Fréttablaðið - 10.09.2022, Síða 90
Í Löðrinu fæ ég útrás til
þess að gera stór, mikil
og dramatísk popplög
sem er svona smá
sakbitin sæla hjá mér.
Einar Örn
Jónsson
POP UP
KEX HOSTEL
MERKJAMARKAÐURINN STENDUR YFIR 8.-11. SEPTEMBER
SKÚLAGATA 28
*ásamt fleiri merkjum
- MERKI FYRIR MINNA -
herrar
AÐEINS ÞESSA HELGI
LAUG & SUN OPIÐ 11:00-18:00
allt að
60%
AFSLÁTTUR
MERKJAMARKAÐUR
Þriðja smáskífa ballöðu
sveitarinnar Löðurs, Þegar þú
ert hér, kom út í vikunni en
segja má að fjölskyldufundur
standi að baki meðfylgjandi
tónlistarmyndbandi þar sem
tvö barna Einars Arnar Jóns
sonar sáu um leikstjórn, upp
tökustjórn og klippingu.
toti@frettabladid.is
Einar Örn Jónsson, þekktastur
sem hljómborðsleikari Í svörtum
fötum, skemmtir sér við að semja
ballöður með hljómsveitinni
Löðri. Þriðja smáskífa ballöðu
sveitarinnar, Þegar þú ert hér, kom
út í vikunni ásamt tónlistarmynd
bandi þar sem nánir ættingjar og
fjölskylduvinir hans gegna mikil
vægum hlutverkum.
„Í Löðrinu fæ ég útrás til þess að
gera stór, mikil og dramatísk popp
lög sem er svona smá sakbitin sæla
hjá mér. Eða bara sæla,“ segir Einar
Örn sem fékk Stefaníu Svavars og
Dag Sigurðsson til að syngja lagið.
„Ég gerði alveg slatta af ballöðum
með Í svörtum fötum og þetta er
svona ballöðupæling með alvöru
strengjakvartett og gospelkór í
bakröddum. Ég nýt þess að fá að
gera þetta stórt með miklum hljóð
vegg.“
Tvö elstu börn Einars, Margrét
og Baldur, áttu síðan veg og vanda
af gerð myndbandsins við lagið en
Margrét er upprennandi leikstjóri
og Baldur sá um kvikmyndatöku og
eftirvinnslu.
Löðrandi hæfileikaríkur fjölskyldufundur
Stefanía Svavars
syngur Þegar þú
ert hér ásamt
Degi Sigurðs-
syni.
Kvikmyndasystkinin Baldur og Margrét Einarsbörn með leikarana ungu, Sigur-
rós Ylfu Rúnarsdóttur og Jón Benedikt Hjaltason, á milli sín. MYNDIR/AÐSENDAR
Fjölskyldan kölluð saman
„Það var bara fjölskyldufundur,“
segir Einar Örn. „Margrét er með
lítið framleiðslufyrirtæki sem hún
kallar Kvísl Productions og hefur
verið að gera myndbönd fyrir hina
og þessa. Svona minni verkefni og
er bara metnaðarfull ung kona og
ætlar að verða leikstjóri.“
Margrét stjórnaði upptökum á
myndbandinu og klippti en Baldur
sem er þekktur fyrir hlutverk sín í
Hjartasteini og Vitjunum var bak
við tökuvélina. „Þótt Baldur sé orð
inn nokkuð reyndur leikari miðað
við undan aldur þá er hann einnig
lipur fyrir aftan tökuvélarnar og
ákvað hann að fara í kvikmynda
tækninám,“ segir Einar Örn og
bætir við að líklega megi segja að
tvö elstu börnin hans séu bæði að
taka sín fyrstu skref í kvikmynda
bransanum.
Hæfileikabörn
Einar Örn segir Margréti hafa fengið
þá hugmynd að fá börn til að leika
fullorðið fólk í myndbandinu og
ekki þurfti heldur að sækja sjö ára
gamla leikarana, Sigurrós Ylfu Rún
arsdóttur og Jón Benedikt Hjalta
son, langt.
„Ég á lítinn frænda, bróðurson
minn, sem er mikið alinn upp í
kringum sviðslistir og er sífellt að
setja upp leikrit og mér fannst kom
inn tími til að gefa honum almenni
legt hlutverk.“
Einar Örn auglýsti síðan eftir sjö
ára stúlku til þess að leika á móti
frænda sínum. „Ég fékk mjög mikil
og góð viðbrögð og hafði úr mörg
um góðum að velja. Svo kom í ljós
að hún Sigurrós er dóttir góðs félaga
míns, Rúnars Freys Gíslasonar, og
það var algjörlega málið að fá hana.
Hún er rosalega mikið talent.
Hæfileikarík ung kona og nú þegar
komin með talsverða reynslu og
framtíðin greinilega björt hjá
henni,“ segir Einar Örn en Sigurrós
leikur í Svari við bréfi Helgu sem
var frumsýnd í kvikmyndahúsum
nýlega. n
50 Lífið 10. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ