Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 30
manndóm í mér að verða edrú
fyrir fermingu barnsins. Ég náði
að borga salinn og skreytingarnar
og reyndi að standa mig. Börnin
höfðu verið í fóstri hjá mömmu
þegar bróðir minn var að alast upp
og þessi dýrmæta tenging orðið,“
segir Ásdís, sem vildi sýna þakk-
læti í verki fyrir að barnið væri aftur
komið í fjölskylduna.
„Pabbi fermingarbarnsins var í
fangelsi á þessum tíma en fékk leyfi
til að koma í veisluna. Ég kunni
ekkert að takast á við tilfinningar
mínar. Þetta átti ekkert að vera
svona, þegar hann fæddist og var
lítill,“ segir Ásdís, sem segir aðstæð-
urnar hafa fyllt sig miklu vonleysi.
„Ég bara féll, hafði engan grunn til
að takast á við þessar tilfinningar.“
Ekki bara vond, heldur verst
Ásdís kynntist þriðja barnsföður
sínum, eins og hún lýsir því sjálf, í
rugli. „Hann reykti gras en sjálf var
ég í harðari efnum. Við vorum þó
alltaf í samskiptum af og til enda
allir aðrir búnir að loka á mig. Hann
var kannski eðlilegasta manneskjan
sem ég var í samskiptum við, þessi
maður sem snerti ekki sprautur
og slíkt. Hann var bara rólegur og
mikið heima, hann átti heimili og
ísskáp og ég þekkti orðið bara ekk-
ert slíkt.“
Morfín var efni Ásdísar allt frá
tvítugu og með því sprautaði hún
sig. Hún notaði örvandi efni og mor-
fín í bland.
„Ég var hætt að þola þetta líf
á götunni og tók ítrekað of stóra
skammta til að reyna að stytta dvöl
mína í þessum heimi. Þetta var
alveg ótrúlega vonlaust. Það var
meira að segja búið að henda mér
út úr húsnæði fyrir fólk í neyslu. Ég
hugsaði með mér: „Þetta húsnæði
var gert því einhvers staðar verða
vondir að vera og ég er greinilega
ekki bara vond – ég er verst.“
Eitthvað varð að breytast
Staðan var augljóslega napurleg
og eins og Ásdís sjálf segir þá gekk
ekkert heldur að drepa sig. Eitthvað
varð að breytast.
„Ég átti svo samtal við fíknigeð-
lækni á Landspítalanum sem kom
mér inn í hugræna atferlismeðferð.
Ég ákvað að láta á það reyna að vera
edrú og fara rólega í sakirnar,“ segir
Ásdís, sem fékk leigt herbergi og
naut aðstoðar teymis á Landspítala
þangað sem hún sótti daglega lyf til
að hjálpa sér við erfið fráhvörfin.
„Þá var ég komin með ADHD-grein-
ingu og einhvern veginn gekk þetta,
mjög rólega.“
Ásdís fór aftur að hitta manninn
sem hún lýsti sem þeim eðlilegasta
í kringum sig, manninn sem átti
ísskáp og heimili.
„Hann vildi líka taka til í sínu lífi
og hætti að reykja gras. Ég flutti til
hans og við vorum í pínulítilli kúlu,
Það voru fagnaðarfundir þegar Ásdís heimsótti Mánaberg eftir að hafa útskrifast þaðan í upphafi
árs. Þar hitti hún Arnbjörgu Eddu, ráðgjafa sinn og Huldu L. Blöndal, forstöðukonu heimilisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég gat ekki
hugsað
mér að
leggja það
á lítið barn.
Ég er búin
að upplifa
þessi
fráhvörf
sjálf.
Örsmáu tví-
burarnir Þór og
Viktor fengu að
kúra í mömmu-
fangi á Vöku-
deildinni.
MYND/AÐSEND
Bræðurnir
Guðni og Þór
eru samrýndir
enda stutt á
milli þeirra.
MYND/AÐSEND
ég nýtti mér það sem ég hafði lært
í AA, fór ekki á gömlu staðina, fór
aldrei niður í Mjódd um mánaða-
mótin og ekkert niður í miðbæ.“
Ráðlagt að fara í þungunarrof
Ásdís var á þessum tíma komin með
slæma lifrarbólgu sem hún fékk svo
meðferð við árið 2018 og er laus við
hana í dag.
„Við vorum búin að vera í sambúð
og ég að standa mig þónokkuð vel
í rúmlega ár, þegar ég komst að því
að ég væri ólétt. Ég veit ekki einu
sinni hvernig mér datt í hug að taka
óléttupróf, enda hafði ég ekki farið
á blæðingar í nokkur ár,“ segir Ásdís,
sem þarna var 39 ára gömul.
Ásdís viðurkennir að það hafi
verið ákveðið áfall að vita að hún
væri með barni og meðgangan hafi
tekið á. „Ég hafði verið á Subaxone
sem er ákveðin viðhaldsmeðferð
og einnig á þunglyndislyfjum. Ég
tók ákvörðun um að hætta á hvoru
tveggja, fyrir hann,“ segir Ásdís, og
á þá við son sinn sem í dag er fimm
ára. „Subaxone er gervimorfín og ef
ég héldi áfram að taka það á með-
göngunni yrði hann háður því og
þyrfti að fara í gegnum fráhvörf eftir
fæðingu. Ég gat ekki hugsað mér að
leggja það á lítið barn. Ég er búin að
upplifa þessi fráhvörf sjálf.“
Ásdís hætti á báðum lyfjum og
eins kom í ljós að blóðflokkar for-
eldranna ættu illa saman. „Mér
var ráðlagt að fara í fóstureyðingu
enda væri meðgangan hættuleg og
allt gæti gerst. En mér fannst hann
vera kraftaverk. Ég hélt ég myndi
ekki eignast f leiri börn. Það átti
ekki að geta gerst eftir alla neysl-
una og ég hélt að guð væri búinn
að úthýsa mér. Ég lít svo á að mitt
líf og líf þessa sonar míns sé sam-
vaxið. Hann er kraftaverkabarn sem
bjargaði lífi mínu.“
Sonurinn ástin í lífinu
Sonurinn, Guðni, sem fæddist á
35 viku þurfti í framhaldi að fara í
nokkrar blóðskiptiaðgerðir vegna
fyrrgreinds vanda. „Hann var lengi
á spítalanum og mín staða var slæm.
Barnsfaðir minn átti í vanda og við
hættum saman á meðan ég var
ólétt og það gekk ekkert fyrir mig
að redda mér íbúð.“
Ásdís fékk inni í Kvennaathvarf-
inu, þar sem hún fékk í fyrsta sinn
fræðslu um áhrif ofbeldissambanda
og varði öllum vökustundum á
spítalanum hjá syninum næstu
fimm vikur. „Hann var ótrúlega
sterkur og braggaðist hratt. Það var
eins og ég hefði fengið tvö líf í einu
lífi,“ segir Ásdís einlæg, og á við að
hennar líf hafi endurskapast með
fæðingu Guðna.
Ásdís dvaldi í Kvennaathvarfinu
þar til faðir sonarins kom aftur
inn í líf þeirra. „Við fórum bara að
búa saman aftur – þetta var allt
mjög alkóhólískt,“ segir Ásdís og
hlær örlítið taugaveikluðum hlátri.
„Hann var edrú, nýskriðinn undan
sænginni. Ég var í vikulegum við-
tölum hjá lækni og áfram mikið í
minni búbblu. Ég reyndi að styrkja
tengslin við fjölskylduna og þetta
gekk rosa vel.
Guðni var ástin í lífi mínu og ég
ætlaði ekki að láta neitt koma upp
á milli mín og hans, þótt það væri
pabbi hans. Ég og hann vorum
farin að vaxa í sundur, enda vildi
hann aldrei leita sér hjálpar og þau
fræ sem hafði verið sáð hjá mér í
Kvennaathvarfinu voru farin að
segja til sín.“
Aftur barnshafandi
Þegar Guðni var í kringum tveggja
ára hafði Ásdís, sem hafði upplifað
sig fjárhagslega háða barnsföður
sínum, samband við Félagsþjónust-
una í leit að íbúð, hún ætlaði að slíta
sambandinu.
„Það eru ekki mörg úrræði til að
grípa konur í þessari stöðu. En svo
varð ég bara ólétt aftur.“
Ásdís segir barnsföðurinn hafa
lofað öllu fögru og þó áfallið hafi
verið mikið hafi hún huggað sig
við að gaman væri fyrir Guðna að
eignast lítið systkin.
„Þegar ég fór til læknis var ég
komin 14 vikur á leið og í ljós kom
að um tvíbura væri að ræða,“ segir
Ásdís og lýsir geðshræringunni sem
þeim fréttum fylgdi.
„En við fórum bara að leita að
stærri íbúð og svo framvegis. Ég
var auðvitað stressuð en ég var þó
í betra líkamlegu formi þarna en
þegar ég gekk með Guðna.“
Í 20 vikna sónar kom í ljós blóð-
leysi hjá tvíburunum og ákveðið var
að Ásdís færi til Svíþjóðar í blóðgjöf
og hún var vöruð við að fæðingin
gæti þá farið af stað.
Eins kílóa tvíburar
„Þegar ég er komin tæpar 26 vikur
fæddust þeir úti í Svíþjóð.“
Eftir nokkurra klukkustunda
aðgerð þar sem reynt var að gefa tví-
burunum blóð var ákveðið að taka
þá með keisara, enda annar þeirra
hætt kominn.
„Þetta var rosalega trámatísk
reynsla og þegar ég vaknaði vissi ég
ekkert hvar ég var, en börnin voru
ekki lengur innra með mér. Ég var
svo keyrð að sjá þá, þá var annar tví-
burinn í aðgerð en hinn var vaxtar-
skertur eftir að hafa ekki fengið
nægilega næringu úr naflastreng.“
Tvíburarnir voru eineggja: Viktor
tæpt kíló og Þór 1.2 kíló. Ásdís lýsir
því hvernig þeir hafi passað í sitt
hvorn lófann, alsettir slöngum.
„Þór var alltaf á f leygiferð og
hefur varla stoppað frá því hann
fæddist. En Viktor var sá rólegi. Það
var svo skemmtilegt hversu ólíkir
þeir voru strax.“
Hann dó í fangi mínu
Móðir og börn voru í Svíþjóð í 10
daga þar til þau fengu að fara heim.
„Þeir voru sendir með sjúkraflugi
en ég fór með venjulegu flugi,“ segir
Ásdís og viðurkennir að flugið hafi
reynt á móðurina. Í framhaldi tók
við tími á Vökudeild þar sem Ásdís
f lakkaði á milli heimilis og Vöku-
deildar og deildi tímanum sínum á
milli þriggja ungra sona.
„Þeir voru svo sterkir og duglegir
en ég hafði aldrei séð svona pínu-
lítil kríli. Þetta gekk allt rosalega
vel en Viktor, sem þrátt fyrir að
vera minni tvíburinn hafði sýnt svo
miklar framfarir, hafði verið fyrri
til að hætta með súrefni og byrja að
drekka pela og taka snuð, fékk þá
sýkingu.“
Viktor hafði fengið NEC sýk-
30 Helgin 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ