Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 35
Einar Örn var orðinn úrkula
vonar eftir svefnlausar
nætur af völdum sóríasis
þegar móðir hans benti
honum á Psoria frá MariCell;
dugandi lausn sem bætti
lífsgæði Einars til mikilla
muna.
„Ég var þrettán ára þegar sóríasis
fór fyrst að láta á sér kræla. Þessi
hvimleiði sjúkdómur kom svo og
fór næstu árin en þegar ég nálgað-
ist þrítugt fór ástandið að versna til
muna,“ segir Einar Örn Grettisson,
sem gekk lækna á milli til að fá bót
meina sinna og prófaði alls kyns
smyrsl og stera sem ekkert bitu á
sárin.
„Svo gerðist það að ég fór utan til
Svíþjóðar í nám og lifði á dósamat
og óhollustu sem fátækur náms-
maður. Það gerði allt verra enda
hefur lélegt mataræði bein áhrif
á sóríasis og þegar verst lét var ég
undirlagður af stórum sárum og
hrúðri á handleggjum og fótleggj-
um. Ég var hættur að geta sofið á
nóttunni fyrir viðstöðulausum
kláða. Þá upplifði ég í fyrsta skipti
örvæntingu og að sjúkdómurinn
olli mér verulegu hugarangri,“
segir Einar, sem hóf aftur göngu á
milli húðlækna og meltingarlækna
í von um lækningu, en hjálpin kom
frá móður Einars sem starfar í heil-
brigðisgeiranum.
„Mamma hafði heyrt um
árangur af PSORIA frá MariCell og
þá var ekki eftir neinu að bíða. Ég
dreif mig í að kaupa það, bar það á
sárin í þrjá daga og fann fljótlega
mun. PSORIA sló strax á kláðann
og í dag finn ég ekki fyrir neinu og
sef vært allar nætur,“ segir Einar.
„Sóríasis lýsir sér með slæmum
sárum sem líta út fyrir að vera að
gróa en gera það ekki. Mann klæjar
mikið í þau og hjá mér var þetta
komið upp að öxlum og í hársvörð-
inn líka. Í dag sést ekki á mér að
ég sé með sóríasis og það háir mér
ekkert. Ef ég finn fyrir einkennum
ber ég strax á mig MariCell og finn
að allt lagast fljótt og vel.“
„Fyrir mig var MariCell PSORIA
lausnin en það er
eina húðmeðhöndl-
unarvaran sem hefur
virkað á mig alla leið,“
segir Einar að lokum.
Íslensk framleiðsla
sem inniheldur
ómega3-fjölómett-
aðar fitusýrur
MariCell PSORIA
er einstaklega virk
vara sem er sérþróuð
til meðhöndlunar á
þykkri, hreistraðri
húð og einkennum
sóríasis. Varan dregur
úr kláða, losar húð-
flögur, er rakagefandi
og eykur vatnsbindigetu húðar-
innar.
MariCell™ eru íslenskar húð-
meðhöndlunarvörur framleiddar
á Ísafirði og innihelda mOmega-3™
fjölómettaðar fitusýrur, ávaxta-
sýrur og karbamíð. Vörurnar eru
CE-merktar og flokkast því ekki
sem snyrtivörur heldur lækninga-
vörur. Þær innihalda hvorki stera
né paraben og með ávísun læknis
greiða Sjúkratryggingar Íslands
hluta kostnaðarins.
MariCell-vörulínan er þróuð af
Baldri Tuma Baldurssyni húð-
sjúkdómalækni og er notuð til að
meðhöndla ýmsa húðkvilla. Í dag
eru fjórar tegundir af MariCell til
sölu í apótekum sem gefið hafa
góða raun.
Hvernig MariCell virkar:
Efsta lag húðarinnar er búið til úr
15–20 lögum af frumum. Neðstu
frumur húðarinnar eru lifandi,
en eftir því sem ofar dregur þorna
þær, deyja og mynda hyrnislag. Á
milli þurru frumanna er fylliefni,
sem er ríkt af fitusýrum. Þessar
fitusýrur halda hyrnislaginu
mjúku og vatnsheldu.
Undir ákveðnum kringumstæð-
um rýrnar það þannig að hyrnis-
lagið opnast. Þetta veldur því að
húðin bólgnar og verður þrútin,
rauð og þurr. Bólguviðbrögð
húðarinnar stafa meðal annars af
auknu gegndræpi húðarinnar sem
veldur því að ertandi efni komast
inn í hana.
Hreistur myndast þegar mikið
magn dauðra fruma safnast á
yfirborði húðar og hún byrjar að
flagna, sem veldur
kláða og óþægindum.
Þá getur verið nauð-
synlegt að bera á hana,
en mOmega3™ tæknin
er gerð til þess að snúa
þessari þróun við.
MariCell PSORIA
inniheldur þrjú efni
sem vinna saman að
því að auka heilbrigði
millifrumuefnisins í
hyrnislaginu:
n mOmega3TM
n 5% ávaxtasýru
n 5% karbamíð
Sölustaðir: Apótek
Laus við einkenni sóríasis
MariCell™
PSORIA með-
höndlar húð
með einkenni
sóríasis og
hreisturs-
myndun.
Einar Örn
Grettisson gat
ekki orðið sofið
fyrir kláða og
vanlíðan af
völdum sórí-
asis þegar hann
prófaði Mari-
Cell™ kremið frá
Kerecis.
Fréttablaðið/
Eyþór
Ég bar PSORIA á
sárin í þrjá daga og
fann fljótlega mun. Það
sló strax á kláðann og í
dag finn ég ekki fyrir
neinu og sef vært allar
nætur.
Einar Örn
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 1. október 2022