Fréttablaðið - 10.09.2022, Side 45
Mosfellsbær www.mos.is 525-6700
Leiðtogi upplýsinga stjórnunar og
starf lögfræðings hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær leitar að framúrskarandi og metnaðarfullum
leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af
stafrænni umbreytingu og vinnu með upplýsingar og gögn.
Um starf leiðtoga upplýsingastjórnunar
Leiðtogi upplýsingastjórnunar hefur faglega forystu á sviði stafrænnar
umbreytingar, varðveislu upplýsinga og gagna Mosfellsbæjar og ber jafnframt
meginábyrgð á þróun og umbótum á sviði skjalavörslu bæjarins. Um er að ræða
fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og
fagmennsku.
Leiðtogi upplýsingastjórnunar starfar náið með stjórnendum sviða, stoðdeilda
og stofnana sveitarfélagsins. Þá ber viðkomandi ábyrgð á þróun skjalastefnu og
verklags og leiðbeinir um daglega umsýslu gagna. Enn fremur gegnir leiðtoginn
lykilhlutverki í ráðgjöf og fræðslu til starfsfólks um allt sem tengist vinnu með
upplýsingar og gögn sveitarfélagsins og styður við hagnýtingu þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Mótun framtíðarsýnar og aðgerðaáætlana á sviði stafrænnar umbreytingar
og forgangsröðun verkefna.
• Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri
sveitarfélagsins.
• Mótun skipulags og lausna á sviði skjalavörslu og yfirumsjón með
afhendingu skjala til héraðsskjalasafns Mosfellsbæjar.
• Miðlun upplýsinga og þekkingar til starfsfólks um stafræna þróun,
skjalamál og aðferðir þar að lútandi.
• Að greiða fyrir innleiðingu nýrra verkefna og lausna.
• Þátttaka í faghópum sveitarfélaga um stafræna umbreytingu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun kostur.
• Reynsla af greiningu og miðlun gagna.
• Þekking og reynsla af stefnumótun og notendamiðaðri hönnun.
• Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir.
• Þekking og reynsla af stafrænni umbreytingu.
• Reynsla af skjalastjórnun og notkun rafrænna skjalavistunarkerfa.
• Hæfni til að greina og túlka upplýsingar og gögn og miðla þeim á
auðskiljanlegan hátt.
• Mjög góð alhliða þekking og reynsla á sviði tölvu- og upplýsingatækni,
stafrænum umbreytingaverkefnum og hugbúnaðarþróun er skilyrði.
• Framúrskarandi samskiptahæfni, geta til að taka frumkvæði og lausnamiðuð
hugsun er skilyrði.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 25. september 2022.
Sækja skal um störfin á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir
skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun
og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar,
í síma 525-6700 eða í netfangi: arnar@mos.is. Um framtíðarstöður er að ræða. Öllum
umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitar-
félaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, með fjölbreyttan
menningarlegan bakgrunn og fólk með fötlun til að sækja um.
Um starf lögfræðings
Mosfellsbær leitar að lögfræðingi sem hefur þekkingu og reynslu á sviði
stjórnsýslu og býr yfir nákvæmni í vinnubrögðum. Starfið felur í sér lausn
fjölbreyttra lögfræðilegra verkefna og ráðgjöf á málefnasviðum sveitarfélagsins.
Helstu verkefni
• Vinna við verkefni þar sem reynir á túlkun laga og reglugerða á málefna-
sviðum sveitarfélagsins m.a. á sviði sveitarstjórnarréttar, skipulags-
og byggingarmála, fræðslumála, félagsþjónustu, barnaverndar og
almennrar stjórnsýslu.
• Veita lögfræðileg álit og ráðgjöf um afgreiðslu einstakra mála.
• Undirbúningur stjórnsýsluákvarðana og ákvarðana um lögfræðileg málefni.
• Ráðgjöf við samningagerð og útboð og aðra skjalagerð bæjarins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði er skilyrði.
• Lágmark fimm ára starfsreynsla.
• Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Þekking á löggjöf á málefnasviðum sveitarfélaga er æskileg.
• Góð samskiptafærni og tölvukunnátta er nauðsynleg.
• Góð rit- og talfærni á íslensku og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði.