Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 62
Innkaupafulltrúi Banana ehf.
Bananar ehf. leita að öflugum einstaklingi í starf innkaupafulltrúa Banana sem tekur þátt í því spennandi verkefni að sjá
landsmönnum fyrir fersku grænmeti og ávöxtum. Ávextir og grænmeti verða sífellt mikilvægari þáttur í daglegri neyslu
einstaklinga og eru spennandi tímar framundan í því að sjá landsmönnum fyrir hollum, ferskum og gómsætum ferskvörum.
Umsóknarfrestur er til 10. október.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.
Umsóknir og/eða spurningar varðandi ráðningarferlið
óskast sendar á Sigurð Helgason, innkaupastjóra Banana
á tölvupóstfangið she@bananar.is
Starfið hentar öllum óháð kyni.
Helstu verkefni
• Ákvörðun um innkaup
• Vinnsla og eftirfylgni pantana
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja
• Samskipti við flutningsaðila
• Þjónusta við innri- og ytri viðskiptavini
• Tollafgreiðsla
Menntunar- og hæfniskröfur
• Brennandi áhugi á hollustu og ferskleika
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d viðskiptafræði,
vörustjórnun eða rekstrarverkfræði
• A.m.k 4-5 ára starfsreynsla úr innkaupum
• Frammúrskarandi samskiptahæfileikar
• Mjög góð tölvukunnátta
• Þekking og reynsla á AGR Innkaup og Navision
upplýsingakerfi
• Góð greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Góð íslensku-og enskukunnátta
Bananar ehf er stærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins á ávöxtum og grænmeti og þjónar stórum og kröfuhörðum hópi viðskiptavina.
Þar á meðal eru verslanir, veitingahús, sjúkrahús, skólar, leikskólar, mötuneyti o.fl.
Bananar leggja sérstaka áherslu á að uppfylla þarfir og kröfur viðskiptavina sinna um gæði, fjölbreytt vöruúrval og frammúrskarandi þjónustu.
Með þetta leiðarljós í forgrunni beina Bananar viðskiptum sínum til framleiðenda í löndum nær og fjær, þar sem uppskera á ávöxtum og grænmeti
er best á hverjum tíma, allt frá Hollandi, USA, til Brasilíu og Suður Afríku, eða Spánar og Íslands.
»
»
»
»
Laghentur einstaklingur
Við leitum að fjölhæfum og laghentum
einstaklingi með haldbæra starfsreynslu
við bíla og vélaviðgerðir.
Sjá nánar á
Fullt starf Bíla/vélaviðgerðir
Laust er til umsóknar starf kennslustjóra sérnáms í heimilislækningum hjá
Þróunarmiðstöð íslenskar heilsugæslu. Um er að ræða 70% starf sem veitist frá 1. desember 2022
eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2022.
KENNSLUSSTJÓRI SÉRNÁMS Í HEIMILISLÆKNINGUM
- ÞRÓUNARMIÐSTÖÐ ÍSLENSKRAR HEILSUGÆSLU
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
VIRÐING - SAMVINNA - FAGMENNSKA
Starfshlutfall er 70%. Umsóknarfrestur er til og með 10.10.2022.
Nánari upplýsingar veitir Emil Lárus Sigurðsson - emil.larus.sigurdsson@heilsugaeslan.is
Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Sjálfstæði í starfi
Öguð vinnubrögð og skipulagshæfni
Reynsla sem leiðbeinandi sérnámslæknum
í verklegu og bóklegu námi.
Reynsla af rannsóknarvinnu, gæða- og
umbótaverkefnum æskileg.
Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt
góðri almennri tölvukunnáttu
HÆFNIKRÖFUR
Umsjón með skipulagningu sérnáms í heimilislækningum á landsvísu
Seta í nefndum sem tilheyra starfi kennslustjóra
Umsjón, ráðgjöf og þátttaka í stefnumótun varðandi sérnáms
í heimilislækningum
Umsjón og þátttaka í akademískum viðfangsefnum sem tengjast ÞÍH
Vinna að gerð klínískra verkferla sem unnir verða á vegum ÞÍH
Leiðbeinandi lækna í sérnámi, kandidata og læknanema
Þátttaka í vísindarannsóknum, gæða- og umbótaverkefnum
Önnur þau verkefni sem forstöðumaður ÞÍH felur viðkomandi
Yfirlæknir á geðheilsusviði
Staða yfirlæknis á geðheilsusviði Reykjalundar er laus til
umsóknar og veitist frá og með 1. nóvember 2022 eða
samkvæmt nánara samkomulagi. Um er ræða fullt starf.
Gerð er krafa um íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi
í geðlækningum ásamt reynslu sem nýtist viðfangsefnum
geðheilsuteymis. Í starfinu felst fagleg ábyrgð lækninga,
samstarf við aðra stjórnendur og þátttaka í öflugu teymis-
starfi sem einkennist af einstaklingsmiðaðri nálgun. Teymið
þjónar fjölbreyttum hópi sjúklinga með færniskerðingu á
grunni geðrænna og líkamlegra vandamála.
Í starfinu felst ennfremur ráðgjafarþjónusta við önnur teymi
Reykjalundar, störf á göngudeild, þátttaka í fræðslustarfi og
handleiðsla yngri lækna. Í boði er þátttaka í gæsluvöktum.
Laun byggja á kjarasamningi Læknafélags Íslands og
fjármálaráðherra auk samkomulags milli Reykjalundar og
starfandi lækna á Reykjalundi.
Upplýsingar um starfið veita Stefán Yngvason, fram-
kvæmdastjóri lækninga í síma 585-2000 stefan@reykja-
lundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri í síma
585-2143 gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 16. október 2022
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðunni www.reykjalundur.is
Reykjalundur endurhæfing ehf. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
EMBASSY CHAUFFEUR
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir
stöðu einkabílstjóra lausa til umsóknar.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum
Electronic Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Chauffeur. Application instructions and further
information can be found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
10 ATVINNUBLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR