ósæðarlokuaðgerðum. Eftir TAVI-aðgerð mátti sjá bæði bætta starfsemi ósæðarlokunn- ar og hjartans þar sem hámarks þrýstingsfallandi lækkaði úr 78 mmHg niður í 14 mmHg, sem ekki er teljandi ósæðarlokuþrengsl. Auk þess reyndist útfallsbrot eðlilegt hjá 61,4% sjúklinga miðað við 51,9% fyrir aðgerð. Algengt var að sjúklingar hefðu vægan rand- stæðan gervilokuleka (75,1%) en 2,6% höfðu meðal leka og einn sjúklingur (0,5%) var með alvarlegan leka sem leiddi til hjarta- bilunar. Í erlendum rannsóknum þar sem notuð var sjálfþenjandi gerviloka er hlutfall vægs leka á bilinu 70,2% til 74,2% og alvarlegs leka á bilinu 0,1% til 1,7%.11, 12 Endurbætt hönnun TAVI- loka sem notaðar eru í dag hefur minnkað randstæðan leka.23 Þannig er hægt að endurstaðsetja lokuna áður en hún er losuð ef staðsetning er ófullnægjandi (Evolut R®/Evolut PRO®). Auk þess hafa flestar lokurnar viðbótarþéttingu að neðanverðu til að minnka randstæð- an leka meðfram lokunni (Evolut PRO®) en hann er talinn geta aukið hættu á gangráðsísetningu eftir aðgerð.24 Hlutfall sjúklinga sem létust innan 30 daga (1,6%) reyndist lágt samanborið við erlendar rannsóknir12,25 og lægra en í ís- lenskri rannókn á opnum ósæðarlokuskiptum (5,4%).6 Alvarleg- ir fylgikvillar voru sjaldgæfir en meðal þeirra voru meiriháttar æðatengdir fylgikvillar, lífshættulegar blæðingar, heilablóðfall og hjartadrep. Hjartaþröng mátti rekja til gangráðs- eða stýrivíra sem notaðir eru í aðgerðinni og ollu rifu á hjartavegg. Annaðhvort var gert við rifuna í opinni hjartaaðgerð eða dreni komið fyrir í gollurshúsinu á þræðingarstofu en eitt andlát innan 30 daga mátti rekja til þessa. Æðatengdir fylgikvillar voru í flestum tilfellum minniháttar, tengdir æðalokun eftir náraslíður. Þrír sjúklingar fengu meiriháttar æðatengda fylgikvilla. Bráður nýrnaskaði mældist aðeins hjá 5,8% sjúklinga, hann var oftast vægur og enginn sjúklingur þurfti nýrnaskilun. Einn sjúklingur fékk þó tímabundið alvarlega bráða nýrnabilun ( Se-kreatínin >3x grunngildi) sem lagaðist. Lifun ári eftir aðgerð reyndist 93,5%, sem verður að teljast hátt hlutfall fyrir svo aldraða sjúklinga og sambærilegt við helstu rannsóknir erlendis (tafla V). Ekki reyndist marktækur munur (p=0,23, log-rank próf) á heildarlifun TAVI-sjúklinga samanborið við viðmiðunarþýði. Þó verður að hafa í huga að meðaleftirfylgd var aðeins rúm tvö ár. Ljóst er að TAVI-aðgerðum mun fjölga hér á landi og allt útlit fyrir að sú þróun muni halda áfram vegna hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar, ekki síst ef ábendingar víkka og fjármagn fæst til fleiri aðgerða. Rannsóknir sem einblína á sjúklinga í lágri áhættu hafa sýnt góðan árangur, jafnvel betri en hjá sjúklingum sem gangast undir opin ósæðarlokuskipti.26 Hins vegar er tíðni gangráðsísetn- ingar hærri en eftir opnar aðgerðir og eftirfylgdartími eftir TAVI í þessum rannsóknum er styttri en eftir opin lokuskipti.13 Fram til þessa virðist þó ekkert benda til annars en að ending TAVI-loka sé jafngóð og fyrir hefðbundnar lífrænar gervilokur.13,16 Áður en hægt er að mæla með notkun TAVI fyrir þorra sjúklinga undir 75 ára aldri og í lítilli áhættu þarf að kanna betur endingartíma gervilokanna sem notaðar eru í TAVI-aðgerðum og er fjöldi slíkra rannsókna í gangi.17 Einnig er mikilvægt að hafa í huga að yngri sjúklingar hafa oft tvíblöðkuloku þar sem árangur TAVI-aðgerða er síðri og aðgengi að kransæðum er erfiðara ef stoðnet lokunnar liggur yfir kransæðaropum. Líklegra er að ungir sjúklingar þurfi seinna á ævinni að fara í fleiri en eina lokuaðgerð og þá getur ver- ið heppilegra að fyrsta aðgerð sé hefðbundin opin aðgerð en ekki TAVI-aðgerð. Engu að síður er ljóst að framfarir eru örar í TAVI-að- gerðum, sem hefur gert þær öruggari og því fýsilegri fyrir stærri hóp sjúklinga. Styrkleiki rannsóknarinnar er að hún tekur til allra sjúklinga sem gengust undir TAVI-aðgerð á tímabilinu hjá heilli þjóð. Þótt hún sé afturskyggn var hluti breytanna, það er þær úr SwedeHe- art, skráður jafnóðum í rauntíma. Enn fremur var val á sjúklingum í aðgerðina breitt og einskorðaðist ekki við sjúklinga í ákveðnum áhættuhópi eins og sést í sumum erlendum rannsóknum.9,10,12,14,25,26 Þar að auki voru allar aðgerðirnar framkvæmdar á sömu stofn- un af tiltölulega fáum læknum, sem stuðlar að samræmi milli aðgerða. Eftirfylgd fyrstu 30 dagana var í höndum aðgerðalækn- is, sem eykur nákvæmni skráninga fylgikvilla. Við mat á fylgi- kvillum var stuðst við alþjóðlegar skilgreiningar VARC-2 en þær er stuðst við í flestum sambærilegum TAVI-rannsóknum, sem auðveldar samanburð niðurstaðna. Til veikleika telst afturskyggn hönnun, sér í lagi skráning fylgikvilla, auk stutts eftirfylgnitíma. Þetta þýðir að tíðni langtímafylgikvilla er ekki jafn fullkomin og ef eftirfylgd væri lengri. Þessi rannsókn sýnir að þótt Ísland sé fámennt land og land- fræðilega einangrað er árangur TAVI-aðgerða hér á landi síst lak- ari en á stærri og sérhæfðari sjúkrahúsum erlendis. Val á sjúkling- um virðist því í heild hafa tekist vel og teymið sem vinnur við aðgerðirnar hefur nauðsynlega færni og þjálfun sem þarf til að framkvæma þessar flóknu aðgerðir. Þegar horft er til framtíðar er ljóst að mikilvægt er að hjartateymið komist í sameiningu að bestu fýsilegu meðferð sjúklinga með alvarleg ósæðarlokuþrengsl hverju sinni, hvort sem um er að ræða TAVI-aðgerð, opna aðgerð eða lyfjameðferð eingöngu í þeim tilvikum þar sem ólíklegt er að lokuaðgerð skili árangri. Þakkir Bestu þakkir fær allt það sérhæfða starfsfólk sem hefur komið að undirbúningi og framkvæmd TAVI-aðgerða frá 2012 sem og umönnun sjúklinganna og meðhöndlun í framhaldinu. Þakkir fá Sunna Rún Heiðarsdóttir og Árni Steinn Steinþórsson fyrir góða samvinnu og að lokum Gísli Tómas Guðjónsson fyrir tölfræðiráð- gjöf. Greinin barst til blaðsins 1. október 2020, samþykkt til birtingar 25. janúar 2021.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.