Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 50
Við sjáum það bara
að ánægt starfsfólk
sem fær tækifæri til að
vaxa nær meiri árangri
og skilar meira virði til
viðskiptavina og sam-
félagsins.
Magnús Már Einarsson
Orkuveita Reykjavíkur
endurhannar höfuðstöðvar
sínar að Bæjarhálsi. Fram-
kvæmdir á Bæjarhálsinum
hófust sumarið 2021 en
stefnt er að því að taka hús-
næðið í gagnið fyrir lok árs
2024.
Magnús Már Einarsson, forstöðu-
maður Aðbúnaðar, á sviðinu
Mannauði og menningu hjá
Orkuveitu Reykjavíkur, segir eina
af áskorununum hafa verið að
hanna nútímalegt starfsumhverfi
sem sé ein af forsendum þess að
vera eftirsóknarverður vinnu-
staður.
„Við áttum okkur á því að
heimurinn er að breytast á mun
meiri hraða en áður, þegar kemur
að starfsumhverfi fólks. Þess
vegna höfum við horft á endur-
hönnunina á þessu húsnæði sem
starfsumhverfis- eða menn-
ingarmál frekar en húsnæðis- eða
aðstöðumál,“ segir Magnús.
Starfsumhverfi
fjölbreyttrar starfsemi
„Við sjáum það bara að ánægt
starfsfólk sem fær tækifæri til að
vaxa nær meiri árangri og skilar
meira virði til viðskiptavina og
samfélagsins. Verkefni okkar og
ákvarðanir hafa áhrif á komandi
kynslóðir og við lítum á þetta
þannig að framsýni sé nauðsyn-
legur þáttur þegar kemur að því
að skapa virði.“
Magnús segir að eitt af því
sem hafi verið haft að leiðarljósi
við hönnun á húsinu sé að þróa
umhverfi sem styður við fjöl-
breytta starfsemi og ólík störf.
Nefnir hann hugmyndir um að fá
frumkvöðla og svokallaða „gigg-
ara“ til að glæða húsnæðið lífi og
þannig skapa vinnuumhverfi þar
sem saman kemur stórhuga fólk
sem vill gera eitthvað fyrir sam-
félagið.
Ekki bara hús heldur
starfsumhverfi stórhuga fólks
Magnús segir
að við hönnun
á húsinu hafi
verið haft að
leiðarljósi að
þróa umhverfi
sem styður
við fjölbreytta
starfsemi
og ólík störf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Framkvæmdir við endurhönnun höfuðstöðva Orkuveitunnar hófust árið 2021. MYND/AÐSEND
Um M&M
Mannauður og menning er eining innan OR sem
sinnir mannauðsmálum, innri þjónustu og að-
búnaði fyrir fyrirtæki innan OR-samstæðunnar.
Þar er lögð áhersla á að bjóða aðbúnað, stuðning
og verkfæri til að skapa hvetjandi starfsumhverfi
og menningu sem styður við starfsfólk til að ná
eftirtektarverðum árangri fyrir samfélagið. OR-
samstæðan samanstendur af fimm fyrirtækjum;
Orkuveitu Reykjavíkur, Veitum, Orku náttúr-
unnar, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það
hlutverk að auka lífsgæði með samfélagsábyrgð
að leiðarljósi.
Vilja hanna það besta
„Við erum ekki bara að hanna hús
heldur umhverfi fyrir stórhuga
fólk. Til þess viljum við nýta hús-
næðið og aðstöðu okkar þannig að
það geti þjónað ólíkum hópum og
vinni gegn svokallaðri síló menn-
ingu. Þetta er stórt hús með marga
fermetra þannig að tækifærin eru
mörg, en það er einnig áskorun að
ganga úr skugga um að við séum að
mæta nútímaþörfum allra þeirra
ólíku starfa sem finnast innan
samstæðunnar.“
Magnús segir að við hönnunina
hafi alls konar vinnurými verið
skoðuð víða um heim og metn-
aðurinn liggi í því að bjóða upp á
aðstöðu eins og hún gerist best.
Eitt af því sem sé mikilvægt sé að
allar hæðir séu hannaðar þannig
að aðgengi sé það sama fyrir alla.
Nefnir hann einnig lýsingu, loft-
ræstingu og hljóðvist sem þurfi að
þjóna þörfum ólíkra hópa.
Fólk vill meira frelsi
„Annað sem við höfum mikið
verið að ræða hjá okkur er að þróa
starfsumhverfi sem styður við
fólk sem er ekki endilega að ráða
sig til fjörutíu ára. Við sjáum það
sérstaklega eftir Covid að fólk vill
hafa meira frelsi þegar kemur að
starfsumhverfi og stjórna vinnu-
tíma sínum og aðstöðu meira
sjálft.“ n
Geko starfar við að tengja
fyrirtæki á Íslandi við hæfi-
leikaríkt starfsfólk. Geko
hefur að leiðarljósi að styðja
fyrirtæki við að byggja upp
líflega og mannlega vinnu-
staði, þar sem starfsfólkið
nýtur sín á öllum sviðum.
Kathryn Gunnarsson er stofnandi
Geko. Hún segir frábært að sjá fleiri
fyrirtæki á Íslandi einbeita sér að
mikilvægasta þætti fyrirtækisins,
fólkinu sínu.
„Ég hef verið á Íslandi síðan árið
2016 og jafnvel þennan stutta tíma
hef ég séð hvernig fyrirtæki ein-
beita sér í auknum mæli að starfs-
mannastefnu sinni. Þó að við lifum
á stafrænni öld þar sem sjálfvirkir
ferlar, gervigreind og vélrænt nám
styðja við hagræðingu og afköst
fyrirtækja, er mikilvægt að muna
að mannlegi þátturinn er jafn
mikilvægur, ef ekki mikilvægasti
þátturinn, til að einbeita sér að,“
segir hún.
Spurð að því hvernig fyrirtæki
geta laðað að sér hæfileikaríkt
fólk svarar Kathryn að upplifun
einstaklinga á fyrirtækjum og þeir
ferlar sem fyrirtækin þróa utan um
ferðalag þeirra hefjist með aðdrátt-
arafli, einhverju sem laðar fólk að
fyrirtækinu, og endi við starfslok.
Þar á milli eru ýmsir snertipunktar.
„Mikilvægi þess að skapa
einstaka og hnökralausa upp-
lifun umsækjenda á réttum tíma-
punkti hefur áhrif á marga þætti
fyrirtækisins, svo sem ytri og innri
ímynd vörumerkja þess, þátttöku
starfsmanna og aðgang að hæfi-
leikaríku fólki til ráðningar. Ísland
er umsækjendadrifinn markaður.
Fólk sækir ekki alltaf um aug-
lýst störf þar sem það er oft ekki
sérstaklega að skoða nýja starfs-
möguleika. Þess í stað notar fólk
tengslanet sín og ráðningarskrif-
stofur meira en undanfarin ár,“
segir Kathryn.
Hún segir að hér á landi sé kaup-
endamarkaður fyrir umsækjendur.
„Þetta er ekki einhliða. Ráðn-
ingarstjórar þurfa að skilja að þeir
eru líka metnir af umsækjanda, það
er ekki einhliða. Sá sem tekur við-
talið er fulltrúi fyrirtækisins og er
hugsanlega fyrsti snertipunkturinn
sem umsækjandinn hefur nokkurn
tíma haft við fyrirtækið. Það skiptir
sköpum hvernig sá sem tekur við-
talið kemur fram fyrir hönd fyrir-
tækisins.“
Góð upplifun umsækjenda
Engin tvö fyrirtæki eru eins og
þau hafa hvert sína leið til að laða
að sér hæfileikaríkt fólk. Kathryn
segir að til að upplifun umsækj-
enda verði sem best þurfi að leggja
áherslu á mannlega þáttinn.
„Að bjóða einhvern velkominn
á ekki að gerast í fyrsta sinn þegar
viðkomandi hefur störf. Það þarf
að gera það um leið og umsækjandi
sendir inn umsókn,“ segir Kathryn.
Hún gefur nokkur ráð sem gætu
gagnast fyrirtækjum.
n Hugsa fyrst og fremst um ferlið
út frá notendaupplifun.
nGagnsæi í hverju skrefi tryggir
að umsækjandinn upplifi að
tekið sé eftir honum og hlustað
sé á hann.
nNotið tæknina til að bæta upp-
lifunina, ekki til að flækja hana.
nBjóðið upp á þjálfun í ráðn-
ingum fyrir alla sem taka þátt í
ráðningarferlinu.
nBlandið saman ólíku fólki til
að taka viðtöl. Það minnkar
áhættuna á hlutdrægni og eykur
líkurnar á teymin verði fjöl-
breytt.
Slæm upplifun umsækjanda situr
lengi í honum, að sögn Kath ryn.
„Slæm upplifun eykur líkurnar á
því að umsækjanda sem er hafnað
segi öðrum frá upplifun sinni og
slæmri tilfinningu fyrir fyrirtæk-
inu,“ segir hún.
„Ef umsækjanda er aftur á móti
hafnað, en hann fékk jákvæða
upplifun af fyrirtækinu í ráðningar-
ferlinu, hefur hann allt aðra sögu að
segja. Upplifun umsækjenda hefur
áhrif á framtíðarmöguleika fyrir-
tækisins til að ráða til sín hæfileika-
ríkt fólk. Gleymið því aldrei!“
Fjölbreytileiki er alls konar
Kjarninn í gildum Geko er jafnrétti,
fjölbreytileiki og inngilding, eða
þátttaka allra.
„Við erum fimm manna teymi
og 60% af teyminu eru af erlendum
uppruna. Sem erlendur sér-
fræðingur sem var í atvinnuleit
á Íslandi árið 2016 hef ég reynslu
af því hvernig það er að reyna að
komast inn á íslenskan markað sem
útlendingur. Það er ekki auðvelt,“
segir Kathryn.
„Við sjáum oft að fyrirtæki ein-
blína mest á fjölbreytileika þegar
þau eru að vinna að því að innleiða
jafnrétti, fjölbreytileika og inn-
gildingu og þegar þau hugsa um
jafnrétti þá einblína þau aðallega
á kyn. Fjölbreytileiki er aftur á
móti svo miklu meira en kyn. Að
setja saman fjölbreytt teymi þýðir
að þú þarft að vera á höttunum
eftir eiginleikum sem eru utan við
„normið“ hjá fólkinu í teyminu. Það
getur falið í sér mismunandi aldur,
þjóðerni, menntun og lífsreynslu.
Við þurfum að vera meðvituð um
það, þegar við ráðum ekki fólk ein-
faldlega því það er á einhvern hátt
frábrugðið öðrum í teyminu, að
við þurfum frekar að skoða hvernig
ólíkir eiginleikar umsækjenda geta
bætt teymið. Hvaða lífsreynslu
kemur það með inn í starfið sem er
ólík lífsreynslu annarra í teyminu
og getur á þann hátt bætt það?“
Kathryn segir að fyrirtæki geti
ekki búið til fjölbreytt teymi eða
starfsmannahóp nema kjarninn
í stefnu þeirra sé að skapa fyrir-
tækjamenningu sem stuðlar að
þátttöku allra. n
Upplifun umsækjenda skiptir öllu
Nánar um Geko
Geko er ráðningar- og ráð-
gjafarfyrirtæki í mannauðs-
málum sem leggur áherslu
á að vinna með fólki og
fyrirtækjum innan tækni- og
nýsköpunargeirans.
Starfsfólk
Geko, frá
vinstri Agla,
Ania, Kathryn,
Hulda og
Anna.
14 kynningarblað 1. október 2022 LAUGARDAGURMannaUðUr