Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 24
Við höfðum alltaf farið
í helgarferðir en nú
ætluðum við á sólar-
strönd og njóta okkar,
en ferðin endaði
aðeins öðruvísi en hún
átti að gera.
Nú eftir helgina er liðið eitt ár
frá örlagaríku slysi sem Svava
Magnúsdóttir og vinkon-
uhópur hennar urðu fyrir á
Tenerife þegar toppur af háu
pálmatré féll á þær, þar sem
þær höfðu nýverið sest niður
á veitingastað. Svava varð
fyrir alvarlegum mænuskaða
og er lömuð fyrir neðan mitti.
Þegar Svava Magnúsdóttir
gekk út af heimili sínu og
fjölskyldu sinnar í Kárs-
nesinu við dagrenningu
í byrjun september á síð-
asta ári óraði hana ekki fyrir því að
þangað kæmi hún ekki inn aftur.
Hún var á leið í vikuferð ásamt vin-
kvennahópnum úr Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ. Eftir að börnin
fóru að koma í heiminn eitt af öðru
tóku vinkonurnar fimm upp þann
sið að fara saman erlendis annað
hvert ár, var þetta í fyrsta sinn sem
ferðin var meira en helgarferð.
Ætlunin var að njóta góða veðurs-
ins sem eyjan hefur upp á að bjóða
og það tókst þeim svo sannarlega,
fyrstu fimm dagana.
Nýtt heimili fjölskyldunnar
Við hittumst á nýju heimili fjöl-
skyldunnar í Urriðaholti en breyttar
aðstæður Svövu kölluðu á nýtt hús-
næði. „Eftir tæplega 19 ár í Kárs-
nesinu hélt ég að það yrði erfitt að
flytja en svo fann ég að ég tengi ekki
við steinsteypuna. Hér er allt mitt
og hér eru þeir,“ segir Svava og á þá
við sambýlismann sinn, Björn Svein-
björnsson, og synina tvo, Daníel Frey
og Róbert Aron sem eru 18 og 22 ára.
Svava er menntaður ferðamála-
fræðingur og starfar hjá Icelandair
í viðskiptaþjónustu. „Þar þjónusta
ég fyrirtæki varðandi f lugmiða
fyrir starfsfólk og slíkt.“ Aðspurð
hvort ferðalög séu stórt áhugamál
hlær Svava og jánkar því. Útivist og
fjallgöngur hafa einnig verið pláss-
frekt áhugamál hin síðari ár. „Eftir
að strákarnir stækkuðu fór ég að
hugsa: Hvað langar mig að gera?
Árið sem ég varð 35 ára sagði Maja
vinkona mín, sem var að æfa með
mér í Sporthúsinu, að hún ætlaði á
Hvannadalshnjúk áður en hún yrði
35 ára og bauð mér að koma með.“
Ætlaði aftur á Hvannadalshnjúk
Svava hugsaði sig ekki tvisvar um
áður en hún tók tilboðinu og þar
með kynntist hún fjallgöngum sem
áttu eftir að taka sitt pláss næstu
árin. „Ég hafði varla kynnst fjall-
göngum áður en við undirbjuggum
okkur allan veturinn og náðum á
Hnjúkinn í lok maí 2009 í snarvit-
lausu veðri þar sem við sáum ekki
neitt. Þetta var virkilega langur
dagur. Upp frá þessu hugsaði ég
alltaf: Þarna verð ég að fara aftur! En
það verður nú ekki úr þessu,“ segir
Svava og lítur niður á hreyfingar-
lausa fótleggina í hjólastólnum.
„Aftur á móti hef ég gengið á Snæ-
fellsjökul, Eyjafjallajökul tvisvar,
Eiríksjökul og farið í margar aðrar
skemmtilegar fjallgöngur. Ég var í
nokkur ár með Ferðafélagi Íslands í
fjallaverkefni þar sem gengið er eitt
til tvö fjöll á mánuði. Ég plataði svo
Sillu, Sigurbjörgu Jódísi vinkonu
mína, með mér í gönguhóp með
fjallafélaginu Veseni og vergangi og
það var alveg frábær félagsskapur.
Við gengum þá alla þriðjudaga og
fimmtudaga og einn laugardag í
mánuði. Við vorum komnar með
ísöxi og brodda og fannst við æðis-
lega vígalegar,“ segir hún og hlær.
„Og á meðan á Covid stóð var ég
dugleg að fara út að leika, ég fór í
fjallgöngur, hjólaði í vinnuna og fór
út að hlaupa,“ segir Svava sem fór
fyrir gönguhóp á vinnustað sínum.
Eins og heyra má var Svava mjög
virk í hreyfingu og segir gott líkam-
legt form líklega hafa hjálpað henni
í endurhæfingu.
„Við Silla vorum mikið í þessu
tvær saman og hún hefur ekki treyst
sér í að halda áfram ein. Hún hefur
sagt við mig að hún vilji ekki fara án
mín, því þetta var svona okkar.“
Ferðuðust saman annað hvert ár
Vinkvennahópurinn úr fjölbraut
fór í fyrstu utanlandsferðina saman
árið 2008 og hefur haldið þeim sið
að leggja alltaf fyrir mánaðarlega og
fara svo saman í ferð annað hvert ár.
„Þessi Tenerife-ferð var í fyrsta
sinn sem við ætluðum að vera í heila
viku og hafa þetta svolítið grand.
Við höfðum alltaf farið í helgarferðir
en nú ætluðum við á sólarströnd og
njóta okkar, en hún endaði aðeins
öðruvísi en hún átti að gera,“ segir
hún alvarleg.
Hópurinn kom til Tenerife á
miðvikudegi, fór í göngu á vegum
Tenerife ferða á fimmtudeginum
frá Santiago del Teide yfir í Masca.
„Sú ganga var frábær þó heitt væri.“
Á föstudag slökuðu vinkonurnar
á í hótelgarðinum við sundlaugina
og fóru svo í aðra ferð á vegum
ferðaskrifstofunnar á laugardeg-
inum.
Af hverju get ég ekki andað?
„Á sunnudeginum ákváðum við
svo að taka rölt meðfram strönd-
inni, fórum í fótanudd og fiska-spa,
vorum bara í sundfötum og kjólum
yfir. Við ákváðum svo að kíkja inn
á þennan stað sem stendur við
ströndina, við völdum hann því
hann heitir Moli eins og hundur
Guðbjargar, okkur fannst það bara
voða skemmtileg tilviljun.
Okkur var vísað til sætis og ég
sat við hliðina á Sif og Silla var á
endanum og Guðbjörg og Íris sátu
á móti okkur. Við vorum nýbúnar
að leggja frá okkur símana eftir að
hafa skoðað matseðlana þar, þegar
ég skyndilega gat ekki andað. Allt
í einu var ég bara í keng og hugs-
aði bara með mér: Af hverju get ég
ekki andað? Hvað í fjandanum er
í gangi?“ segir Svava sem gerði sér
illa grein fyrir því hvað hafði gerst
en toppur af sex til átta metra háu
pálmatré hafði brotnað af og fallið
niður þar sem vinkonurnar sátu og
gerðu sig tilbúnar til að panta.
„Tréð féll á mig og Sif, blöðin féllu
yfir borðið og skrámuðu þær sem
sátu móti okkur. Ég heyrði bara
stelpurnar öskra upp yfir sig: „Guð
minn góður, Svava!“ og Silla kom að
mér, hélt í höndina á mér þegar ég
sagði við hana: „Ég finn ekki fyrir
fótunum.“ Ég var í sandölum og
horfði á fætur mína líflausa og end-
urtók að ég gæti ekki hreyft þá. Ég
heyrði hana þá garga „She can’t feel
her legs!“ Þjónninn hélt svo stólnum
til að reyna að halda mér uppi. Silla
hefur sagt mér að hún hafi séð þetta
augnablik ljóslifandi lengi á eftir
þegar hún lokaði augunum: Andlit
mitt og hræðsluna.“
Svava var í
vinkonuferð á
Tenerife þegar
lífið breyttist
til frambúðar.
„Þær sem ekki
slösuðust
alvarlega eru
líka lemstraðar
á sálinni, enda
held ég að það
sé mjög erfitt
að horfa upp á
vinkonur sínar
svona mikið
slasaðar. Ég
hefði ekkert
endilega viljað
vera í þeirra
sporum heldur.“
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Ég læt þennan
hjólastól ekki
skilgreina mig
24 Helgin 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ