Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 98
Mussolini
var góður
stjórn-
mála-
maður að
því leyti að
allt sem
hann gerði,
gerði hann
fyrir Ítalíu.
Giorgia Meloni
Fréttir af kjöri Giorgiu og
áhyggjur af risi öfgahægri
af la í Evrópu hafa varla
farið fram hjá neinum,
en hver er konan sem að
öllum líkindum verður næsti hús
ráðandi í Palazzo Chigi, embættis
bústað forsætisráðherra Ítalíu?
Giorgia er fædd þann 15. janúar
árið 1977 og er því 45 ára gömul.
Hún hefur setið á ítalska þinginu frá
árinu 2006 og leitt f lokkinn Fratelli
d'Italia eða Bræðralag Ítalíu síðast
liðin átta ár. Hún er ein af stofn
félögum flokksins og tók við stjórn
hans tveimur árum eftir stofnunina.
Nýfasistar sem ný fjölskylda
Giorgia var snemma pólitísk og ekki
nema 15 ára gömul þegar hún gekk
til liðs við við ung liða hreyfingu ný
fas istaflokksins Movimento Sociale
Italiano (MSI).
Giorgia sem var feiminn ungl
ingur, hefur sagt frá því að í MSI
hafi henni liðið sem hún hafi fundið
sína aðra fjölskyldu. Hún varð síðar
for maður stúdenta hreyfingar hins
hægri sinnaða Þjóðarbandalags,
sem átti rætur sínar að rekja til MSI,
flokksins sem var stofnaður af aðdá
endum fasistans Benito Mussolini
eftir síðari heimsstyrjöldina. Í kosn
ingabaráttu fyrir Þjóðarbandalagið
lét hin þá 19 ára Giorgia hafa eftir
sér í viðtali við franska sjónvarps
stöð:
„Mussolini var góður stjórnmála
maður að því leyti að allt sem hann
gerði, gerði hann fyrir Ítalíu.“
Giorgia var kosin á þing fyrir
Þjóðarbandalagið árið 2006 og
tveimur árum síðar skipaði Silvio
Berlusconi, þáverandi for sætis ráð
herra, hana ráð herra mál efna ung
menna og gegndi Meloni em bætti
til ársins 2011. Hún bauð sig fram í
Evrópu þings kosningum árið 2014
og sem borgar stjóra efni í Róm árið
2016, hvort tveggja, án árangurs.
Guð, land og fjölskyldan
Kosningaslagorð Giorgiu var: „Guð,
land og fjölskyldan“ og er þar átt við
Bræðralag Ítalíu
Fratelli d‘Italia, Bræður
Ítalíu eða Bræðralag Ítalíu,
er íhaldssamur og þjóðernis-
sinnaður stjórnmálaflokkur
sem stofnaður var árið 2012
á Ítalíu.
Hugmyndafræði flokksins
gengur út á róttæka íhalds-
stefnu, þjóðernishyggju
og andstöðu gegn innflytj-
endum. Með sigri í þingkosn-
ingum nú í síðasta mánuði
er flokkurinn orðinn stærsti
flokkurinn á ítalska þinginu.
Bræðralag Ítalíu,
flokkurinn sem
Giorgia leiðir
hlaut 26 prósent
atkvæða í nýaf-
stöðnum kosn-
ingum og verður
hún því að
öllum líkindum
fyrsti kvenfor-
sætisráðherra
landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Konan
sem leiðir
Bræðralagið
Flokkur Giorgiu Meloni,
Bræðralag Ítalíu, vann stórsigur
í kosningum á Ítalíu á dögunum
og má því ætla að hún verði
forsætisráðherra Ítalíu, fyrst
kvenna. Giorgia er þó umdeild
og skiptar skoðanir um það
hvort kjör þessa hægri sinnaða
afturhaldssinna sé framfara
skref fyrir ítalskar konur, eða
framfaraskref almennt.
hefðbundið fjölskylduform í ströng
ustu merkingu hugtaksins og er ótti
LGBTQ samfélagsins á Ítalíu við til
vonandi forsætisráðherra líklega á
rökum reistur.
Ef Giorgiu tekst að mynda ríkis
stjórn verður það fyrsta öfgahægri
ríkisstjórn landsins frá síðari heims
styrjöld, þegar Benito Mussolini var
við völd.
Þegar Giorgia útlistaði stefnumál
sín fyrr á árinu var ljóst að kæmist
hún til valda yrðu réttindi hinsegin
fólks, f lóttamanna og íslamstrúar
fólks að líkindum fótum troðin, auk
þess sem henni hugnuðust ekki völd
embættismanna í Brussel.
Hún er þjóðernissinni og and
snúin þungunarrofi og líknarmorði,
hin segin fólki og inn f lytj endum.
Hún hefur látið hafa eftir sér að
komist hún til valda vilji hún endur
skoða lög gjöf um ó vígða sam búð
sam kyn hneigðra og er ekki hlynnt
því að sam kyn hneigð pör fái að ætt
leiða börn. Í héruðum og borgum
Ítalíu, þar sem flokkur hennar hefur
verið við völd, hefur að gengi að
þungunarrofi og getnaðar varnar
pillum verði skert, þvert á lands lög.
Ólst upp hjá einstæðri móður
Giorgia ólst upp ásamt systur sinni,
Ariönnu, hjá móður þeirra, Önnu
Paratore, en faðir þeirra, Francesco
Meloni yfirgaf fjölskylduna og flutti
til Kanaríeyja þar sem hann opnaði
veitingastað, þegar Giorgia var
ung að árum. Heimsótti hún hann
aðeins nokkrar vikur á ári þar til
hún segist alveg hafa slitið sam
skipti við hann þegar hún var 13 ára.
Mæðgurnar bjuggu í Garbatella
hverfinu í Róm sem er einmitt
þekkt sem vinstraverkalýðshverfi
og móðir þeirra skrifaði og gaf út
rómantískar skáldsögur. Eitthvað
hefur veitingarekstur Francesco
gengið brösuglega á Kanaríeyjum,
því nýverið komst í fréttir að hann
hefði fengið níu ára dóm árið 1996
fyrir að smygla 1.500 kílóum af
kannabis frá Marokkó til Spánar.
Francesco lést úr hvítblæði fyrir
nokkrum árum og lét Giorgia hafa
eftir sér að andlát hans snerti sig
ekki. „Það var hvorki hatur né illska.
Ég fann ekki neitt. Þetta var eins og
sjónvarpskarakter hefði dáið. Það
var allt og sumt,“ sagði Giorgia við
ítalska útvarpsstöð.
Sjálf í óvígðri sambúð
Sambýlismaður Giorgiu er blaða
maðurinn Andrea Giambruno, sem
hún kynntist einmitt þegar hann tók
við hana viðtal. Saman eiga þau hina
sex ára gömlu Ginevru. Parið er ógift
og gefur Giorgia lítið fyrir það þegar
bent er á að konan sem berst fyrir
gamaldags fjölskyldugildum skuli
sjálf ekki fylgja þeim.
Í ævisögu sinni, Io sono Giorgia,
eða Ég er Giorgia, sem kom út á
síðasta ári og varð að metsölubók
sagðist hún oft hafa heyrt slíkt bull.
„Að þú getir ekki varið hina nátt
úrulegu fjölskyldu sem byggist á
hjónabandi, ef þú sjálfur ert ekki
gift/ur. Það er svolítið eins og að segja
að ef þú ert ung/ur, þá geti þér ekki
verið annt um málefni aldraðra.“
Umdeilt TikTok myndband
TikTok myndband sem Giorgia birti
á kjördag vakti sannarlega athygli.
Þar sést Giorgia halda melónum í
brjósthæð um leið og hún blikkar í
myndavélina og segir: „25. septem
ber – ég hef sagt allt.“ Og vísaði þann
ig í að kosið væri til ítalska þingsins
þann dag.
Meloni þýðir á ítölsku melónur
en er einnig slanguryrði yfir brjóst.
Áhorfendur túlkuðu skilaboðin á
misjafnan veg, en víst er að þarna
mátti merkja nýjan tón hjá kaþ
ólska leiðtoganum, sem hafði gert
hlutverk sitt sem konu og móður
að fókuspunkti í kosningabarátt
unni. Eins þótti myndbandið sýna
að þarna færi ekki kona sem myndi
berjast fyrir femínískum málefnum
í valdatíð sinni.
Giorgia hefur svo sem aldrei gefið
sig út fyrir að vera femínisti og meðal
annars tekið skýrt fram að hún sé á
móti kynjakvótum, hún vilji frekar
að fólk þurfi að sanna sig, ekki kom
ast áfram vegna kyns.
Þó Giorgia verði fyrsta konan til
að setjast í stól forsætisráðherra á
Ítalíu er fátt sem bendir til þess að
kjör hennar verði framfaraskref
fyrir konur, Ítali, Evrópu eða restina
af heimsbyggðinni. n
TikTok myndband sem Giorgia birti
á kjördag vakti athygli en þar sést
hún halda melónum í brjósthæð.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
34 Helgin 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ