Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2014, Síða 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur
og reyksprengjur, eða ef til vill vita þau
ekki hvers konar drasl þetta er, og ef svo
er, þá sannast á þeim, að sælir eru ein-
faldir.
Á því skipi, sem ég hef siglt síðastliðið
ár, hafa verið gerðar margar árangurs-
lausar tilraunir til þess að fá reyksprengj-
ur í Englandi. Tvær loftvarnabyssur höf-
um við loksins fengið, með því að smyrja
þá menn, sem sjá um úthlutun á þeim.
Það vantar ekki fagurgalann hjá ýms-
um stjórnmálamönnum í garð okkar sjó-
manna, þegar þeir vilja fá okkur til þess
að þóknast sér, en þegar í nauðirnar rek-
ur, kemur annað hljóð í strokkinn.
Við höfum margs að minnast, t.d.
þingmannsins, sem fann út „hræðslu-
peningana“ eða guðfræðiprófessorsins,
sem fann upp þann vísdóm, að farmenn-
irnir hefðu sett siglingaútgerðina á haus-
inn með því að heimta svo margvísleg
öryggistæki, og kannski háttvirtur ráð-
herra vilji komast undir sama merki og
þessir menn.“
ENDIR.
1) Þórður Pétursson. Sannleikurinn er sagna bestur.
Sjómannablaðið Víkingur, 5. árg., 1. tbl., bls. 6, janúar
1943.
Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga
PIPA
R\TBW
A
SÍA
13
0713
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA
sjomennt.is sjomennt@sjomennt.is sími: 514 9601
Kynntu þér
rétt þinn á
sjomennt.is
Félagsmenn Sjómenntar sem unnið hafa í að minnsta kosti sex mánuði
á síðastliðnum tólf mánuðum geta sótt um styrk til félagsins:
Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ)
og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.
starfstengt nám eða námskeið tómstundastyrkir meirapróf
kaup á hjálpartækjum vegna lestrar- eða ritörðugleika
Átt þú rétt á
styrk?
Í síðustu grein (Víkingur, 1. tbl.
2014, bls. 30) var rætt um Bjarna
Ketilsson á bv. Sigurði og birt af
honum mynd, þar sem hann hafði
lagt sig í messanum, og léttvíns-
flaska stóð á borðinu. Þrælduglegur
maður, netamaður og pokamaður
og þrælblautur líka. Hann var mál-
laus. Reyndar hét hann fullu nafni
Óskar Sigurbjarni Ketilsson, en var
ævinlega kallaður Bjarni Ketils.
Hann var frændi skipstjóranna Snæ-
bjarnar Ólafssonar og Guðbjörns
Jenssonar. Óskar Sigurbjarni fórst í
brunanum í lúkarnum á bv.
Hallveigu Fróðadóttur 6. marz
1969.
Hvaleyrarbraut 27 · 220 Hafnarfjörður
Sími: 564 3338 · Fax: 554 4220
GSM: 896 4964 ·898 2773
Kt.: 621297-2529