Fréttablaðið - 10.09.2022, Qupperneq 26
Brúðkaup í næsta mánuði
Svava fór aldrei aftur inn á heimili
sitt, heimilið sem hafði hýst fjöl-
skylduna í tæplega 19 ár og þar sem
þeim hafði alltaf liðið vel.
„Læknirinn á Grensás hvatti okkur
til að gera ráðstafanir enda liði tím-
inn hratt. Við settum íbúðina okkar
sem var á þriðju hæð á sölu og hún
seldist strax.“
Svava og Bjössi skoðuðu svo fram-
tíðarheimili á netinu enda var hún
ekki fær um að fara í skoðunarferðir
vegna Covid-takmarkana. Þegar
heimilið sem þau nú búa á kom upp
fékk hún þó leyfi til að skoða.
„Við fengum sjúkraþjálfara og
iðjuþjálfa til að koma með okkur
til að taka íbúðina út og skoða hvað
þurfti að gera.“
Þau þurftu að ráðast í einhverjar
framkvæmdir, aðallega á baðher-
bergi, svo Svava gæti athafnað sig
þar. Á meðan Svava safnaði kröftum
og lærði á nýtt líf þurfti Bjössi ekki
aðeins að sjá um heimilið heldur
selja það, pakka búslóð og flytja.
„Hann er búinn að standa sig eins
og hetja, þessi elska,“ segir Svava um
sambýlismann sinn til tæpra þrjátíu
ára sem í október verður eiginmaður
hennar.
„Ég bað hans á aðfangadagskvöld
heima hjá foreldrum mínum fyrir
framan þau og synina. Slysið ýtti við
manni og maður hugsar: Hvað ef?
og enginn veit hvað átt hefur fyrr en
næstum því misst hefur,“ segir Svava
sem pakkað hafði inn hringum í gjöf
til Bjössa.
„Þetta kom honum algjörlega á
óvart,“ segir Svava en ætlunin er að
fagna með vinum og nánustu fjöl-
skyldu í næsta mánuði um leið og
sambandið verður innsiglað.
„Við ætluðum alltaf að gifta okkur
en svo leið tíminn. Nú er ég bara hætt
að bíða eftir rétta tímanum og ein-
hverju svoleiðis bla. Rétti tíminn er
núna! Það á ekki alltaf að bíða eftir
að passa í rétta andskotans kjólinn.
Keyptu þér bara kjól sem passar! Við
erum í því að lifa og njóta lífsins og
búin að fara í þrjár utanlandsferðir á
árinu og tvær eftir,“ segir Svava sem
viðurkennir að hafa kviðið fyrir
fyrstu ferðinni, hvernig myndi ganga
að ferðast í hjólastól og með öllu sem
því fylgir, en hún hafi þó gengið vel.
Málsókn gegn sýslunni
„Ég held að þetta hafi jafnvel styrkt
okkar samband. Ég vissi að hann
væri frábær – en ekki að hann væri
svona frábær. Hann hefur algjör-
lega séð um öll tryggingamál og allt
það,“ segir Svava en þau vinna nú í
málsókn gegn sýslunni Arona vegna
slyssins enda tréð á ábyrgð hennar.
„Það er bara í ferli og á eftir að taka
einhvern tíma.“
Svava fór aftur til vinnu 1. apríl
í 20 prósent starfshlutfall. „Sam-
starfsfólk mitt hjá Icelandair hefur
verið algjörlega frábært. Yfirmaður
minn var búinn að segja að ég kæmi
bara þegar ég vildi og ef ég vildi. Það
var engin pressa. Hún kom til mín
upp á Grensás með fulla tösku af
gjöfum og baráttukveðjum frá fyrir-
tækinu,“ segir Svava en gerðar voru
viðeigandi ráðstafanir á skrifstofu-
húsnæðinu svo Svövu liði vel og hún
kæmist auðveldlega um.
Svava keypti annan bíl í haust
sem var útbúinn í vor með hand-
stýribúnaði og er alsæl með að kom-
ast sjálf leiðar sinnar. „Mér hefur
aldrei liðið eins fatlaðri og þegar
ferðaþjónusta fatlaðra sótti mig á
tilskildum tíma, mér var rúllað inn í
lyftu, lyft inn í bíl og fest niður fann
ég að slíkur ferðamáti hentaði mér
ekki,“ segir Svava. „Ég er náttúrlega
í sjálfstæðisbaráttu eins og tveggja
ára krakki,“ bætir hún við og hlær.
Ég er enn þá sama Svava
Það dylst ekki í spjalli við Svövu
að það er karakter hennar sem
hefur fleytt henni svona langt á svo
stuttum tíma og segist hún gera allt
sjálf. „Ég fékk fyrst heimahjúkrun
en setti mér fljótt markmið um að
geta séð um mig sjálf og þurfa þann-
ig ekki að fá hjúkkur annan hvern
dag á tilteknum tíma. Ég ætla ekkert
að láta þennan hjólastól skilgreina
mig. Ég er enn þá sama Svava og þeir
sem þekkja mig vita það.“
Svava nýtti sér sálfræðing á
Grens ás við að vinna úr áfallinu og
líka höfuðbeina- og spjaldhryggs-
meðferð hjá kærum vini, sem
stendur enn yfir. Hún segist ekki
finna fyrir biturð yfir slysinu eða
afleiðingum þess.
„Þetta voru fáránlegar aðstæður
sem við hefðum engan veginn getað
ráðið við. Það er ekki eins og ég hafi
verið í paragliding,“ segir hún með
áherslu. „Það var smá vindur en
það var fólk úti um allt og okkur
var vísað til borðs þarna. Ef ég hefði
verið lengur á klósettinu hefði ég
kannski komið upp og komið að
stelpunum undir tré. Hefði það
verið eitthvað betra? Ég er ekkert
viss um það.“
Skilar engu að hugsa „hvað ef?“
Hún viðurkennir að vinkvennahóp-
urinn hafi í heild sinni ekki talað
mikið um atburðinn sem breytti lífi
þeirra fyrir ári síðan.
„Það er erfitt fyrir okkur að tala
um þetta og núna 12. september er
ár frá slysinu og ég er búin að bjóða
þeim að koma til mín þennan dag í
knús og kósí. Upplifun okkar allra
er einstök. Þær sem ekki slösuðust
alvarlega eru líka lemstraðar á sál-
inni, enda held ég að það sé mjög
erfitt að horfa upp á vinkonur sínar
svona mikið slasaðar. Ég hefði ekkert
endilega viljað vera í þeirra sporum
heldur.
Við vorum allar saman. Af hverju
raðaðist þetta svona niður en ekki
öðruvísi? Það má ekkert hugsa
svona. Það er svo erfitt að hugsa
„hvað ef?“ og það skilar mér engu
nema depurð þannig að við verðum
bara að líta á að þetta muni styrkja
okkar vináttu og við förum í gegnum
þetta saman. Það er bara þannig.“
Eins og fyrr segir er komið ár frá
slysinu og ár frá síðustu ferð hópsins.
Það hlýtur að þýða að tími sé kom-
inn á næsta ferðalag.
„Já, við Guðbjörg vorum að ræða
það um daginn að það þyrfti að
fara að leggja drög að næstu ferð.
Ég sagði að það væri ekki ráð nema
í tíma væri tekið með svona vesen-
ispésa eins og mig enda krefjast
ferðalög núna meiri skipulagn-
ingar. Það verður bara dásamleg
ferð,“ segir Svava sem lætur engan
bilbug á sér finna – enda skilgreinir
hjólastóllinn hana ekki – hún er enn
sama Svava, bara með nýjar áskor-
anir. n
Svava ásamt Sillu vinkonu sinni í Landmannalaugum í fyrra. Þetta reyndist síðasta ganga Svövu með hópnum Veseni
og vergangi. Þó að göngurnar verði ekki fleiri er hún ákveðin í að leika sér áfram, á annan hátt. MYND/AÐSEND
Þetta voru fáránlegar
aðstæður sem við
hefðum engan veginn
getað ráðið við. Það er
ekki eins og ég hafi
verið í paragliding.
Svava ásamt Bjössa sem hún ætlar að giftast í næsta mánuði. Hún bað hans
um síðustu jól, eftir 19 ára samband, enda hætt að bíða eftir rétta tímanum.
26 Helgin 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ