Fréttablaðið - 10.09.2022, Qupperneq 16
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
Þetta er sví-
virða. Og
heitir ekki
annað en
skattsvik.
Ríkið stelur
niður-
fellingu
álaganna
af almenn-
ingi og
stingur í
eigin vasa.
Samkvæmt
rannsókn
sem gerð
var meðal
ungs fólks
í Banda-
ríkjunum
vissu tveir
þriðju ekki
hve margir
gyðingar
létu lífið í
helförinni.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Það er eftir öðru á Íslandi að sjálft
ríkisvaldið fari á undan með vondu
fordæmi og okri svo á landsmönnum
í opinberum verslunum að líkja
verður við argasta arðrán.
Í fréttum blaðsins á síðustu dögum hefur
verið fjallað um gegndarlausa álagningu Frí-
hafnarinnar í Leifsstöð á nokkrum algengum
tegundum sem fást jöfnum höndum á Kefla-
víkurflugvelli og í lágvöruverðsverslunum
á höfuðborgarsvæðinu og leiðir nýleg verð-
könnun í ljós að ríkisverslunin leggur í öllum
tilvikum meira á vörur sínar, enda þótt hún
þurfi ekki að standa skil á 24,5 prósenta virðis-
aukaskatti sem einkareknar verslanir fá ekki
umflúið.
Þetta er svívirða. Og heitir ekki annað en
skattsvik.
Ríkið stelur niðurfellingu álaganna af
almenningi og stingur í eigin vasa. Og sama
alþýða manna gengur í góðri trú inn í þessa
einokunarverslun yfirvaldsins og telur sig geta
gert þar betri kaup en í bænum, enda búðin
merkt á kant og kima með þeim hætti, en hefði
betur verslað heima hjá þeim sem borga þó
skattinn sinn.
Auðvitað er það rétt hjá formanni Neyt-
endasamtakanna sem sagði í fréttaflutningi
af málinu að þessi gífurlega álagning af hálfu
hins opinbera væri algerlega út úr korti. Og er
nema von að maðurinn segi það. Dæmi eru um
vinsælar sælgætisvörur sem eru fimmtíu pró-
sentum dýrari í Leifsstöð en í Bónus, Krónunni
eða Costco í bænum.
Álagningin er því í rauninni jafnt yfirgengi-
leg og hún er ófyrirleitin. Og enn ein gildran
sem neytendur á Íslandi þurfa að gæta sín á að
falla ekki ofan í, eins og formaður Neytenda-
samtakanna benti enn fremur á í umræddri
frétt.
Verðlag á Íslandi er hátt. Það er óhemjuhátt
miðað við það sem gengur og gerist víða í Evr-
ópu. Munar þar miklu um veikan gjaldmiðil
sem fæst ekki að láni nema á breytilegum
vöxtum sem engir þekkja til nema Íslendingar.
Og háa verðlagið verður væntanlega líka rakið
til skorts á samkeppni ásamt langvarandi með-
virkni landsmanna í þá veru að það sé bara allt
í lagi að bíta á jaxlinn í þessum efnum.
En ríkið á ekki að kynda þetta bál. Það á ekki
að kynda nokkurt bál til að belgja verðið út. En
ríkið gerir það samt. Og ekki bara í Leifsstöð
eins og dæmin sanna, heldur í látlausri launa-
þenslu og uppkaupum á sérfræðingum hjá
einkafyrirtækjum – á meðan það biður aðra
um hófsemd. n
Ríkisokur
Tova Friedman er TikTok-stjarna. Hún er
þó ekki eins og TikTok-stjörnur eru flestar.
Tova fæddist í Póllandi árið 1938, ári áður en
heimsstyrjöldin síðari hófst. Fimm ára var
Tova send í vinnubúðir nasista ásamt for-
eldrum sínum. Stuttu fyrir sex ára afmælið
var hún flutt í Auschwitz-útrýmingarbúð-
irnar ásamt móður sinni.
Móðir Tovu gerði allt sem hún gat til að
vernda dóttur sína í búðunum. Hún kenndi
henni að láta lítið fyrir sér fara. „Ég horfðist
aldrei í augu við nasista allt stríðið,“ sagði
Tova í nýlegu viðtali. Hún man aðeins stígvél
fangavarðanna og hendur sem héldu um ólar
varðhunda. „Enn þann dag í dag hef ég ekki
getað snert þýskan fjárhund.“
Einn daginn var Tova flutt í gasklefann.
Þar stóð hún ásamt hópi barna og beið örlaga
sinna. Klukkustundir liðu en ekkert gerðist.
Skyndilega var börnunum skipað að halda
aftur til svefnskála sinna. Tova veit ekki enn
hvernig það kom til að hún varð ein af fáum
sem lifðu af gasklefa nasista.
Við lok stríðsins kepptust Þjóðverjar við
að eyða sönnunargögnum um voðaverk sín.
Fangar Auschwitz voru fluttir í stórum stíl til
fangabúða í Þýskalandi. Flutningarnir voru
kallaðir dauðagöngur því aðeins lítill hluti
fanga lifði þá af.
Daginn sem flytja átti Tovu og móður
hennar burt laumaðist móðirin með dóttur
sína inn á sjúkrastofu búðanna. Þar lágu
aðallega lík. Móðir Tovu faldi hana undir
ábreiðu í rúmi með einu þeirra og bað hana
að halda niðri í sér andanum. Stuttu síðar
marseraði hópur nasista inn á stofuna. Þeir
gengu milli rúma sjúklinga til að kanna
ástand þeirra. Væru sjúklingarnir með lífs-
marki voru þeir skotnir. Einn nasistanna
staðnæmdist við rúmið sem Tova faldi sig í.
Hann skoðaði líkið vel. Hann tók hins vegar
ekki eftir Tovu.
Faðir Tovu hafði verið sendur til Dachau.
Hann lifði búðirnar af og fjölskyldan settist
að í Póllandi eftir stríð. Vegna gyðingafor-
dóma fluttu þau fljótlega til Bandaríkjanna.
Þar varð á vegi Tovu velviljaður læknir. Hann
sá húðflúrið sem Tova bar á handleggnum,
talnarununa sem fangar í Auschwitz höfðu
verið merktir með, og bauðst til að fjarlægja
það án greiðslu. Tova brást ókvæða við. Fjar-
lægja það! „Ég vil aldrei gleyma. Veröldin
þarf að vita hvað gerðist.“
Aldrei heyrt um helförina
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð á morgun.
Magdalena Andersson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sagði í vikunni landið standa á
tímamótum. Skoðanakannanir benda til
að Svíþjóðardemókratar, flokkur hægri-
sinnaðra popúlista sem á rætur að rekja til
nýnasista, vinni kosningasigur.
Nýnasistar láta að sér kveða víðar. Í
Fréttablaðinu í vikunni var fjallað um miða
sem límdir hafa verið upp á Norðurlandi
og virðast á vegum Norrænu mótstöðu-
hreyfingarinnar, samnorrænnar nýnasista-
hreyfingar sem á upptök sín í Svíþjóð.
Samkvæmt rannsókn sem gerð var meðal
ungs fólks í Bandaríkjunum vissu tveir
þriðju ekki hve margir gyðingar létu lífið í
helförinni; helmingur var ófær um að nefna
einar einustu fangabúðir; 23 prósent töldu
helförina goðsögn; 17 prósentum fannst
nýnasismi boðleg stjórnmálaskoðun.
Sambærileg könnun í Evrópu sýndi að
þriðjungur ungmenna hafði aldrei heyrt um
helförina.
Tova Friedman leyfði ekki lækni að fjar-
lægja af sér húðflúrið. En samt var veröldin
við það að gleyma. Hún skráði sig á TikTok
þar sem frásagnir hennar af helförinni og
ódæðum nasista fara sem eldur um sinu. Í
síðustu viku kom út bók eftir Tovu þar sem
hún segir sögu sína í von um að voðaverkin
endurtaki sig ekki.
Líklega er það borin von að miðadreifandi
nýnasistar á Norðurlandi taki sér bók í hönd.
En kannski að þeir geti tékkað á Tovu á
TikTok. n
Nýnasistar á Norðurlandi
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30
Fréttaumfjöllun fyrir alla.
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 10. september 2022 LAUGARDAGUR