Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2021, Qupperneq 36

Læknablaðið - 01.03.2021, Qupperneq 36
148 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 Ekki aðeins er minningu Margrétar Odds- dóttur haldið á lofti á Yale. Málverk af henni hangir í stigagangi gamla Landspít- ala á leið að skurðstofum. „Þar brosir hún til mín á hverjum degi og ég veit að dagurinn verður góður,“ sagði Hjördís Smith, svæfingalæknir á Landspítala. Hún ásamt þeim Einfríði Árnadóttur, röntgen- lækni sem starfaði lengst af á Landspítala og í Orkuhúsinu, og Vilhelmínu Haralds- dóttur, lyf- og blóðsjúkdómalækni, halda minningu Margrétar á lofti hér heima. All- ar voru þær nánar vinkonur hennar. „Við kölluðum hana alltaf Möggu Odds,“ sagði Vilhelmína þegar hún opnaði minningarmálþingið á Læknadögum 20. janúar síðastliðinn. Málþingið var tilfinn- ingaþrungið og var farið yfir ævi Möggu í leik og starfi. Vilhelmína sagði frá því þegar Margrét fæddist á Ísafirði 1955. Elst 7 systkina. Alltaf hafi verið gestkvæmt á heimili hennar bæði í æsku og þegar hún flutti suður. Kaffi og með því. Vinkonurn- ar dáðust að því hvað hún drakk mikla mjólk. Margrét lést 9. janúar 2009, „á besta aldri“ aðeins 53 ára gömul. Brjóstakrabbi varð hennar banamein. Margrét lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Ísafirði árið 1975 og fékk styrk til náms í Bandaríkjunum fyrir góðan námsárangur. Hún fór til Alabama í Bandaríkjunum og lærði lífefnafræði. Skráði sig svo í læknisfræði við Háskóla Íslands ári síðar og útskrifaðist 1982. Sérnámið stundaði hún í Yale á árunum 1985-1992 og útskrifaðist með láði. Þangað ruddi hún leið íslenskra lækna. Þar lifir minning hennar og var skurðlækningabók meðal annars tileinkuð henni. Brautryðjandi Að loknu sérnámi í Yale fór Margrét til frekara sérfræðináms í kviðsjáraðgerð- um „sem voru þá að ryðja sér til rúms.“ Námið stundaði hún við Emory University School of Medicine í Atlanta í Georgíu á árunum 1992-1994. Hún var ein af þeim fyrstu í heiminum sem fór þannig í fell- owship. Þegar hún kom heim starfaði hún sem skurðlæknir á handlækningadeild Landspítala, síðan yfirlæknir og prófessor hjá Háskóla Íslands þar til hún lést. „Kraftmikil, orkumikil. Það gustaði af henni. Það var akkúrat þannig sem hún var í kennslustofunni. Hún kom inn og það birti til,“ sagði Elsa Björk Valsdóttir, ristilskurðlæknir og lektor, þegar hún fór yfir nýjungar og framtíðarsýn í kennslu á minningarmálþinginu. Margrét hafi því ekki aðeins verið framúrskarandi skurðlæknir og rannsakandi heldur einnig skarað fram úr í kennslu. Hún hafi aldrei snúið baki í nemendur sína. „Margrét settist upp á borðið, baðaði út öllum öngum. Hún hafði rosalega mikla ástríðu fyrir því sem hún kenndi.“ Ástríðan hafi fylgt öllu sem hún sagði. „Hún hreif fólk með sér og ég held að það sé ekki nokkur vafi á því að þessi mikla fjölgun sem hefur orðið á kvenkyns skurðlæknum undanfarin ár megi rekja til hennar, því hún einfaldlega sýndi okkur að það var allt hægt. Hún hreif svo marga með sér.“ Fyrst Íslendinga Walter E. Longo, yfirmaður ristils- og endaþarmsaðgerða á Yale, og Jonathan J. Lewis, skurðlæknir og lífeðlisfræðingur á Yale, minntust Margrétar á málþinginu. Lewis sagði frá því þegar hann hitti Margréti árið 1987. Hún var sú fyrsta af V I Ð T A L „Andi hennar lifir og ég trúi að það verði alltaf svo,“ sagði Jonathan J. Lewis, skurðlæknir og lífeðlisfræðingur á Yale-háskólasjúkra- húsinu, á málþingi á Læknadögum í minningu Margrétar Oddsdóttur skurðlæknis en hún lést árið 2009. Röð minningarfyrirlestra um Margréti eru haldnir í Yale á hverju ári ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Við kölluðum hana alltaf Möggu Odds“

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.