Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 124
Hugmyndin að mynd-
bandinu kemur að
miklu leyti frá þeim
sama innblæstri og
texti lagsins kemur, sem
er vanlíðan í sambandi
og sterk löngun til þess
að breyta aðstæðum
sínum.
Seinni
blaða-
manna-
fundurinn
var líka
frekar
sjokker-
andi.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
Eftir fyrri blaðamannafund ríkis
lögreglustjóra var fyrirsjáanlegt að
næstu dagar færu í að ræða auknar
rannsóknarheimildir og vopnaburð
lögreglu. Þá sem leiðir til að bregð
ast við breyttum veruleika á Íslandi.
Sem er sérstaklega nýr að því leyti
að lögreglu hefur ekki áður þótt til
efni til að skilgreina undirbúning
árásar sem hryðjuverk. Mér fannst
áhugavert að heyra fólk nota mis
munandi hugtök yfir sama hlutinn
eftir staðsetningu í pólitík. Talað
var um afbrotavarnir og hins vegar
aukið eftirlit með borgurunum.
Það hefur áhrif að orða hlutina
á ákveðinn hátt. Allir þó til í að
tala um aukna öfgahyggju. Seinni
Maður velur sér vini en ekki foreldra
n Frétt vikunnar
Margrét Valdimarsdóttir,
afbrotafræðingur
blaðamannafundurinn var líka
frekar sjokkerandi. Þvílíkur fjöldi
skotvopna, og stór hluti þeirra lög
lega keyptur. Ég sé fyrir mér ríkis
lögreglustjóra á kaffistofunni í
vinnunni segjandi eitthvað eins og
„ég vil minna á að maður velur sér
vini en ekki foreldra.“ En auðvitað
vitum við enn lítið sem ekkert um
þessi tengsl annað en að þau eru
til skoðunar. Sorglegasta frétt vik
unnar var andlát Svavars Péturs,
þvílíkur missir. n
Margrét Valdi-
marsdóttir,
afbrotafræð-
ingur
Október hefst á ástarsorg og
sambandsslitum hjá hljóm
sveitinni Tragically Unknown,
sem verður þó í miklu stuði út
mánuðinn með útgáfu tveggja
tónlistarmyndbanda, nýs lags
og svo að lokum heillar plötu,
sem bassaleikarinn Þórgnýr
Einar Albertsson útilokar ekki
að verði plata ársins, ef ekki
hreinlega aldarinnar.
toti@frettabladid.is
Hljómsveitin Tragically Unknown
gefur í dag út sitt fyrsta tónlistar
myndband en lagið sem við á, In
Between, kom út í sumar við góðar
undirtektir. Söngkonan Helena Haf
steinsdóttir samdi texta lagsins sem
fjallar um sambandsslit og ástar
sorg.
„Hugmyndin að myndbandinu
er að miklu leyti innblásin af því
sama og texti lagsins spratt upp
úr, sem var vanlíðan í sambandi og
sterk löngun til að breyta aðstæðum
sínum,“ segir Helena.
Söngkonan freistar þess nú í
myndbandinu að fanga sömu til
finningar og hún hafði áður fært í
orð og sungið, við undirleik félaga
sinna, Odds Mar Árnasonar gítar
leikara og Þórgnýs Einars Alberts
sonar, bassaleikara, sem samdi
hljóðfærahluta lagsins.
Hægagangur í hröðum heimi
In Between var önnur smáskífan af
væntanlegri plötu Tragically Un
known en tónlistarmyndbandið
sem dettur inn á YouTube á hádegi
í dag er það fyrsta sem hljómsveitin
sendir frá sér.
Dagur Leó Berndsen leikstýrði
myndbandinu, sá um upptökur og
klippingu, en þar er Helena sjálf í
aðalhlutverki á móti Ingvari Erni
Arngeirssyni auk fjölda aukaleikara.
Helena segist strax hafa séð
sjálfa sig fyrir sér í hægagangi, eða
slowmotion, á meðan lífið þýtur
hjá og þau Dagur unnu þá grunn
hugmynd áfram í myndbandinu.
„Ég hugsaði strax um að finnast
man vera í „slomo“ og að lífið haldi
áfram á blússandi ferð í kringum
man en að ég standi enn á sama
stað,“ segir Helena. „Dagur kom svo
sterkur inn í verkefnið og þróaði
þessa hugmynd áfram í það sem
hún er í dag.“
Algjör snilld
Oddur gítarleikari segir það hafa
verið ákveðna upplifun að fylgjast
með Helenu og Degi stilla saman
myndræna strengi sína. „Það var
frekar merkilegt að hlusta á þau
tala saman um þetta þar sem þau
virtust skilja hvort annað fullkom
lega. Þannig að það var rosalega
mikill „dreamteam“ fílingur í því
að fylgjast með þeim.“
Þórgnýr tekur undir þetta, hæst
ánægður með útkomuna, enda lagið
honum hjartfólgið. „Það var algjör
snilld að vinna þetta verkefni. Bæði
af því Helena og Dagur höfðu skýra
og góða sýn fyrir myndbandið og
svo einfaldlega af því mér þykir svo
rosalega vænt um þetta lag,“ segir
bassaleikarinn, sem boðar marg
víslegan fögnuð í þessum mánuði.
„Svo er meira af góðu stöffi á
leiðinni. Þetta myndband er fyrsti
kaf linn í afar stórum október
mánuði þar sem von er á nýju lagi,
öðru myndbandi og svo heilli plötu.
Plötu ársins, mögulega aldarinnar.“
Fjörugir föstudagar
Breiðskífan Odes… er sú fyrsta frá
Tragically Unknown, en Tónskálda
sjóður RÚV og STEFs styrkti upp
töku og vinnslu plötunnar. Hljóm
sveitin hefur þegar gefið út þrjár
smáskífur af því sem koma skal;
Villain Origin Story, In Between og
Worthy of Her Love. Fjórða og síð
asta smáskífan, Uprooted, kemur
síðan út föstudaginn 14. október
ásamt tónlistarmyndbandi.
Hljómsveitin heldur sig við föstu
dagana og Odes… kemur út 28.
október, en öllu verður tjaldað til
kvöldið áður, 27. október, á Lemmy
við Austurstræti, þar sem tónlist
Tragically Unknown mun óma, en
hún þykir draga nokkurn dám af
hinum ýmsu rokksveitum sem voru
upp á sitt besta um aldamótin auk
þeirra popppönksveita sem fylgdu
í kjölfarið. Til dæmis Cranberries,
Pixies, Blink182 og Paramore.
Hægt er að fylgjast með Tragically
Unknown á Instagram og Facebook
undir /tragicallyunknown. n
Ástarsorg í byrjun
viðburðaríks október
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
Allt að 40% afsláttur af völdum vörum
13 ára afmæli
Allt að
40%
afsláttur
af völdum
vörum
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
60 Lífið 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ