Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 2

Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 2
Mér finnst óeðlilegt að sveitarfélögin séu að kosta þetta. Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitar- stjórnar Norður- þings Ferð til fjár Mikið fjör var í Skafholtsrétt í Þjórsárdal í gær en fram undan eru fjárréttir víða um landið. Í dag verður meðal annars réttað í Fljótstungurétt á Hvítársíðu, Ljárskógarétt í Laxárdal, Hraunsrétt í Skutulsfirði, Syðridalsrétt í Bolungarvík, Auðkúlurétt við Svínavatn, Stafnsrétt í Svartárdal, Deildardalsrétt í Skagafirði, Hraungerðisrétt í Eyjafjarðarsveit, Gunnarsstaðarétt í Þistilfirði og Tungnarétt í Biskupstungum svo nokkur dæmi séu nefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík sem átti að kosta 2,2 milljarða mun kosta rúma 5,3 samkvæmt nýrri áætlun. Aukin hlutdeild hefur verið sett á sveitarfélögin og hefur þeirra kostnaður fjórfaldast. kristinnhaukur@frettabladid.is NORÐURLAND Sveitarfélögin í Þing- eyjarsýslum sjá fram á stökkbreyt- ingu kostnaðar vegna nýs hjúkr- unarheimilis á Húsavík. Það er ríkið sem sér um verkkaupin. Verkefni sem átti að kosta sveitarfélögin 330 milljónir árið 2019 stefnir nú í 1,2 milljarða króna og byggingin sjálf er ekki hafin. „Við eigum eftir að fara í frekari samtöl við ráðuneytið út af þessu,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, for- seti sveitarstjórnar og oddviti Fram- sóknarflokksins. Þegar hann sat í minnihluta sveitarstjórnar gagn- rýndi hann skiptingu kostnaðar, en eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor er hann kominn í meirihluta. Í febrúar árið 2019 sömdu sveitarfélögin Norðurþing, Tjör- neshreppur, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur við heilbrigðis- ráðuneytið um uppbyggingu nýs 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík. Átti það að leysa eldra húsnæði, Hvamm, af hólmi en það þótti ekki uppfylla nútímakröfur. Áætlað var að heildarkostnaður yrði 2,2 milljarðar og sveitarfélögin myndu greiða 15 prósent, eða 330 milljónir króna. Miðað við þetta var kostnaður Norðurþings um 250 milljónir, Þingeyjarsveitar og Skútustaða- hrepps (sem hafa nú sameinast) um 76 milljónir og Tjörneshrepps, sem telur 60 íbúa, 3 milljónir. Kostnaðaráætlunin hefur hins vegar rokið upp, nú síðast um þriðjung, og í dag stendur verkið í rúmum 5,3 milljörðum króna. Það eina verklega sem hefur verið framkvæmt er jarðvinnan, það er að grafa stóra holu fyrir grunninn norðan við Hvamm sem kostaði nokkra tugi milljóna króna. Stór breyting fyrir sveitarfélögin er að hlutur þeirra hefur hækkað úr 15 prósentum í rúmlega 23. Það er að sveitarfélögin eru látin greiða tengibyggingu úr nýja hjúkrunar- heimilinu yfir í Hvamm og Heil- brigðisstofnun Norðurlands þar sem eldhúsið er. „Eins og staðan er í dag eiga sveit- arfélögin að borga tengiganginn að fullu, sem ég hef gagnrýnt,“ segir Hjálmar. „Mér finnst óeðlilegt að sveitarfélögin séu að kosta þetta.“ Lauslega reiknað er kostnaður sveitarfélaganna því kominn upp í rúmlega 1,2 milljarða króna. Þar af um 935 milljónir á Norðurþing, 283 á Þingeyjarsveit og rúmar 12 á Tjörneshrepp. Þetta er um fjórföld kostnaðaraukning frá uppruna- legu áætlununum og hækkunin sjálf í kringum 200 þúsund krónur á hvern íbúa í sveitarfélögunum. Hin nýja kostnaðaráætlun ráðu- neytisins fer núna fyrir samræm- ingarnefnd um opinberar fram- kvæmdir. Hjálmar býst við að útboð geti hafist í kringum áramótin. Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir sé enn hugur í sveitarstjórnarfólki að hefj- ast handa. „Sveitarfélögin eru öll sammála um að halda áfram með þetta verkefni.“ Svör hafa ekki borist frá heil- brigðisráðuneytinu við fyrirspurn Fréttablaðsins. n Stökkbreyting á kostnaði við nýtt hjúkrunarheimili Hið nýja hjúkrunarheimili verður byggt norðan við Hvamm og Heilbrigðis- stofnun Norðurlands. MYND/NORÐURÞING Tannlæknir Helga Helgadóttir Hef hað störf á tannlæknastofunni Valhöll. Ég vil bjóða alla nýja og eldri viðskiptavini velkomna. Urðarhvarf 8 B - 6. hæð, 203 Kópavogur 568-2522helgah@tennur.is Við erum ein af leiðandi tannlæknastofum á Íslandi. Bjóðum upp á alhliða tannlækningar með áherslu á gæði og þjónustu. bth@frettabladid.is AKUREYRI Á Facebook-síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni kemur fram að beiðnir um aðstoð streymi inn. Stjórnandi hópsins segir að marg- ir foreldrar eigi ekki fyrir nesti fyrir börn sín. Ástandið sé að snarversna. Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfull- trúi Samfylkingarinnar, tekur málið upp í aðsendri grein í norðlenska staðarblaðinu Vikudegi. Hilda Jana bendir á ábyrgð ríkis- valdsins á að búa svo um hnútana að enginn líði skort. Bæjarfulltrúinn gagnrýnir einn- ig ef Akureyrarbær ætli ofan á þetta ástand að hækka matargjaldskrá í grunnskólum og leikskólum um 10 prósent líkt og boðað hafi verið. Það muni bitna helst á tekjulágum, ein- stæðum og öryrkjum. n Svöngum börnum á Akureyri sagt hafa snarfjölgað Hilda Jana Gísla- dóttir, bæjar- fulltrúi Sam- fylkingarinnar ingunnlara@frettabladid.is DÓMSMÁL Víetnömsk kona, sem var talin hafa lagt fram fölsuð dánar- vottorð eiginmanns síns og tveggja stjúpdætra í von um að fá dánarbæt- ur, hafði betur í máli gegn íslenska ríkinu. Landsréttur hefur dæmt henni tvær milljónir króna í bætur. Konan stefndi íslenska ríkinu fyrir brot á mannréttindum við rannsókn lögreglu á vottorðunum. Hún var með réttarstöðu sakborn- ings í áratug, eða frá maí 2011 til maí 2021. Var rannsókninni hætt og málið fellt niður í fyrra. Konan bjó á Íslandi í nokkur ár ásamt fjölskyldu sinni. Eiginmaður hennar og stjúpdætur fengu líf- og sjúkdómatryggingu hérlendis og ári síðar sótti konan um dánarbætur vegna andláts þeirra. Sagði hún fjölskylduna hafa drukknað í Víet- nam. Þrjú lík óþekktra einstaklinga fundust á svæðinu sem hún sagði vera mann sinn og stjúpdætur en frásögn konunnar breyttist ítrekað og var ekki talin trúverðug. n Nánar á frettabladid.is Sögð falsa dánarvottorð en fær bætur Málið teygði anga sína út fyrir strendur Víetnam. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 2 Fréttir 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.