Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 6

Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 6
Flokkur fólksins segir fé sett í að uppgötva hluti sem þegar séu til. Fólkið tengist fjölskyldu- eða vina- böndum. AKRANES Mínúturnar eru fjölskylduvænni á Akranesi ÞAÐ ER STUTT bth@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Jú, ég fagna því ef efnið verður dregið fram úr skugg- unum. Ég er mjög opinn fyrir þess- ari leið en við megum ekki örvænta þótt eitt gangi ekki upp heldur prufa þá bara annað,“ segir Brynjúlfur Jóhannsson. Brynjúlfur er í hópi þeirra sem hafa haldið því fram að efnið psilo- cybin, ofskynjunarefni sem meðal annars finnst í ákveðinni tegund af sveppum, sé lyf sem geti læknað kvilla. Samkvæmt yfirlitsgrein læknanna Árnýjar Jóhannesdóttur og Engil- berts Sigurðssonar í Læknablaðinu sýnir ný safngreining marktækan árangur psilocybin-meðferðar hjá vissum hópum við alvarlegu þung- lyndi. Ekki er talið ólíklegt að mark- aðsleyfi fáist til að útdeila efninu sem lyfi. Brynjúlfur hefur átt í útistöðum við yfirvöld, meðal annars vegna ofskynjunarsveppa. Dæmi eru um hörmulegar afleiðingar eftir neyslu ofskynjunarsveppa. Ígrunduð ávís- un á efnið undir eftirliti heilbrigðis- starfsmanns gæti orðið leið í baráttu gegn alvarlegu þunglyndi, þar sem aðrar leiðir duga ekki, að sögn Engil- berts Sigurðssonar geðlæknis. „Ég horfi ekki á þetta efni sem neina töfralausn, það hefur alltaf haft þá áru að best sé að nálgast það af virðingu. Ég hef notað sveppi með engri virðingu og það endaði illa en ég fagna því ef vísindin eru að sýna fram á ábata af notkun efnisins í ákveðnum tilvikum,“ segir Brynj- úlfur. n Sveppaunnendur fagna rannsókn á eiginleikum Eftir helgi hefst aðalmeðferð í stóru fjársvikamáli sem teygir sig meira en áratug aftur í tímann. Átta manns eru sak- aðir um að svíkja tugmilljónir út úr Ábyrgðarsjóði launa. kristinnhaukur@frettabladid.is DÓMSMÁL Á mánudag hefst aðal- meðferð í stóru fjársvikamáli gegn átta einstaklingum í Héraðsdómi Reykjaness. Hin ákærðu í málinu eru meðal annars sökuð um að hafa svikið fé út úr Ábyrgðarsjóði launa. Málið teygir sig meira en áratug aftur í tímann. Ákæra var gefin út í málinu fyrir meira en ári. Samkvæmt Ásmundu Björgu Baldursdóttur, saksóknara hjá héraðssaksóknara, hefur málinu meðal annars verið frestað vegna Covid og af öðrum ófyrirsjáan- legum orsökum. Meðal ákærðu eru Eggert Skúli Jóhannesson og sonur hans Jóhann- es Gísli Eggertsson, en hinn síðar- nefndi hefur hlotið nokkra dóma fyrir auðgunarbrot. Greint var frá því árið 2018 að þeir hefðu tekið yfir fjölmiðilinn Fréttatímann. Einnig eru Hörður Alexander, bróðir Jóhannesar, og Halla Árna- dóttir, amma hans, ákærð sem og Friðfinnur V. Hreinsson, Guðlaugur Hermannsson, Gunnar Bender og Jóhann Ósland Jósefsson. Fólkið tengist annaðhvort ættar- eða fjöl- skylduböndum. Þar sem margir koma að málinu er gert ráð fyrir að aðalmeðferðin taki tvo daga, 12. og 13. september. Meðal þess sem kemur fram í ákærunni er að Eggert sé sak- aður um að hafa blekkt starfsmenn Ábyrgðarsjóðs launa til að sam- Átta fyrir dóm eftir helgi ákærð fyrir að svíkja fé út úr Ábyrgðarsjóði launa Brynjúlfur Jóhannsson Ákærur voru gefnar út fyrir meira en ári síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR þykkja kröfu upp á rúmlega 4,1 milljón króna. Hafi hann tilkynnt það sem vangoldin laun sín og Höllu hjá hinu gjaldþrota félagi Skipa- miðlun árið 2008. Einnig að Eggert hafi blekkt starfsmenn Ábyrgðarsjóðs til að samþykkja kröfu upp á rúmar 2,8 milljónir vegna vangoldinna launa hins gjaldþrota Almenna leigufélags árin 2012 og 2013. „Blekkingar kærða Eggerts fólust í að vekja og hagnýta sér þá röngu hug my nd hjá st ar fsmönnum ábyrgðarsjóðs launa, að hann hefði verið launþegi Almenna leigufélags- ins,“ segir í ákærunni. Aðrir eru einnig sakaðir um að hafa beitt sömu aðferð eða aðstoð- að við svik. Til dæmis er Jóhannes Gísli sakaður um að hafa svikið út tæpar 2,9 milljónir vegna gjald- þrots félagsins B400 árin 2013 til 2014. Jóhann Ósland var sk ráður stjórnarformaður Skipamiðlunar, Almenna leigufélagsins og B400 og er sakaður um að hafa búið til ráðningarsamninga. Fleiri félög koma við sögu og ávallt sama aðferðin. Meðal annars fyrir félögin Alexöndru og K 100. Samanlagt hljóðar upphæðin upp á tugi milljóna króna. Einnig er ákært fyrir peningaþvætti, það er fyrir að hafa veitt illa fengnu fé viðtöku. n benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Tæp tvö ár eru frá því borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti að fjárfesta 10 milljarða í stafrænni umbreytingu á þriggja ára tímabili. Staðan var rædd á borgarráðsfundi á fimmtudag. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðis- f lokksins er bent á rannsókn McKinsey and Company sem sýnir að stafræn umbreyting hefur mis- tekist í minnst 70 prósentum til- vika. „Helstu ástæður þess eru taldar skortur á aga til þess að skilgreina og stíga réttu skrefin í upphafi staf- rænnar umbyltingar og ekki síður að halda fókus á meðan á ferlinu stendur. Það er því mikilvægt að sýna verkefninu aðhald og fylgjast með ráðstöfun fjármuna af gaum- gæfni,“ segir í bókun flokksins. Af hálfu Flokks fólksins var bent á að starfsmenn sem vinna að verk- efninu fái sérstök hlunnindi eins og samgöngustyrk, heilsuræktarstyrk og menningar- og sundkort, einnig rafskútur til notkunar á vinnutíma. „Nálgun sviðsins undanfarin ár hefur einkennst af fumkenndri til- raunastarfsemi þar sem miklum tíma og fjármunum hefur verið eytt í að uppgötva hluti sem nú þegar eru til,“ segir í bókun Flokks fólksins. Sjálfstæðisflokkurinn benti síðar á fundinum á að stafræn skráning starfsmanna borgarinnar í Ráðhús- inu og á Höfðatorgi virkaði ekki og hefði ekki gert í mörg ár. „Úrbætur varðandi þetta einfalda atriði myndi einnig ef laust auka trúverðugleika Reykjavíkurborgar gagnvart starfsfólki sínu og gera það jákvæðara varðandi þá stafrænu vegferð sem borgin er á.“ n Sérstök hlunnindi fyrir starfsmenn Fá fríðindi fyrir stafræna umbyltingu í borgarkerfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 6 Fréttir 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.