Fréttablaðið - 10.09.2022, Side 22
Í kvöld verður haldið alvöru
ball í íþróttahúsi Seltjarnar-
ness þar sem Verbúðarbandið
með Selmu Björnsdóttur og
Stefáni Hilmarssyni, fremst á
sviði, leikur íslensk lög í anda
sjónvarpsþáttanna vinsælu.
bjork@frettabladid.is
Gunnlaugur Jónsson, íþróttastjóri
Gróttu, segir hugmyndina að ball-
inu hafa vaknað í vor þegar góður
hópur innan íþróttafélagsins Gróttu
var að velta fyrir sér hvernig fjáröfl-
unarviðburð ætti að setja upp.
Hópurinn var stórtækur enda
hafði Grótta eins og f lest íþrótta-
félög þurft að fresta mörgum við-
burðum á Covid-tímanum.
„Í kjölfar Verbúðarþáttanna á
RÚV vaknaði sú hugmynd að búa
til alvöru ball í íþróttahúsinu og
tengja það við stemmninguna í
þáttunum. Tónlistin ætti að vera
íslensk, frá tímanum sem þættirnir
gerast eða frá lok áttunda áratug-
arins til byrjun þess tíunda,“ segir
Gunnlaugur.
„Við ræddum við Gísla Örn, Nínu
Dögg, Björn Hlyn og Nönu í Vestur-
porti og tóku þau mjög vel í þessa
hugmynd, þau gáfu okkur grænt
ljós á að tengjast þáttunum enda
öll hliðholl íþróttahreyfingunni.
Við ætluðum að setja ballið upp í
vor en hurfum frá því enda var við-
burðamarkaðurinn mettaður og
sem betur fer tókum við þá góðu
ákvörðun.“
Byrjið partíin snemma
Gunnlaugur segir það mikið fyrir-
tæki að halda svona stórt ball og
aðstandendur séu þakklátir fyrir
hversu tilbúnir iðkendur, stjórnar-
menn og aðrir félagsmenn hafi
verið að leggja mikið á sig til að
verkefnið gengi upp.
Hópurinn fékk Andra Guð-
mundsson, hljómborðsleikara Íra-
fárs og íbúa á Nesinu, til að setja
saman hljómsveit sem fékk nafnið
Verbúðarbandið.
„Hann fékk félaga sinn í Íra-
fári, Vigni gítarleikara, til að stýra
bandinu, auk þess er með þeim ein-
valalið: Doddi Þorvalds trommari,
Tobbi Sig sem spilar á allt og bassa-
leikarinn Árni Þór Guðjónsson.
Það verða svo ekki amalegir
söngvarar sem stíga á stokk með
bandinu, þau Stefán Hilmarsson
og einn af aðalleikurum Verbúðar-
þáttanna, Selma Björns. Það er svo
enginn annar en Herbert Guð-
mundsson sem byrjar kvöldið
klukkan 22 og svo tekur Verbúðar-
bandið við klukkutíma síðar.“
Gunnlaugur segist merkja mik-
inn hita á Nesinu fyrir ballinu og
fjórum dögum fyrir kvöldið stóra
voru 850 miðar seldir.
„Það stefnir allt í að það verði
uppselt, við heyrum af partíum um
allt Nesið og allan Vesturbæ og við
biðlum til þeirra að byrja partíin
snemma og vera mætt í íþrótta-
húsið milli kl. 21.00 og 22.00. n
Alvöru ball á Nesinu
Gunnlaugur Jónsson, iþróttastjóri Gróttu, býst við húsfylli í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
BJORK@FRETTABLADID.IS
Við mælum með
Ólafur
Arnarson
n Í vikulokin
Þegar fréttir bárust fyrir ári síðan af vin-
kvennahóp á Tenerife sem orðið hafði fyrir
því að toppur pálmatrés féll ofan á þær á veit-
ingastað og tvær úr hópnum lægju alvarlega
slasaðar á sjúkrahúsi, snerti það ansi marga.
Þetta hefði svo auðveldlega getað komið fyrir hvern
sem er.
Það er ansi stór hluti þjóðarinnar sem setið hefur
í sólinni á veitingastað á Tenerife og gert sér glaðan
dag. Vinkonurnar hefðu ekki á nokkurn hátt getað
ímyndað sér að þær væru í hættu þar sem þær
sátu og biðu þess að fá að panta. Eða eins og Svava
Magnúsdóttir sem prýðir forsíðu þessa tölublaðs segir
frá í viðtalinu: „Það er ekki eins og ég hafi verið í para-
gliding.“
Svava varð fyrir varanlegum mænuskaða og
notast í dag við hjólastól. Þessi virka kona sem fór
fyrir gönguhópnum á vinnustað sínum og gekk fjöll
í frítímanum getur ekki lengur gengið. Það stoppar
hana svo sannarlega ekki og nú vinnur hún að því að
finna sér nýjar leiðir til að „leika sér“. Afstaða Svövu
er nefnilega mögnuð og til eftirbreytni fyrir okkur
öll: „Þetta hefði alveg getað verið verra. Ég hefði alveg
getað komið heim í duftkeri, þessi lína er svo ofboðs-
lega fín.“n
Þessi fína lína
Vinkon-
urnar
hefðu ekki
á nokkurn
hátt getað
ímyndað
sér að þær
væru í
hættu.
Spurning hvort það taki ekki einhverjir hið fræga dansspor Jóns Hjaltalín úr
Verbúðinni í kvöld? MYND/AÐSEND
Aldamót
Klaustur bar sem var sjónarsvið
eins alræmdasta pólitíska skandals
síðari ára hefur gengið í endur-
nýjun lífdaga, heitir nú Aldamót
og er orðinn eitt f lottasta öldurhús
miðbæjarins. Staðurinn er vin-
sæll hjá blaðamönnum jafnt sem
pólitíkusum og býður upp á gott
úrval drykkja og léttan mat. Alda-
mót bera bjórinn enn fram í 0,5 lítra
glasi á 950 krónur á happy hour. Þá
eru barþjónarnir einkar hressir og
hika ekki við að slá á létta strengi.
The Rehearsal
Þáttaröðinni The Rehearsal, þar
sem hinn magnaði Nathan Fielder
leggur upp með að aðstoða fólk við
að æfa sig fyrir mikilvægar stundir
og ákvarðanir í lífinu á gaman-
saman hátt, má finna á streymis-
veitunni HBO Max. Er líður á
þættina verða hlutirnir flóknari og
alvarlegri þar sem varpað er upp
áleitnum spurningum um lífið, til-
veruna og siðferði, þar sem skilin
milli raunveruleika og skáldskapar
verða afar óskýr. n
Winston Churchill var fyrsti for-
sætisráðherra Elísabetar II. Breta-
drottningar. Hann fæddist 1874.
Liz Truss var sá síðasti. Hún fæddist
1975.
Jafnvel hörðustu andstæðingar
konungdæmisins hljóta að viður-
kenna að Elísabet var einstök. Með
henni er gengin síðasta óumdeilda
manneskjan í konungsfjölskyld-
unni – límið sem hélt breska sam-
veldinu saman, segja sumir.
Breska konungsfjölskyldan er
óneit anlega hálf misheppnuð.
Óttalegur vandræðagangur á flest-
um fjölskyldumeðlimum. Upp úr
standa hins vegar tvær konur, Elísa-
bet II. og móðir hennar og nafna,
sem lést 101 árs fyrir 20 árum.
Ætli hugur þegna Elísabetar
til drottningar sinnar komi ekki
nokkuð vel fram í bókinni BFG eftir
Roald Dahl. Þegar bergrisinn frómi
góði og Soffía standa frammi fyrir
nær óleysanlegu vandamáli ákveða
þau að leita á náðir Englandsdrottn-
ingar, sem bregst þeim ekki, enda
traust sem klettur.
Mæðgurnar og nöfnurnar höfðu
ríkt skopskyn, og veitti sennilega
ekki af því í því hlutverki sem þær
léku. Sagan segir að drottningar-
móðirin, sem var með hverja mín-
útu dagsins skipulagða nokkra
mánuði fram í tímann, hafi á
hverjum morgni látið setja dýr-
indis kampavínsflösku í kæli, ef ske
kynni að einhver kíkti í heimsókn.
Í eftirmiðdaginn lét hún svo opna
flöskuna þótt enginn hefði komið
óvænt í heimsókn. Annars færi
kampavínið bara til spillis, sagði
Ekkert verður aftur samt – lífið heldur áfram
hún, þar sem það þyldi bara kælingu
einu sinni. Starfsfólkið í Clarence
House naut góðs af.
Sumir telja persónulegar vinsæld-
ir Elísabetar II. hafa ráðið úrslitum
þegar Skotar höfnuðu því að slíta sig
úr ríkjasambandi við Englendinga í
þjóðaratkvæðagreiðslu 2014. Margir
hafi ekki getað hugsað sér að hafna
drottningu sinni með þeim hætti.
Óvíst er með breska samveldið og
samstöðu Breta um konungdæmið
nú þegar sameiningartáknið er
horfið af sviðinu. n
Fyrsti
forsætis-
ráðherra
Elísabetar
var fæddur
1874 og
sá síðasti
1975.
22 Helgin 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 10. september 2022 LAUGARDAGUR