Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 46
158 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 7 . P I S T I L L
Bensódíazepín og Z-lyf,
ólíkar ábendingar en sama verkun
Ólafur B. Einarsson verkefnastjóri • Alma D. Möller landlæknir
Nokkuð hefur borið á ábendingum til
Embættis landlæknis frá apótekum um að
læknar ávísi ávana- og fíknilyfjum þegar
einstaklingar eiga fyrir óútleyst sömu lyf
í gátt. Samkvæmt reglugerð nr. 740/2020
er læknum óheimilt að ávísa þessum lyfj-
um ef fyrir er í gátt óútleyst ávísun fyrir
sama lyfi, af sama styrk og sama formi.
Þetta á við um öll ávana- og fíknilyf en
ábendingar vegna svefnlyfja og róandi
lyfja hafa verið mest áberandi.
Þegar tekin eru mörg lyf samtímis getur
skapast vandi, bæði vegna samverkunar
og milliverkunar lyfja. Vandi getur skapast
ef tvö lyf verka bæði á sömu ferla í líkam-
anum, annaðhvort gegn hvoru öðru eða á
sama hátt. Fyrrgreint ákvæði um ávísanir
var sett í umrædda reglugerð vegna tíðra
ávísana sömu lyfja á einstaklinga. Reglu-
gerðin tekur hins vegar ekki á því þegar
sambærilegu lyfi, eða jafnvel sama lyfi í
öðrum styrk, er ávísað. Í Noregi eru leið-
beiningar sem segja að takmarka eigi ekki
bara ávísanir lyfja með sama innihaldsefni
heldur einnig ávísanir ákveðinna lyfja
saman.1 Þannig er mælt gegn því að tekin
séu til dæmis svefnlyfin Zópíklón og/eða
Zolpídem (Z-lyf) ásamt róandi lyfjum (Ben-
sódíazepín) á sama tíma.
Þó að Z-lyf hafi ólíka byggingu mið-
að við benzódíazepín verka þau á sömu
viðtaka. Árið 2006 voru nærri 1300
einstaklingar sem leystu út Zopíklón og
Zolpídem á sama tíma (innan 30 daga) en
með tilkomu lyfjagagnagrunns, auknu
eftirliti og betra aðgengi lækna að upp-
Heimildir
1. helsedirektoratet.no/veiledere/vanedannende-le-
gemidler/grunnleggende-om-vanedannende-legemidler/
flere-vanedannende-legemidler-samtidig#det-bor-ikke-
-rekvireres-mer-enn-ett-legemiddel-i-gruppen-benzodi-
azepin-z-hypnotikum-til-samme-pasient-da-de-i-klinisk-
-bruk-er-tilnaermet-like - febrúar 2021.
2. Nowbase: nowbase.org/ - febrúar 2021.
3. Brandt J, Leong C. Benzodiazepines and Z-Drugs: An
Updated Review of Major Adverse Outcomes Reported
on in Epidemiologic Research. Drugs R D 2017; 17: 493-
507.
*Bæði lyf leyst út innan 30 daga.
Mynd 1. Fjöldi þeirra sem leysa út Zópíklón og Zolpídem á sama tíma*
árin 2003-2020.
Mynd 2. Fjöldi einstaklinga sem leysir út Z-lyf og Besódíazepín á sama tíma*
árin 2003-2020.
lýsingum hefur tilvikum fækkað þar sem
einstaklingar leysa út lyfin á sama tíma.
Tæplega 600 manns fengu ávísað bæði
Zopíklón og Zolpídem á sama tíma árið
2019, sjá mynd 1. Það má því álykta að
tilkoma lyfjagagnagrunns árið 2006 hafi
auðveldað læknum þessa yfirsýn.
Ef ávísanir á Z-lyf og bensódíazepín
eru skoðaðar á Íslandi sést að um 8000
einstaklingar fá ávísað báðum lyfja-
flokkum samhliða, sjá mynd 2. Þessi
samhliða notkun jókst til ársins 2011 en
fjöldi einstaklinga hefur lítið sem ekkert
dregist saman síðan þá. Í norsku leið-
beiningunum er til dæmis sagt frá því að
mismunandi ábendingar bensódíazepíns
og Z-lyfja gefi til kynna að þau hafi ólíka
verkun en það sé hins vegar ekki raunin.
Þegar einstaklingar glíma samtímis við
kvíða og svefnerfiðleika sé yfirleitt nóg
að gefa aðeins til dæmis oksazepam 15
mg um kvöld sem virkar sem svefnlyf
að nóttu en kvíðastillandi á daginn. Það
hefur verið talinn kostur Z-lyfja að þau
hafa stuttan helmingunartíma í plasma en
norsku leiðbeiningarnar mæla gegn því
ávísa þeim á sama tíma og bensódíazepín-
um eða klónazepam. Fjöldi þeirra sem
fær klónazepam og bensódíazepín á sama
tíma er óverulegur (um 300 einstaklingar
árið 2020) og sama á við um samhliða
ávísanir klónazepam og Z-lyfja (tæplega
400 einstaklingar árið 2020).
Hafa ber í huga að hér eru taldir þeir
sem á einhverjum tíma leysa lyf út úr
apótekum í umræddum tveim flokkum
innan ársins. Óvíst er hins vegar hversu
margir leysa út þessi lyf endurtekið eða
fá ávísað af lækni á mismunandi tímum.
Hvort þessir einstaklingar taki svo inn lyf
úr báðum flokkum á sama tíma er önnur
saga en þessir 7000 eru nærri þriðjungur
allra sem taka Z-lyf. Þarna gæti því verið
ein skýring á því hvers vegna sala bæði
svefnlyfja og róandi lyfja hér á landi er
um það bil tvöföld miðað við sölu í Nor-
egi.2 Ýmsar skaðlegar afleiðingar af töku
þessara lyfja eru þekktar eins og til dæm-
is umferðarslys og beinbrot vegna falls
sem eru algengari meðal þeirra sem taka
þessi lyf. Aðrar mögulegar heilsufarslegar
afleiðingar af töku lyfjanna eru elliglöp,
sýkingar og jafnvel krabbamein.3 Það er
því til mikils að vinna að reyna að lág-
marka notkun lyfjanna, bæði einna og
sér en einnig samtímis-notkunar sem
samkvæmt norskum leiðbeiningum er í
flestum tilfellum óþörf. Embætti land-
læknis hyggst efna til samtals við lækna
um hvernig hægt er að gera ávísanir um-
ræddra lyfja markvissari.