Fréttablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 51
Endurmenntun Háskóla
Íslands hefur verið starfrækt
síðan 1983 og er í fararbroddi
á íslenskum símenntunar-
markaði. Hlutverk Endur-
menntunar, með öflugri
nýsköpun í námsframboði
og þjónustu, er að efla hæfni
og þekkingu fólks í starfi og
einkalífi.
Halla Jónsdóttir, endurmennt-
unarstjóri og Jóhanna Rútsdóttir
(Hanna), náms- og þróunarstjóri,
ásamt öflugu teymi verkefna-
stjóra, sjá um að námsframboð
Endurmenntunar sé fjölbreytt og
aðgengilegt fyrir fólk og fyrirtæki
með mismunandi þarfir. Endur-
menntun hefur þjónað atvinnu-
lífinu í áratugi og er í stöðugu
samtali við fyrirtæki, stofnanir og
fagfélög um þarfir fyrir fræðslu.
Þannig er lagður grunnur að
hagnýtu og fjölbreyttu framboði
á sviði persónulegrar jafnt sem
starfstengdrar hæfni, en það er
ekki svo auðvelt að skilja þarna
á milli þegar kemur að árangri í
starfi. Fyrirtæki geta gert sam-
starfssamning við Endurmenntun
sem felur í sér afsláttarkjör, reglu-
bundið samtal um fræðsluþarfir
og framleiðslu á kynningarefni
fyrir starfsfólk.
Hátt í 200 námskeið
Á þessu misseri eru hátt í 200
námskeið á dagskrá í hinum ýmsu
flokkum sem nýtast atvinnulífinu
á mismunandi hátt. Á þetta úrval
sér enga hliðstæðu á íslenskum
menntunar- og fræðslumarkaði
og greinilegt er að Endurmenntun
sinnir mikilvægu hlutverki í að
halda fræðslu almennings lifandi
í samfélaginu. Öll fyrirtæki og
stofnanir sem senda fimm eða
fleiri einstaklinga á sama nám-
skeið fá 20 prósenta afslátt hjá
Endurmenntun en að auki er hægt
að nálgast þar sérsniðna fræðslu.
„Við leggjum mikinn metnað í
að koma til móts við stjórnendur
í fyrirtækjum með því að bjóða
upp á sérsniðnar fræðslulausnir
þar sem við getum hannað nám-
skeið fyrir starfsmannahópa í
fyrirtækjum sem hafa þörf fyrir
ákveðna fræðslu. Þekking og hæfni
starfsfólks er grundvöllur árang-
urs, en á sama tíma er fræðsla
fjárfesting og það skiptir máli að
tímanum sé vel varið. Mikilvægt er
að vinna faglega að undirbúningi
og framkvæmd fræðslu svo að hún
skili því virði sem henni er ætlað.
Þegar fyrir liggur að fræða þurfi
hóp starfsfólks um tiltekið efni
er ástæða til að íhuga sérsniðnar
lausnir til að fá sem mest út úr
fræðslunni,“ segir Halla.
Sérsniðnar lausnir
Hanna tekur undir og bætir við
að ávinningurinn af sérsniðnum
lausnum sé margvíslegur:
„Sérlausnirnar okkar taka mið
af stefnu og starfsemi hvers fyrir-
tækis og sveigja sig að aðstæðum
í hverju tilfelli. Fræðslan fer fram
á þeim tíma sem hentar starfs-
fólkinu best og bæði er hægt að
stilla námskeiðinu upp í húsi
Endurmenntunar á Dunhaganum
eða koma með fræðslu inn í fyrir-
tæki eða stofnun ef það hentar
betur. Einnig er hægt að velja
blandaða lausn þar sem hluti er í
staðkennslu og hluti í fjarkennslu
sem gefur enn meiri sveigjanleika
á stað og stund. Við tryggjum líka
algjöra fagmennsku þar sem hjá
okkur starfa sérfræðingar í fræðslu
með þekkingu á kennslu, ára-
langa reynslu af þarfagreiningu,
undirbúningi og öllum þeim smá-
atriðum í framkvæmd fræðslu sem
skipta sköpum þegar á hólminn er
komið.“
„Annar frábær kostur við þessar
sérsniðnu lausnir er að þær efla
liðsheild innan fyrirtækja og
stuðla að hópefli meðal starfsfólks
sem kemur saman í ákveðnum
tilgangi,“ segir Halla. „Við sköpum
þennan vettvang þar sem fólk er
samferða í fræðslunni, tekur mikil-
vægar umræður og hefur gaman.
Þegar námskeiði lýkur bjóðum
við svo upp á eftirfylgni og mat á
árangri, sé þess óskað.“
Endurmenntun starfar með
kennurum sem eru hæfustu sér-
fræðingar á hverju sviði, bæði úr
háskólasamfélaginu og atvinnu-
lífinu. Á hverju misseri eru fengnir
erlendir sérfræðingar sem halda
sérhæfð námskeið eða vinnustofur
og von er á nokkrum slíkum nú á
haustmisseri.
„Eitt skemmtilegt verkefni sem
við erum að vinna að núna er að
taka á móti Margaret Andrews
frá Higher Ed Associates en hún
verður með námskeiðið Leading
with Emotional Intelligence sem
hentar stjórnendum sem vilja
fræða sig um tilfinningagreind og
hversu mikilvæg hún getur verið
í stjórnendahlutverkinu,“ segir
Hanna.
„Andrews býr yfir gríðar-
legri reynslu af leiðtogaþjálfun
og stjórnun og er meðal þeirra
fremstu á sínu sviði. Hún var áður
deildarforseti við Harvard-háskóla
og kennir þar reglulega ennþá,
ásamt því að ferðast út um allan
heim að kenna stjórnun og leið-
togaþjálfun. Hún hefur komið til
okkar nokkrum sinnum og hafa
námskeið hennar ávallt vakið
mikla lukku enda mikill fengur að
fá hana til að kenna.“
Stjórnendur stuðli að fræðslu
„Við ætlum einmitt að bjóða
stjórnendum að kaupa sérsniðna
þjónustu í samstarfi við Andrews
þar sem hægt er að velja úr þremur
námskeiðum sem öll fjalla um
stjórnun frá mismunandi hliðum,“
bætir Halla við og segir að þetta
sé tækifæri sem stjórnendur ættu
ekki að láta fram hjá sér fara.
„Það er mikilvægt að stjórn-
endur stuðli að fræðslu hjá starfs-
fólkinu sínu, en það er ekki síður
mikilvægt að þeir sjálfir séu ávallt
á tánum og tilbúnir að fræða sig
um nýjustu vendingar og fræði
sem varða starfið þeirra.“
Fleiri erlendir sérfræðingar
koma til með að kenna í spenn-
andi nýjum námslínum í jákvæðri
sálfræði sem eru á dagskrá Endur-
menntunar í haust og næsta vor:
„Við höfum verið með frábært
diplómanám í jákvæðri sálfræði
undanfarin ár í umsjón dr. Dóru
Guðrúnar Guðmundsdóttur, sviðs-
stjóra hjá Embætti landlæknis,“
segir Hanna og heldur áfram: „En
inntökuskilyrðin eru nokkuð
ströng og færri hafa komist að en
vilja. Stefnan núna er því tekin í
átt að því að gera fagið aðgengi-
legra með því að bjóða einnig upp
á styttri námslínur þar sem engra
inntökuskilyrða er krafist. Þar
gefst fólki tækifæri á að kynn-
ast jákvæðri sálfræði án þess að
skuldbinda sig í lengra nám með
tilheyrandi kostnaði.“
Námslínurnar sem eru á dag-
skrá á næstu misserum eru tvær
íslenskar sem kenndar verða í
staðnámi og tvær enskar sem verða
í fjarnámi með fjölbreyttum hópi
kennara víðs vegar að úr heim-
inum. Tvær námslínanna beinast
sérstaklega að stjórnendum en
það eru Jákvæð forysta og jákvæð
sálfræði á vinnustað – fyrir stjórn-
endur og sérfræðinga á mannauðs-
sviði og Positive Leadership and
Positive Psychology at Work, sem
eru báðar kenndar á vormisseri.
Mjög fjölbreytt námsframboð
Fyrir utan sérhæfð námskeið fyrir
stjórnendur og fyrirtæki tekur
námsframboð Endurmennt-
unar einnig mið af mikilvægum
viðfangsefnum sem hafa áhrif á
samfélagið.
„Í haust erum við með nokkur
námskeið sem eru mikilvægt inn-
legg í samfélagsumræðu nútímans,“
segir Halla. „Þar má nefna nám-
skeiðin Hatursorðræða og haturs-
glæpir, Farsótt – saga smitsjúk-
dóma og farsótta á Íslandi og Allur
regnboginn – hinsegin fræðsla fyrir
almenning. Það er mikilvægt að við
látum okkur málin varða og gefum
almenningi tækifæri á að fræða sig
um allar hliðar samfélagsins.“
Það er því greinilegt að af nægu
er að taka þegar kemur að náms-
framboði Endurmenntunar og
starfsfólk þar er samstillt í að
bjóða upp á það allra besta þegar
kemur að fræðslu á hinum marg-
víslegu sviðum. Halla og Hanna
líta björtum augum til komandi
missera og sjá má hópa af nem-
endum og þátttakendum streyma í
hús Endurmenntunar þar sem allt
er að fyllast af lífi. n
Nánari upplýsingar má finna á
endurmenntun.is, í gegnum net-
fangið endurmenntun@hi.is og
síma 525-4444.
Mikilvægt er að
vinna faglega að
undirbúningi og fram-
kvæmd fræðslu svo hún
skili því virði sem henni
er ætlað.
Halla Jónsdóttir
Sérlausnirnar
okkar taka mið af
stefnu og starfsemi hvers
fyrirtækis og sveigja sig
að aðstæðum í hverju
tilfelli.
Jóhanna Rútsdóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands í fararbroddi
Jóhanna Rúts-
dóttir er náms-
og þróunarstjóri
hjá Endur-
menntun HÍ og
Halla Jónsdóttir
er endurmennt-
unarstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINk
kynningarblað 15LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður