Fréttablaðið - 10.09.2022, Side 86

Fréttablaðið - 10.09.2022, Side 86
tsh@frettabladid.is Norræna húsið býður upp á veglega dagskrá í dag þegar myndlistarsýningin Growing Body of Evidence verður opnuð. Á meðal viðburða er listrænn súludans á þaki Norræna hússins með lista­ konunni Frznte. Í dag verður sýningin Growing Body of Evidence opnuð í Norræna hús­ inu þar sem listamennirnir Aneta Grzeszykowska, Colette Sadler og Varna skoða hugtök eins og líkam­ leika, hið manngerða og tilbúna og það hvernig litið er á mannslík­ amann sem forsendu og f lytjanda þekkingar. Sýningin er hluti af við­ burðaröðinni Goethe Morph* Ice­ land og samhliða opnuninni verður haldinn listgjörningur þar sem Frznte dansar listrænan súludans á þaki Norræna hússins. „Goethe Morph er alþjóðlegt samstarfsverkefni á milli Goethe Institut og Norræna hússins undir listrænni stjórn Arnbjargar Maríu Danielsen og Thomas Schaupp sem nær hápunkti sínum á hátíðardegi í dag 10. september og í tilefni hans verðum við með sýningar allan daginn. Dagskráin byrjar klukkan eitt með Omuama þátttökuhljóð­ gjörningi í samstarfi við þýska sendiráðið. Aðalhluti hennar byrjar klukkan fimm, við verðum með matargjörning frá hinum magnaða keníska mataraktívista og kokki Chef Kabui og svo verður sýningin Growing Body of Evidence opnuð,“ segir Arnbjörg María Danielsen sýningarstjóri. Töfra fram súlu á þakinu Gjörningur Frznte á þaki Norræna hússins sem ber heitið Spinning Rooftops hefst klukkan 17.45. Spurð um hvort það sé ekki erfitt að koma súlu fyrir á þaki Norræna hússins segir Arnbjörg: „Við kunnum ýmislegt fyrir okkur hér. Við erum bara með alveg brjálæðislega gott teymi sem töfrar fram súlu á þakinu. Það eru bara galdrar.“ Growing Body of Evidence verður opnuð klukkan 18 í dag og stendur yfir til 18. desember. „Við erum aðallega að vinna með líkamann og líkamleika og forn­ leifafræði framtíðar. Við erum að skoða líkamann sem einhvers konar tól eða miðil til þess að varðveita og af byggja þekkingu og minningar,“ segir Arnbjörg. Eftirlíking af sjálfri sér Verkið Model er ljósmyndaröð eftir hina pólsku Anetu Grzeszykowska þar sem listamaðurinn tekur ljós­ myndir af nákvæmri eftirmynd af sjálfri sér úr silíkoni sem var fram­ leitt í verksmiðju. „Hún er alþjóðlega þekkt lista­ kona og sýnir á Feneyjatvíæringn­ um núna. Þetta eru sjálfsmyndir þar sem hún er búin að búa til full­ komna eftirmynd af sínum eigin líkama til þess að reyna að fjarlæg­ ast sig sjálfa. Verkið er áhugaverður spegill á sjónræna menningu sam­ tímans,“ segir Arnbjörg. Verkið ARK 1 – Towards a Future Archeology eftir Colette Sadler er vídeóinnsetning og dansgjörn­ ingur þar sem tilviljanakennd framtíð mannkynsins er könnuð í ljósi þeirra breytinga sem gervi­ greindarbyltingin og loftslagsham­ farir munu hafa í för með sér. „Þetta er vísindaskáldskapur þar sem við erum komin inn í fram­ tíðina. Það er alveg stórkostlegur dansari sem heitir Leah Marojevic sem túlkar einhvers konar leifar af mannlegu minni unnið úr algrími í gegnum líkamann á opnunar­ deginum og sunnudeginum,“ segir Arnbjörg. Grænlenskur trommudans Að lokum er svo verkið Oqiliall­ anneq / Relief eftir grænlenska trommudansarann og sviðslista­ manninn Varna í samstarfi við hljómlistarkonuna Sölku Vals­ dóttur. Hljóðheimur Vörnu er innblásinn af austur­grænlenskum trommu­ dansi sem hún hefur fengið í arf frá forfeðrum sínum. Varna vinnur með fútúrískar staðalmyndir ínú­ tíamenningar og veltir upp erf­ iðum spurningum um varðveislu á andlegum og listrænum arfi í sam­ hengi við uppgjör safnaaðferðar og nýlenduarfleifðar. Dagana 13. til 15. september fer svo fram lokaviðburður Goethe Morph* Iceland, tilraunaráðstefnan Unexpected Lessons, Decolonizing Nature í samstarfi við Talking Objects Lab. n Sýningaropnun og súludans í Norræna húsinu Arnbjörg María Danielsen er sýningarstjóri sýningarinnar Growing Body of Evidence í Norræna húsinu og verkefnis- ins Goethe Morph* Iceland ásamt Thomas Schaupp. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Frznte mun flytja listrænan súludans á þaki Norræna hússins í dag. MYND/SILKE BRIEL SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1-3 // Sími 555 2900 Matseðill og borðapantanir á saetasvinid.is Eggs Benedict, amerískar pönnukökur, avókadó rist, mega brunch og fleiri girnilegir réttir og brunch kokteilar. G”EGGJAД SPENNANDI SEÐILL GASTROPUB HELGAR BRUNCH laugardaga og sunnudaga 11.30–14.30 46 Menning 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.