Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 35

Fréttablaðið - 10.09.2022, Page 35
Árangur og farsæld viðskiptavina og samstarfsaðila er lykilatriði í okkar velgengni og það sem við brennum fyrir. Við erum þekkt fyrir að skapa virði, veita faglega ráðgjöf og sérfræðiþekkingu. Með skapandi nálgun og starfsgleðina að vopni leitum við sífellt betri leiða að bættum árangri fyrir samstarfsaðila okkar. Við höfum þrjú grunngildi sem skilgreina hver við erum og hvað við gerum: Ástríða – Árangur – Sköpunargleði. Umsjón með starfinu hefur Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn. Viltu vera í Vinnvinn teyminu? Við hjá Vinnvinn hlökkum til að mæta í vinnuna alla daga vikunnar vegna þess að við elskum það sem við gerum. Nú leitum við að ráðgjafa sem hefur brennandi áhuga á fólki, er lipur í samskiptum og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Svona eins og við! Árangur annarra er okkar velgengni svo við leggjum gríðarlegan metnað í okkar starf. Starfssvið: • Mat og greining á umsækjendum, viðtöl og umsagnaleit. • Ráðgjöf við stjórnendur í fyrirtækjum og innan stjórnsýslu á sviði ráðninga. • Fyrirlögn og túlkun persónuleikamats, hæfnisprófa og verkefna. • Eftirfylgni ráðninga. • Ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit. • Önnur tilfallandi verkefni á sviði ráðninga. Hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Ástríða fyrir fólki. • Brennandi áhugi á mannauðs- og vinnumarkaðsmálum. • Lipurð og framúrskarandi samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi. • Árangursdrifni, frumkvæði og drifkraftur. • Ögun í vinnubrögðum og sveigjanleiki. • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli. Umsóknarfrestur er til og með 20. september nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. CERT-ÍS er netöryggissveit á vegum Fjarskiptastofu. Sveitin hóf formlega starfsemi árið 2013. Helstu verkefni netöryggissveitarinnar CERT-IS er ástandsvitund um stöðu netöryggismála ásamt atvikameðhöndlun þegar netatvik verða. Með sjálfstæðri skipulagseiningu netöryggissveitarinnar er verið að tryggja sjálfstæða úrvinnslu upplýsinga og atvika í fullum aðskilnaði frá öðrum sviðum. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og settur fram rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsjón með starfinu hafa Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Garðar Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is). Sérfræðingar í netöryggissveitina CERT-ÍS hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvu- og netkerfum sem falla undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum. Einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á netöryggi Íslands til framtíðar. Helstu verkefni og ábyrgð • Þátttaka í atvikameðhöndlun CERT-ÍS. • Þróa og taka þátt i netöryggisæfingum. • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi um netöryggismál. • Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi netöryggismál. • Náin samvinna með sviðshópum CERT-ÍS. • Vinna við atvika-, veikleika- og búnaðargreiningu. Hæfniskröfur • Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk- eða tölvunarfræði eða víðtæk reynsla af netöryggi. • Brennandi áhugi á upplýsingaöryggi og upplýsingatækni. • Reynsla af netöryggi kostur. • Reynsla af atvikagreiningu tengd upplýsingatækni er kostur. • Gott vald á íslensku og ensku, og búa yfir ríkulegri samskiptafærni meðal annars að geta miðlað tæknilegum upplýsingum. • Samstarfshæfni, jákvætt viðhorf og eiga auðvelt með að vinna í hóp. • Hæfni til ákvarðanatöku við flóknar og krefjandi aðstæður. • Góður skilningur á upplýsingatækni og geta til að meta upplýsingar með tilliti til áhættu og áhrifa. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 20. september nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.