Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 4
34
prósent
kvenna á vinnu-
markaði segjast upp-
lifa sig tilfinningalega
úrvinda í hverri viku
samkvæmt könnun
Prósents.
920
hreindýr
voru felld á
veiðitíma-
bili ársins sem lauk á
Austurlandi í síðustu
viku.
171
milljón króna er sú
upphæð sem vátrygg-
ingafélög gerðu endur-
kröfu um vegna öku-
manna sem ollu tjóni
af ásetningi eða stór-
kostlegu gáleysi í fyrra.
80
heim-
ilislækna
vantar til
starfa á landinu sam-
kvæmt útreikningum
Læknafélagsins.
25
prósent
allrar orku
sem fram-
leidd er á
Íslandi eru keypt af
Norðuráli í Hvalfirði.
JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
RAFMAGNAÐUR
OG VATNSHELDUR
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Farðu yfir ár og vötn af festu og öryggi með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
Rafmagnaður kraftur hvert sem leið þín liggur.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
n Tölur vikunnar
Sigríður
Sigurðardóttir
kirkjuvörður í
Digraneskirkju
sakaði formann
sóknarnefndar
um andlegt
og líkamlegt
ofbeldi. Formaðurinn og önnur
kona hafi kreist hana á milli sín.
„Þetta var svo ógeðslegt að ég get
ekki lýst því. Mig langaði helst að
brenna fötin mín,“ lýsti Sigríður
sem er komin í veikindaleyfi.
Ragnheiður
Ósk Erlends-
dóttir
framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá
Heilsugæslunni
er aftur mætt í
Laugardalshöll
þar sem Covid-bólusetningar
eru hafnar að nýju samhliða því
að fólki er gefið bóluefni gegn
inflúensu. Ragnheiður segir flesta
þiggja báðar sprauturnar.
„Með sprautunni er verið að
ræsa ónæmiskerfið og það er betra
að gera það með tveimur sprautum
í einu heldur en einni í dag og ann-
arri á morgun,“ sagði Ragnheiður.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir
ríkislögreglustjóri
sagði sig frá
frekari aðkomu
að rannsókn lög-
reglu á meintum
undirbúningi að
hryðjuverkum
hérlendis. Nafn
föður Sigríðar Bjarkar, Guðjóns
Erlendssonar, mun hafa komið upp
í máli einhvers sem yfirheyrður
var vegna rannsóknarinnar. Var þá
gerð húsleit hjá Guðjóni en hann
er umsvifamikill vopnasafnari og
vopnasali. n
n Þrjú í fréttum
Aðalmeðferð í Rauðagerðis-
málinu lauk fyrir Landsrétti í
gær. Niðurstöðu er að vænta
innan fjögurra vikna. Sak-
sóknari fer fram á að allir fjórir
sakborningarnir verði dæmdir
fyrir aðkomu að morðinu.
helenaros@frettabladid.is
DÓMSMÁL Þriðja og síðasta degi
aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu
lauk í gær fyrir Landsrétti. Kolbrún
Benediktsdóttir varahéraðssak-
sóknari, réttargæslumaður og lög-
menn sakborninga f luttu mál sitt
fyrir dómnum.
Í héraðsdómi var Angjelin Ster-
kaj dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir
morðið á Armando Beqiri við
heimili sitt í Rauðagerði í febrúar
í fyrra. Aðrir sakborningar, þau
Claudia Sofia Coel ho Car va hlo,
Murat Selivrda og Shpetim Qerimi,
voru sýknaðir.
Fyrir Landsrétti fer ákæruvaldið
fram á að allir sakborningar verði
dæmdir og að dómurinn yfir Angj-
elin verði þyngdur í allt að 20 ár.
Kolbrún sagði að ákæruvaldið
teldi það hafið yfir allan vafa að
öll fjögur hefðu haft sitt hlutverk
sem var nauðsynlegt til að fremja
verknaðinn.
Guðmundur St. Ragnarsson, rétt-
argæslumaður fjölskyldu Armando,
foreldra, maka og barna hans, þar
á meðal dóttur sem fæddist eftir
morðið, ítrekaði tugmilljóna króna
bótakröfu. Í héraði voru fjölskyld-
unni dæmdar 58 milljónir króna
en hún fer fram á 70 milljónir auk
vaxta frá öllum fjórum sakborn-
ingum.
Guðmundur bað dóminn sér-
staklega um að líta til þess að einn
sakborninga í málinu hefði svert
æru Armando og þar með vegið að
látnum manni sem hefði ekki sést í
máli sem þessu áður.
Oddgeir Einarsson, verjandi
Angjelin, f lutti óbreytta greinar-
Fluttu ræður í Rauðagerðismálinu
Guðmundur
St. Ragnars-
son, réttar-
gæslumaður
fjölskyldu
Armando,
ítrekaði tug-
milljóna króna
bótakröfu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
gerð fyrir Landsrétti í morgun.
Hann sagði málið ekki hafa gerst
án aðdraganda, margt hefði átt sér
stað og afgreiðsla héraðsdóms á
málinu hefði ekki verið fullnægj-
andi. Krafðist hann refsimildunar
í málinu.
Oddgeir sagði Angjelin hafa haft
ástæðu til að óttast um öryggis sitt
og fjölskyldu sinnar þar sem þeim
hafði ítrekað verið hótað. Hann
rakti það hvernig glæpagengi, sem
Armando er sagður hafa tilheyrt,
hefði staðið í hótunum við Angjelin,
barnungan son hans og fjölskyldu í
Albaníu.
Steinbergur Finnbogason, verj-
andi Claudiu, krafðist staðfest-
ingar á sýknu. Hann lagði áherslu
á að Claudia væri einstæð móðir af
erlendu bergi brotin en hún er frá
Portúgal. Claudia er sökuð um að
hafa vaktað Armando daginn sem
hann var myrtur og að hafa f lutt
morðvopnið í tösku frá Borgarnesi
til Reykjavíkur. Í skýrslutöku í hér-
aði sagðist hún ekki hafa vitað hvað
væri í töskunni.
Geir Gestsson, verjandi Murat,
sagði aðkomu Murat að málinu
með allt öðrum hætti en annarra
sakborninga. Geir benti á að Murat
hefði ekki verið viðstaddur meintan
undirbúning í Borgarnesi daginn
fyrir morðið.
Þá hefði hann ekki f lutt skot-
vopnin til Reykjavíkur frá Borgar-
nesi, DNA-rannsókn sýndi að Murat
hefði ekki komið við skotvopnið og
hann hefði ekki flúið Reykjavík eftir
manndrápið eins og hinir ákærðu.
Geir sagði Murat saklausan og að
það bæri að sýkna hann.
Murat er gefið að sök að hafa
hjálpað Claudiu og Angjelin að bera
kennsl á bílana fyrir utan vinnustað
Armando við Reykjavík Downtown
Apartments fyrir morðið á honum.
Þá á hann að hafa gefið Claudiu
fyrirmæli um að senda skilaboðin
„Hi sexy“ til Angjelin þegar bifreið
yrði ekið af stað.
Að lokum sagði Leó Daðason,
verjandi Shpetim, hann ekki hafa
haft vitneskju um það hvern Angj-
elin hefði verið að fara að hitta
þegar hann ók honum í Rauðagerði.
Shpetim er gefið að sök að hafa ekið
ásamt Angjelin að Rauðagerði, þar
sem Armando bjó, kvöldið sem
hann var myrtur. Þá er honum
gefið að sök að hafa sleppt Angjelin
úr bílnum og ekið svo aðeins í burtu
þar sem hann beið eftir að Angjelin
gæfi honum merki um að sækja sig.
Leó sagði hann hafa talið að til-
gangur ferðarinnar í Rauðagerði
þetta kvöld hefði verið fíkniefna-
viðskipti.
Dómarar hafa nú fjórar vikur frá
og með deginum í dag til að kveða
upp dóm í málinu. n
4 Fréttir 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ