Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Síða 33

Læknablaðið - 01.03.2021, Síða 33
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 145 Mynd ársins og myndasería teknar á Landspítala Blaðaljósmyndarafélagið verðlaunar Þorkel Þorkelsson, ljósmyndara á Landspítala „Ég sá ekki í gegnum vélina fyrir plast- pokanum utan um hana og öryggis- búnaðinum,“ segir Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari á Landspítala. Ljósmynd hans var valin mynd ársins 2020 og myndir frá kvöldvakt á deildum A6 og A7 í Fossvogi voru valdar myndasería ársins af Blaða- ljósmyndarafélaginu. Myndin hér með fréttinni er hans uppáhalds úr seríunni. „Maður varð bara að giska og ég er sérlega ánægður með þessa,“ segir þessi þrautreyndi ljósmyndari sem hefur haft ljósmyndun sem aðalstarf allt frá árinu 1983. Hann lýsir andrúmsloftinu þegar hann tók myndirnar í heimsfaraldrinum sem nú geisar. „Þetta er alvörumál. Mér fannst fólk- ið bratt og taka ástandinu af æðruleysi. Mér fannst áberandi hvað margar konur vinna í þessu. Það vakti aðdáun hvað heil- brigðisstéttirnar stóðu sig vel. Hvort sem það voru læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar eða það fólk sem vann við að sótthreinsa. Stemmningin var góð en ég skynjaði alvöru þunga í andrúmsloftinu.“ Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari á Landspítala, valdi þessa mynd sem sína uppáhalds úr 8 mynda seríu sem var valin sú besta af Blaðaljósmyndarafélaginu. Hann átti einnig mynd ársins 2020. - Læknablaðið hefur birt fjölmargar myndir úr vél Þorkels, og ævinlega átt gott samstarf við hann. Blaðið sendir honum bestu óskir í til- efni þessara vel forþéntu verðlauna. Mynd/Þorkell Þorkell hefur áður unnið til verðlauna sem fréttaljósmyndari og segir alltaf gaman fá viðurkenningu fyrir störf sín. „Mér þykir vænt um það og starfið sem við vinnum á spítalanum,“ segir hann og er hæverskur. „Ég er gamall skarfur í faginu og veit að maður á ekki að upp- „Við hefðum getað greint öll sýnin sem biðu, og auk þess tekið að okkur allar HPV-skimanirnar á Íslandi með nýja afkastamikla tækinu okkar. Ekki nein spurning um skort á öryggi og gæð- um, enda fékk deildin faggildingu frá SWEDAC á síðasta ári, “ segir Karl, pró- fessor og yfirlæknir. „Á óformlegum fundi með þeim í haust kom fram að við gætum auðveldlega gert þessar HPV-rannsóknir. Ekki var haft samband við mig aftur.“ Verðið hafi verið sambærilegt og í Svíþjóð. „Og við sáum fram á að geta boðið ódýrari rannsókn með nýja tækinu.“ Hann bendir á að deildin Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild. Mynd/gag „Við hefðum getað greint öll sýnin“ Gagnrýnt að heilsugæslan semji við danska sjúkrahúsið Hvidovre um að greina krabbameinssýni úr íslenskum konum veðrast yfir neinu.“ Hann sé í samkeppni við sjálfan sig. „Ég vil að öll verkefni, sama hvers eðlis þau eru, séu gefandi og gef því allt í þau sem ég get. Maður þarf alltaf að vanda sig, sama hvort það er fundur eða dramatík. Ég hef ánægju af því að gera hlutina vel.“ Heilsugæslan samdi við danska sjúkra- húsið Hvidovre um að greina 2000 íslensk sýni sem stóðu útaf eftir að heilsugæslan tók við af Krabbameinsfélagi Íslands. Stefnt væri að því að semja við sjúkrahús- ið um að greina öll íslensku sýnin. Læknablaðið sendi fyrirspurn á Ríkis- kaup vegna málsins. Í svari Ríkiskaupa segir að Heilsugæsla höfuðborgarsvæð- isins hefði átt að setja þjónustuna í útboð næmi upphæðin meira en rétt tæpum 98 milljónum króna. Kærunefnd útboðsmála geti lýst samning óvirkan eða beitt öðr- um viðurlögum sé upphæðin umfram þá fjárhæð. Heilsugæslan hafi ekki leitað til Ríkiskaupa vegna þessarar þjónustu eða hugsanlegs útboðs á henni. hafi sinnt HPV -greiningum fyrir Krabba- meinsfélagið síðustu tvö árin, eða þar til Heilsugæslan tók við. Kurr er innan heilbrigðisstétta eftir að ákveðið var að greiningarnar yrðu gerðar í Danmörku. Stjórn Læknafélags Íslands hefur ályktað að við þetta séu mikilvæg sérhæfð störf lögð niður og flutt úr landi. „Þá telur LÍ að það veki upp spurn- ingar um atvinnu- og heilbrigðispólitíkina sem nú er rekin í landinu að hægt virðist vera að gera samninga um heilbrigðis- þjónustu erlendis án útboðs á sama tíma og stjórnvöld telji sér óheimilt að ganga til samninga um sérhæfða innlenda heil- brigðisþjónustu án útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu.“

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.