Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 35
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 147 Sá hópur lækna sem starfar sem sérfræði- læknar á stofu er að eldast hratt og stór hluti þeirra hættir störfum innan fárra ára. Það stefnir í alvarlegan skort í þeirra hópi. Þetta er dugmikill hópur um 320 lækna sem sinnir mörgum sjúklingum ár hvert, eða um 260.000 á ári, sumir í fullu starfi en fleiri í hlutastarfi. Komufjöldinn er 500.000 eða hálf milljón læknisheimsókna. Það eru jafn margar heimsóknir og á göngudeild Landspítala og til Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins samanlagt á ári. Þetta er með öðrum orðum mjög mikil starfsemi. Sérgreinarnar eru 24. Kannanir sýna að þjónustan er mikil að gæðum, vinsæl og ódýr. Vinnan fer stundum fram í flókinni teymisvinnu en stundum eins og læknis- listin í sinni einföldustu mynd, í samtali læknis og sjúklings þar sem greining, rannsóknir og lækning eða líkn fer fram í fyllsta trúnaði. En hvaða þjónusta er veitt á stofu? Þar er um að ræða allt frá viðtölum og læknis- skoðun upp í stórar skurðaðgerðir í svæf- ingu. Sumar aðgerðir eru einungis, eða nær einungis, gerðar á stofum sérfræðilækna eins og til dæmis speglanir á öxlum sem bæklunarlæknar sinna. Á stofum sérfræði- lækna fara fram greiningar, rannsóknir, eftir lit, myndgreiningar, skurðaðgerðir, speglanir og aðrar aðgerðir og meðferðir. Margar af þeim aðgerðum og rannsóknum er ekki unnt að gera á heilsugæslustöðvum. Sumar sérgreinar eru þess eðlis að sjúk- lingarnir þurfa sjaldnast innlögn á spítala og er því þjónustunni sinnt á stöðvum sérfræðilækna, dagdeildum eða göngu- deildum. Dæmi um þetta eru HNE lækn- ingar, þvagfæralækningar, augnlækningar, barnalækningar, efnaskiptalækningar, kvensjúkdómalækningar og húðlækn- ingar. Það er um 2/3 þjóðarinnar, eða 260.000 einstaklingar á ári, sem heimsækja stofur sérfræðilækna. Hver Íslendingur kemur að meðaltali þangað 1,8 sinnum á ári. Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A FAL Berglind Bergmann Indriði Einar Reynisson FÍH Salóme Ásta Arnardóttir Jörundur Kristinsson FSL María I. Gunnbjörnsdóttir Guðrún Dóra Bjarnadóttir LR Þórarinn Guðnason Alma Gunnarsdóttir Stjórn Læknafélags Íslands LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO Tíunda heilbrigðisstofnunin: sérfræðilæknisþjónustan Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. Reynir Arngrímsson formaður hjartalæknir, formaður Læknafélags Reykjavíkur thg@simnet.is Þórarinn Guðnason Aldraðir læknar Í könnun Læknafélags Reykjavíkur sem gerð var á síðasta ári meðal allra lækna sem starfa á stofu var spurt um aldur. Svörun var góð, 270 af 320 starfandi stofu- læknum tók þátt, eða 85%. Þar kom í ljós að 42% læknanna eru 61 árs eða eldri. Meðalaldur sérfræðilækna á stofu er um 60 ár. Það þýðir að 42% þeirra eiga aðeins eft- ir 6 ár eða minna til að ná eftirlaunaaldri. Eftir 6 ár verður því tæpur helmingur stofulækna hættur eða við það að hætta vegna aldurs, eða 135 af 320 læknum. Nýliðunarþörfin er því 20-25 læknar á ári, sem er stór hluti þeirra sem hafa útskrifast á ári úr læknadeild HÍ. Þörfin verður enn meiri ef reiknað er með aukinni þjón- ustuþörf vegna öldrunar þjóðarinnar, fólksfjölgunar og vaxandi kröfu um meiri þjónustu. Þá tekur 12-16 ár að mennta sér- fræðilækni að afloknu stúdentsprófi. Hvað er til ráða? Það er mikil þörf á að gera áætlanir um mönnun þessa stóra hluta heilbrigð- iskerfisins og örva þar nýliðun. Það þarf nú þegar að auglýsa eftir nýjum sérfræðilæknum á stofu og bjóða þeim góð starfskjör og gera við þá samninga. Ástandið þolir enga bið enda hefur Emb- ætti landlæknis þegar staðfest mikinn skort á sérfræðilæknum í ákveðnum grein- um eins og gigtlækningum og taugalækn- ingum. Viðvarandi skortur er öllum ljós í mörgum öðrum greinum. Að mínum dómi mun heilbrigðiskerf- ið ekki ráða við ástandið ef ekki verður viðsnúningur varðandi nýliðun meðal stofulækna. Sá þriðjungur stofulækna sem hættir á allra næstu árum sinnir um 230.000 komum sjúklinga á ári. Það er svipað og allar komur á göngudeild Landspítala á ári. Hver mun taka að sér að sinna öllum þessum sjúklingum? Aðeins með því að auka starfsöryggi, umgjörð, réttindi og launakjör verður hægt að laða fleiri lækna heim til starfa í sérfræðilæknaþjónustunni sem stundum hefur verið kölluð tíunda heilbrigðisstofn- un landsins. Annars er fyrirsjáanlegur enn meiri skortur á læknum og fjölgun sjúk- linga á biðlistum heilbrigðiskerfisins. Stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar ættu í aðdraganda kosninga að íhuga af- stöðu sína til tíundu heilbrigðisstofnunar- innar og þess hámenntaða, afkastamikla og verðmæta hóps lækna sem starfar í þessum mikilvæga hluta heilbrigðiskerf- isins. Aldursskipting sérfræðilækna á stofu samkvæmt könnun Læknafélags Reykjavíkur árið 2020.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.