Fréttablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 48
Ægir Már Þórisson hefur
gegnt starfi forstjóra Adv-
ania á Íslandi frá árinu 2015
en árin tvö þar á undan var
hann framkvæmdastjóri
mannauðs- og markaðsmála
hjá fyrirtækinu og þar áður
forstöðumaður mannauðs-
sviðs Skýrr.
Áður en Ægir hóf störf hjá Skýrr/
Advania var hann mannauðs- og
framkvæmdastjóri hjá Capacent
ásamt því að sinna ráðgjöf á sviði
mannauðsmála.
Spurður, þar sem hann hefur
bakgrunn sem mannauðsstjóri,
hvernig honum finnist það hafa
nýst honum í starfi forstjóra segir
Ægir:
„Að hafa verið mannauðs-
stjóri nýttist mér á alla mögulega
máta. Ég þekkti starfsemina og
starfsfólkið gríðarlega vel og ólíkt
mörgum sem koma úr öðrum
áttum er enginn sem þekkir
starfsfólkið eins vel og mannauðs-
stjórinn. Það hefur gagnast mér
alveg gríðarlega vel. Að öðru leyti
held ég að maður átti sig á mögu-
leikum og takmörkum hinna og
þessara hugmynda sem koma upp.
Helsta hindrun allra góðra verka er
yfirleitt fólgin í fólkinu sem þarf að
vinna að hugmyndunum en það að
hafa góðan skilning og þekkingu
á þeim þætti hjálpar manni mjög
mikið,“ segir Ægir Már.
Heldur þú að mannauðsstjórar
sem verða forstjórar hugsi öðruvísi
en hefðbundnir forstjórar?
„Kannski var það þannig en
ég held að forstjórar í dag verði
að vera með þann eiginleika að
hugsa hlutina út frá fólkinu sínu.
Krafan í nútíma rekstri er svo
rosalega sterk í þá áttina. Krafan
sem er gerð á forstjóra nú til dags
er að vera í mjög góðum tengslum
við sitt fólk og hafa í raun og veru
getuna til þess að stíga inn í erfið
og viðkvæm starfsmannamál. Með
tímanum hefur þetta færst inn í
kröfurnar sem við gerum til æðstu
stjórnenda,“ segir Ægir, sem hefur
starfað hjá Advania frá árinu 2011.
Þarf að vera í rekstri
Hverjir myndir þú halda að væru
kostirnir og áskoranirnar við að
hafa verið í mannauðsmálum?
„Eðli málsins samkvæmt ertu
með innri fókus í mannauðs-
málum og áskorunin er að horfa
út á við. Það er ótrúlega mikil-
vægt að mannauðsstjórar hugsi
hlutverk sitt út frá þeim rekstri
sem fyrirtækið sem þeir starfa hjá
er í. Mannauðsstjóri þarf að vera
að velta fyrir sér hvernig hann
getur bætt rekstur fyrirtækisins
í gegnum mannauðsmálin og
þarf í raun og veru að hugsa alla
sína nálgun út frá rekstri en ekki
eingöngu út frá starfsánægju eða
einhverju slíku. Eitt leiðir af öðru.
Þegar þú býrð til góðan vinnustað
með fullt af ánægðu starfsfólki þá
muntu skila árangri en þú verður
að horfa á rekstrarþáttinn.
Mér finnst líka rosalega mikil-
vægt að mannauðsstjórar skilji
mjög vel það viðskiptamódel sem
unnið er eftir. Þeir ættu stöðugt
að vera að velta fyrir sér hvernig
þeir geti bætt heildarárangur
félagsins og þá þurfa þeir að skilja
kjarnastarfsemina jafn vel og aðrir
stjórnendur,“ segir Ægir.
Eru í lykilhlutverki
Heimsfaraldurinn setti stórt strik
í reikninginn hjá fyrirtækjum og
spurður að því hvort hann hafi
ekki haft áhrif á hlutverk mann-
auðsstjóra og hvaða áhrif það hafi
til framtíðar segir Ægir Már:
„Heimsfaraldurinn var mjög
mikil áskorun fyrir alla vinnu-
staði. Það reyndi mjög mikið á
mannauðsstjóra. Í fyrsta lagi
að finna út úr því hvernig væri
hægt að halda áfram reglulegri
starfsemi og svo að halda uppi
menningu og stemningu sem
er nauðsynleg til að hlutirnir
virki. Hlutverk mannauðsstjóra
á Covid-tímanum var gríðar-
lega mikilvægt. Ég held að það
hafi aldrei fyrr skapast viðlíka
aðstæður í rekstrarumhverfi
fyrirtækja þar sem reynt hefur
jafn mikið á mannauðsstjóra. Þau
félög sem voru með veika mann-
auðsstjórnun lentu í mun meira
basli við að komast í gegnum
þetta heldur en þau sem höfðu
byggt upp sterka sýn í mannauðs-
málum,“ segir Ægir. n
Enginn þekkir starfsfólkið betur en mannauðsstjórinn
Ægir Már Þóris-
son, forstjóri
Advania á Ís-
landi, þekkir vel
til mannauðs-
mála.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGRYGGUR ARI
Að hafa verið
mannauðsstjóri
nýttist mér á alla mögu-
lega máta. Ég þekkti
starf semina og starfs-
fólkið gríðarlega vel.
Iðan er fræðslusetur í
iðnaði og sinnir símenntun
starfsmanna í bílgreinum,
bygginga- og mannvirkja-
greinum, málm- og vél-
tæknigreinum, prent- og
miðlunargreinum og mat-
væla- og veitingagreinum.
Námsframboðið er fjölbreytt
og í stöðugri þróun enda er það
þýðingarmikið hlutverk að sjá
fyrirtækjum og einstaklingum
fyrir nýrri þekkingu og færni eftir
því sem þörf krefur.
„Félagsmaðurinn er í for-
grunni hjá Iðunni. Það hefur enda
sjaldan verið eins mikilvægt að
eiga greiðan aðgang að öflugri
og vandaðri símenntun. Þannig
geta einstaklingar mótað starfs-
þróun sína í takt við eigin áhuga
og kröfur atvinnulífsins. Á þennan
hátt verður þekking þeirra verð-
mætari fyrir þá sjálfa, fyrirtækin í
landinu og samfélagið í heild,“ segir
Sigurður Fjalar Jónsson, markaðs-
stjóri Iðunnar fræðsluseturs.
Í Iðunni starfa enn fremur fimm
náms- og starfsráðsgjafar og hafa
þar umsjón með raunfærnimati,
áhugasviðskönnunum og fræðslu-
könnunum ásamt því að veita
margvíslega ráðgjöf.
„Auk staðbundinna, blandaðra
og stafrænna námskeiða heldur
Iðan úti mynd- og hljóðvarpi undir
heitinu Augnablik í iðnaði, idan.is/
augnablik-i-idnadi/. Það er meðal
annars hagnýtur vettvangur fyrir
mannauðs- og fræðslumál. Það
er líka margvíslegur fróðleikur
öllum aðgengilegur á YouTube-rás
Iðunnar, youtube.com/idanfra-
edslusetur. Ertu ekki örugglega
áskrifandi?“ spyr Sigurður Fjalar
lesendur.
„Á síðasta mannauðsdegi not-
uðum við tækifærið og kynntum
til sögunnar þáttaröð um mann-
auðsmál í umsjón Írisar Sigtryggs-
dóttur, stjórnanda og teymisþjálfa
hjá Eldar Coaching. Þetta árið
nýtum við daginn til að opinbera
nýja röð myndskeiða um fræðslu-
mál og nýtt vefrit Iðunnar um
fræðslu- og mannauðsmál. Fyrstu
tvö myndskeiðin í þáttaröðinni
eru nú þegar opin á vef Iðunnar og
YouTube-rás, en stjórnandi þeirra
er Gerður Pétursdóttir, fræðslu-
stjóri Isavia. Vefritið á sér langan
aðdraganda en áskrift að því er góð
leið til að fylgjast með öllu því sem
Iðan býður upp á í mannauðs- og
fræðslumálum,“ upplýsir Sigurður
Fjalar. n
Opnið vefinn á slóðinni idan.is/
vefrit og skráið ykkur fyrir áskrift.
Það kostar ekkert.
Mannauðs- og fræðslumál hjá Iðunni
Sigurður Fjalar Jónsson, markaðsstjóri Iðunnar fræðsluseturs, segir félags-
menn ávallt í forgrunni og með greiðan aðgang að símenntun. MYND/AÐSEND
12 kynningarblað 1. október 2022 LAUGARDAGURMannauður