Fréttablaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 51
Teymisstjóri
hjá félagsþjónustu
Við erum að leita eftir áhugasömum og metnaðarfullum
einstaklingi til að taka þátt í mikilvægum félagsþjón-
ustuverkefnum ásamt umbóta- og þróunarverkefnum á
fjölskyldusviði Árborgar. Í sveitarfélaginu, þar sem búa 11
þúsund manns, er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og
framsækið starf í velferðar-, frístunda- og skólaþjónustu.
Fjölskyldusvið sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa Árborgar
með snemmtækan stuðning að leiðarljósi.
Um er að ræða stöðu teymisstjóra í fullorðinsteymi félags-
þjónustu og leiðir viðkomandi ráðgjafarstarf í samvinnu við
deildarstjóra. Málaflokkar sem heyra undir fullorðinsteymi
eru félagsleg ráðgjöf, stuðningur við aldraða og fatlaða,
húsnæðismál og móttaka flóttamanna. Þverfagleg teymsi-
vinna fagfólks á fjölskyldusviði er mikil sem og stefnumót-
unarvinna, innleiðing rafrænna lausna og þróun verkferla.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. desember nk. eða eftir
nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á starfi fullorðinsteymis félagsþjónustunnar
• Verkefnastjórnun og yfirumsjón með málum teymisins
• Leiðbeina starfsfólki félagsþjónustu og veita því hand-
leiðslu og ráðgjöf
• Þátttaka í umbótastarfi út frá stefnu sveitarfélagsins og
félagsþjónustulögum
• Samstarf við aðrar deildir og starfseiningar fjölskyldu-
sviðs
Menntunar og færnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda,
s.s. félagsráðgjöf til starfsréttinda
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
• Reynsla og þekking á meginverkefnum félagsþjónustu
nauðsynleg
• Reynsla af stjórnun er mikill kostur
• Þekking á stjórnsýslu, lögum og reglugerðum
• Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og leiðtogahæfileikar
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Frekari upplýsingar um störfin:
Nánari upplýsingar um störfin veitir:
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, deildarstjóri félagsþjónustu,
heidaosp@arborg.is, sími 480-1900.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna
í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika sam-
félagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 18. september
Með umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, kynn-
ingarbréf, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og framtíðarsýn
umsækjanda varðandi þróun velferðarþjónustu hjá sveitar-
félögum.
Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningar-
vef sveitarfélagsins.
Allar umsóknir gilda í 6. mánuði.
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Lögfræðingur á
tollgæslusviði Skattsins
Skatturinn leitar að drífandi og öflugum lögfræðingi til starfa á tollgæslu-
sviði Skattsins. Hlutverk tollgæslusviðs er að tryggja að farið sé að lögum
og stjórnvaldsfyrirmælum við inn- og útflutning vara. Til að sinna þessu
hlutverki hefur tollgæslusvið m.a. eftirlit með inn- og útflutningi á vörum
sem og eftirlit með ferðum og flutningi fara og fólks til og frá landinu auk
eftirlits með flutningi og geymslu á ótollafgreiddum varningi innanlands.
Þá annast tollgæslusvið tollendurskoðun. Mikilvægt hlutverk sviðsins
er að stuðla að framþróun og að tollframkvæmdin verði sem skilvirkust
og árangursríkust. Um er að ræða 100% starf á starfsstöð Skattsins að
Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.
Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni:
• Uppkvaðning úrskurða í kærumálum embættisins og tollskyldra aðila.
• Ritun umsagna um lagafrumvörp er varða málefni tollgæslusviðs.
• Veiting umsagna um kærumál til fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
ríkislögmanns og yfirskattanefndar auk annarra stjórnvalda.
• Afgreiðsla og eftirfylgni í tengslum við ýmsar leyfisveitingar.
• Ráðgjöf og svörun erinda um lögfræðileg álitaefni í tengslum við
tollframkvæmd sem m.a. lýtur að starfsemi tollafgreiðslu og tolleftirlits.
• Gerð verklagsreglna og útgáfa efnis á heimasíðu.
• Möguleg kennsla við tollskólann.
• Þátttaka í verkefnum tollgæslusviðs.
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði tollamála.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, meistaragráða æskileg
(lágmarksmenntun er bakkalár gráða).
• Reynsla af lögfræðistörfum er kostur.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Gott vald á einu Norðurlandamáli í töluðu og rituðu máli.
• Frumkvæði og metnaður.
• Fáguð framkoma og mikil færni í mannlegum samskiptum.
• Þjónustulund og jákvætt viðmót.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hörður Davíð Harðarson, yfirtollvörður, í síma
442-1000 eða með tölvupósti á netfangið hordur.d.hardarson@skatturinn.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs,
starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk
annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi
stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20. september nk. og verður öllum
umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
intellecta.is
RÁÐNINGAR