Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 94
Æskuminningar
mínar eru upp-
fullar af því að eyða
dögunum á veitingastað
foreldra minna og horfa
á móður mína elda
mismunandi rétti frá
hinum fjölbreyttu svæð-
um Filippseyja.
Jon Cabral
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Tveir matreiðslumeistarar
kóreska veitingastaðarins
Atoboy í New York mæta til
leiks á Héðni Kitchen & Bar
dagana 6. til 7. október.
Atoboy byggir á hefðum kór-
eskrar matargerðar og notar New
York-borg sem innblástur og
leiksvið.
Matreiðslumenn Atoboy hafa
sett saman einstakan fimm rétta
matseðil, þar sem íslenskt hráefni
mætir kóreskum New York-stíl.
Hægt verður að skella sér í vín-
pörun með seðlinum til að gera
upplifunina enn ánægjulegri.
„Við erum mjög spennt að geta
loksins verið með viðburð þar sem
við fáum til okkar matreiðslumeist-
ara frá virtum stöðum úti í heimi
til að koma til Íslands. Þeir Mark
Nobello og Jon Cabral eru metn-
aðarfullir matreiðslumeistarar sem
hafa mikla ástríðu fyrir matargerð,
en þeir hafa starfað undir hand-
leiðslu eiganda Atoboy og Atomix,
sem er tveggja stjörnu Michelin-
veitingastaður sem er á lista yfir 50
bestu veitingastaði heims. Atoboy
hefur verið Michelin Bib Gour-
mand síðan 2017 og er nú með Mic-
helin-plötu viðurkenningu.
Töfrandi réttir
frá Atoboy í
New York
Matreiðslu-
meistararnir
Mark Nobello
og Jon Cabral
munu mæta
hingað til lands
eftir helgi og
munu spreyta
sig í eldhúsinu á
Héðni Kitchen
& Bar.
MYND/AÐSEND
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI
Landsliðskokkar Héðins eru
spenntir að taka á móti þeim
Mark og Jon, vinna með þeim
þessa dagana og læra eitthvað
nýtt,“ segir Elías Guðmundsson,
annar eigandi staðarins.
Gaman að skapa ný tengsl
Karl Viggó Vigfússon, meðeigandi
Elíasar, segir alltaf gaman að skapa
ný tengsl á milli staða.
„Við hvetjum öll sem hafa áhuga
á kóreskri matargerð, og bara
góðum mat, að kíkja til okkar
þessa tvo daga. Þetta verður mjög
spennandi, það verður plötusnúð-
ur á fimmtudaginn og við höfum
sett saman vínpörun sem gefur
upplifuninni enn meira bragð. Þá
verður einnig hægt að skella sér í
frískandi kokteila. Eldamennskan
fer nánast öll fram yfir grillinu
okkar sem er úti í sal svo það
verður smá sýning úr þessu, lifandi
og opið eldhús”, segir Karl Viggó,
afar spenntur að fá matreiðslu-
meistarana í heimsókn.
Vert er að geta þess að Atoboy
hefur fengið frábæra umfjöllun
frá því þeir opnuðu árið 2016 og
hefur meðal annars verið fjallað
um staðinn í NY Times, Michelin
Guide og OAD (Opinionated About
Dining).
Með ástríðu fyrir matargerð
Matreiðslumeistararnir Mark
Nobello og Jon Cabral eru báðir
yfir sig spenntir að koma hingað til
lands og fá að spreyta sig í eldhús-
inu á Héðni Kitchen & Bar. Mark er
fæddur og uppalinn í Queens, New
York, en áhugi hans fyrir því að
hasla sér völl í matreiðslu var inn-
blásinn af foreldrum hans og hæfi-
leikum þeirra til að búa til töfrandi
máltíðir úr einföldu hráefni en
einnig að nota mat sem lækningu
og matargerð sem helgisið.
Þessa stundina hefur Mark
áhuga á mismunandi aðferðum til
að varðveita mat, til dæmis gerjun.
Matarbúr Atoboy er stórt og fjöl-
breytt og sum gerjuðu hráefnin eru
yfir tveggja ára gömul.
„Gerjun gerir manni kleift að
nýta skammvinnt hráefni í miklu
lengri tíma. Það er áskorun fyrir
mig að upphugsa nokkrar árstíðir
fram í tímann fyrir þróun mat-
seðils. Þessa dagana vinn ég að
því að fara yfir gjöfula uppskeru
síðsumarsins og hvernig best er
að varðveita og geyma tómata,
kúmquats, steinabláber (e. huckle-
berry) og sumarpipar,“ segir Mark,
sem hefur mikla ástríðu fyrir
matargerð.
Uppáhaldsréttir Marks eru
meðal annars hefðbundinn
Kare Kare, sem er filippseyskur
nauta- og hnetupottréttur, kóresk
svínasíða með ssamjang og hrís-
grjónum, og sakbitna sælan er
kóreskar Shin-skyndinúðlur með
salti og edik-flögum.
Mark grunaði ekki að leið hans
gæti legið til Íslands.
„Mér datt aldrei í hug að ég gæti
ferðast til Íslands og í rauninni að
elda á Íslandi, ef út í það er farið.
Sem fæddur og uppalinn New
York-búi hef ég ekki haft mörg
tækifæri til að fara til útlanda og
segja sögur mínar með mat. Ég
er þakklátur fyrir þessa reynslu
og fyrir tækifærið að vera full-
trúi Atoboy erlendis, á meðan
ég læri meira um menningu og
sögu íslenskrar matargerðar með
teyminu hjá Héðni Kitchen & Bar,“
segir Mark fullur tilhlökkunar.
Uppalinn á veitingastað
Kokkurinn Jon er fæddur og upp-
alinn í Guam þar sem foreldrar
hans áttu lítinn filippseyskan
veitingastað.
„Æskuminningar minnar eru
uppfullar af því að eyða dögunum
á veitingastaðnum og horfa á
móður mína elda mismunandi
rétti frá hinum fjölbreyttu
svæðum Filippseyja,“ segir Jon
dreyminn á svip.
Það var á þessum fyrstu árum
sem hann vildi prófa að starfa
við matreiðslu, sem svo leiddi til
þess að hann skráði sig í Culinary
Institute of America í Hyde Park,
New York. Jon vonar að geta einn
daginn deilt filippseyskum mat
með umheiminum alveg eins og
móðir hans gerði, en með fágaðari
sjónarhorni, en hún er hans mesti
innblástur.
„Fyrir utan matreiðslu í eld-
húsinu hef ég einnig mikinn áhuga
á því sem fer fram í matsalnum
og fylgist með list gestrisninnar í
f læði þjónustu og samskipta við
gesti.“
Uppáhaldseldunaraðferð Jons
í matreiðslu er að nota kolagrill,
sem á stóran þátt í ást Guam og
Hawaii á grilluðum mat. Sambland
af ólíkum þáttum sem grillið gefur
matnum, svo sem reyk, áferð og
stökkar brúnir, sem er einmitt það
sem hár hiti viðarkola myndar og
gerir grillmatinn ómótstæðilegan.
„Það er mér heiður að fá tæki-
færi til að taka þátt í samstarfi
Héðins og Atoboy. Ég er ekki bara
spenntur að heimsækja Ísland í
fyrsta skipti, heldur líka að læra
meira um menninguna, matinn og
hráefnin sem landið hefur upp á að
bjóða. Ég hef alltaf notið útivistar
og metið náttúruna og Ísland
virðist vera fullkominn staður til
að njóta þess,“ segir Jon, sem er
orðinn afar spenntur fyrir Íslands-
förinni. n
6 kynningarblað A L LT 1. október 2022 LAUGARDAGUR