Læknablaðið - 01.03.2021, Qupperneq 37
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 149
mörgum Íslendingum sem stunduðu nám
og störfuðu á skurðstofum Yale. Aðdáun
þeirra á Margréti sem manneskju fór ekki
fram hjá áhorfendum.
„Hún var sú fyrsta sem ég hitti frá Ís-
landi,“ sagði Lewis. „Ég lærði fljótt margt
um Margréti, margt um Ísland,“ sagði
hann, og hvernig þau hjón, Margrét og
Jón Ásgeir, fréttaritari og þáttastjórnandi
til margra ára, hafi boðið honum í svið í
fyrsta matarboði hans til þeirra. „Ég var
kynntur fyrir siðunum en ekki síður fyrir
hlýjunni sem kom frá landinu kennt við
ís.“ Tengslin hafi orðið mjög sterk.
„Það er erfitt að lýsa tengslunum en
þau voru náin. Walter, Margrét og ég
urðum mjög nánir samstarfsfélagar. Við
stofnuðum okkar bræðralag. Þetta voru
tengsl sem við sjáum ekki í dag en við
sáum ástæðu til að minna á slíkt í fyrir-
lestri 2015 sem kallaðist umhyggja (car-
ing),“ sagði hann. Þeim hafi fundist sem
læknar hafi misst sjónar á því að sýna
sjúklingunum samkennd, hugsanlega
vegna hins rafræna, en í samkenndinni
hafi Margrét verið í sérflokki, mennska
fyrir manneskjur (human to human).
Í bræðralagi
Walter E. Longo tók undir og sagði: „Það
sem hélt okkur saman er að við hugsuð-
um um hvort annað en ekki eigin hag og
afrek. Fólk skipti okkur máli og það var
hægt að treysta okkur.“
Hann lýsti því hve mikil áhrif hennar
hafi verið. Hversu góður vísindamaður
hún var og hve vel hún hafi verið kynnt.
Hún hafi byggt brú til Evrópu. Þau hafi
notið samvistanna utan spítalans en starf-
Margréti var veittur sá heiður að „biblía“ skurðlækna,
Schwartz´s Principles of Surgery útgefin 2009, var til-
einkuð henni.
ið á rannsóknarstofunum hafi þó verið í
forgrunni og Margrét límið sem hélt mjög
svo hæfu fólki saman.
„Já, afreksfólk er líka bara fólk,“ segir
Longo að hafi verið viðkvæði hennar.
Jonathan tók undir það. „Já, hún jarð-
tengdi okkur og sameinaði.“ Félagsfærni
hennar hafi verið einstök og hjálpað þeim
við vísindastörfin og aukið afköstin.
Margrét hafi rutt brautina fyrir fram-
úrskarandi sérnámslækna frá Íslandi:
„Guðrúnu Aspelund á 10. áratugnum, Jór-
unni Atladóttur og Huldu Einarsdóttur,
báðar ristilsskurðlæknar, og Arnar Geirs-
son, yfirlæknir og prófessor hjartaskurð-
deildar Yale. Böndin voru þarna og menn-
ingin hélt okkur saman,“ sagði hann.
Þeir lýstu mikilli samkeppni á gólfinu
í sérnáminu en einnig miklu álagi. 36
stunda vinnutörnum með 8 tíma hléum á
Vilhelmína Haraldsdóttir, lyf- og blóðsjúkdómalæknir, ásamt
Einfríði Árnadóttur röntgenlækni og Hjördísi Smith svæfinga-
lækni á Landspítala, við málverkið af vinkonu þeirra, Margréti
Oddsdóttur á Landspítala. Málverkið var afhent 3. október 2016
en þann dag hefði Margrét orðið 61 árs og fjölskylda hennar, vinir
og vinnufélagar voru á staðnum. Stephen Lárus málaði myndina.
Mynd/gag