Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 87
Hlutverk Póstsins er að
tengja saman fólk, fyrirtæki
og samfélög. Rómantískar
bréfasendingar heyra orðið
til undantekninga en við
hafa tekið ný og spennandi
verkefni, unnin af 650 starfs-
mönnum í góðum liðsanda.
Í raun má segja að Pósturinn snerti
hvert einasta heimili í landinu með
einum eða öðrum hætti. Miklar
breytingar hafa orðið í rekstri
félagsins þar sem samdráttur bréfa
í umferð, um 74 prósent frá árinu
2010, hefur kallað á nýja nálgun.
Í dag starfa um 650 starfsmenn
hjá Póstinum í 533 stöðugildum,
en svo eykst fjöldinn á hverju ári
fyrir jólavertíðina sem er handan
hornsins.
„Þó að gluggaumslögin hafi
eflaust ekki heillað marga í
gegnum tíðina, þá voru það ástar-
bréfin hér áður fyrr sem létu mann
bíða við póstkassann með til-
hlökkun. Nú eru breyttir tímar og
ástarbréfin að mestu orðin rafræn.
Fækkun bréfa hefur þannig kallað
á miklar breytingar hjá Póstinum
úr því að vera bréfafyrirtæki yfir í
að vera pakkafyrirtæki,“ segir Dag-
mar Viðarsdóttir, forstöðumaður
mannauðsmála hjá Póstinum.
„Við þekkjum þetta allt saman;
viðskiptavinir hafa fært viðskipti
sín yfir á netið í stað þess að fara
í búðina. Tæknin gerir viðskipta-
vinum okkar kleift að nálgast
vöruna á þann hátt sem kosið er,
það er í póstbox, á pósthús, með
heimkeyrslu eða í pakkaport hjá
samstarfsaðilum Póstsins. Þjón-
ustukannanir sýna að viðskipta-
vinir vilja hafa val um sendingar-
leiðir en einnig að mesta ánægjan
er meðal þeirra sem nýta sér
póstbox og aðrar sjálfsafgreiðslu-
lausnir Póstsins. Af þessu leiðir að
pósthúsum hefur verið að fækka
og póstboxum hefur fjölgað til
muna um land allt, enda hægt
að nýta póstboxin bæði við að
sækja og senda pakka,“ upplýsir
Dagmar.
Breyting í umhverfinu kallar á
breytingu hjá starfsfólki
Samsetning starfsfólks Póstsins
hefur einnig breyst frá því sem
áður var.
„Fleiri störf en áður tengjast
tækninni á einn eða annan hátt.
Bréfberum sem ganga í hús fer
einnig fækkandi en í stað þeirra
má sjá hjólapósta sendast með
minni pakka og bílstjóra koma
pökkum til skila í Póstbox. Snert-
ing við viðskiptavini er því með
öðrum hætti en áður sem kallar á
annars konar hæfni, færni og við-
horf starfsfólksins. Póstboxin kalla
á tæknifólk til starfa, viðskiptin á
netinu kalla á öflugt fólk í hugbún-
aðargerð og svo framvegis,“ greinir
Dagmar frá og heldur áfram:
„Við hjá Póstinum vinnum eftir
þeirri hugmyndafræði að við
ein getum borið ábyrgð á okkur
sjálfum og störfum okkar. Því
er leiðarljós okkar lausnamiðuð
þjónustuhugsun alla leið, bæði
við ytri og innri viðskiptavini
Póstsins. Til að efla starfsfólk til
dáða erum við með öfluga fræðslu,
bæði í gegnum fræðsluvefinn
okkar en erum einnig að hefjast
aftur handa eftir faraldurinn við
staðbundna stjórnenda- og þjón-
ustuþjálfun.
Við trúum því að með því að
valdefla leiðtoga okkar verði þau
ánægðari í starfi og hvatinn til
að skapa jákvætt viðmót aukist
til muna. Nú erum við að fara af
stað með námsefni sem heitir
„Leiðtoginn í mér“. Um er að ræða
spennandi efni sem er byggt upp á
því að hver og einn tekur ábyrgð á
sjálfum sér, setur sér markmið og
vinnur að því að ná samlegð með
því að virkja allt starfsfólk til sigurs
með viðskiptavininn í öndvegi.“
Töluleg gögn til árangurs
Hjá Póstinum er jafnframt mikið
lagt upp úr því að nýta töluleg
gögn til að bæta árangur í starf-
seminni og setja ný markmið.
„Þannig náðum við til að mynda
rekstrarlegum ábata með því að
breyta samsetningu starfsfólks og
fjölga í hópi tímavinnustarfsfólks í
ákveðin störf til að mæta sveiflum
í rekstrinum,“ útskýrir Dagmar.
„Töluleg gögn hafa einnig verið
nýtt til að ná fram markmiðum í
vinnuverndar- og öryggismálum.
Öryggisstefnan okkar, og aðgerða-
áætlun sem henni fylgir, tryggir
enn betur að starfsfólk okkar komi
heilt heim í lok vinnudags. Einn
liður í aðgerðaáætluninni snýr að
líkamsbeitingu starfsfólks okkar.
Við útbjuggum frábær myndbönd
í samvinnu við sjúkraþjálfara og
með styrk Póstmannafélagsins.
Markmiðið er að draga úr álags-
meiðslum og stoðkerfisvanda-
málum.“
Sjálfbærnimál okkur hugleikin
„Á liðnu ári hlutum við viðurkenn-
ingu Jafnvægisvogarinnar enda
hefur fyrirtækið verið í farar-
broddi þegar kemur að sjálfbærni í
stjórnun. Kynjaskiptingin okkar er
mjög jöfn, bæði í hópi stjórnenda
og í fyrirtækinu almennt, eða 45%
karlar á móti 55% kvenna í hópi
stjórnenda. Einnig er gaman að
nefna að Pósturinn státar af því
að vera með þeim fyrstu á landinu
sem hlutu jafnlaunavottun árið
2018,“ upplýsir Dagmar.
„Þetta eru spennandi tímar hjá
Póstinum sem er í miklum breyt-
ingafasa og um leið er mikil mótun
að eiga sér stað í mannauðsmál-
unum sem er sannarlega gaman að
fá að vera partur af.“ n
Meira um Póstinn á posturinn.is
Dagmar
Viðarsdóttir er
forstöðumaður
mannauðsmála
hjá Póstinum.
MYNDIR/AÐSENDAR
Bréfberum sem
ganga í hús fer
fækkandi hjá
Póstinum en í
stað þeirra má
sjá hjólapósta á
rafhjólum.
Fleiri störf en áður tengjast tækni á einn eða annan hátt hjá Póstinum. Í fyrra hlaut fyrirtækið viðurkenningu Jafn-
vægisvogarinnar, enda verið í fararbroddi þegar kemur að sjálfbærni í stjórnun og kynjaskiptingin er mjög jöfn.
Við byggjum á traustum grunni
kynningarblað 27LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður