Fréttablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 69
kopavogur.is
Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi
Leikskóli við Skólatröð. Lýsing skipulagsverkefnis.
Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kynning á lýsingu
skipulagsverkefnis (skipulagslýsingu) vegna nýs deiliskipulags leikskóla við Skólatröð.
Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir 0,2 ha lóð við Vallartröð 12A. Í lýsingunni eru settar fram helstu forsendur
og markmið deiliskipulagsvinnunnar ásamt tímaáætlun skipulagsferlisins.
Miðvikudaginn 19. október milli kl. 17:00-18:00 verður kynningarfundur/opið hús á bæjarskrifstofum
Kópavogs að Digranesvegi 1 þar sem lýsingin verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska.
Ofangreind lýsing skipulagsverkefnis á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er nánari upplýsinga
um lýsinguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna.
Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 27. október 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Vatnsendahvarf. Breyting á aðalskipulagi. Lýsing skipulagsverkefnis.
Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kynning á lýsingu
skipulagsverkefnis (skipulagslýsingu) vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir
Vatnsendahvarf. Breytingin er gerð í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og
umsagnir sem hafa borist. Í aðalskipulagsbreytingunni verður afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði, opin
svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt verður út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú
þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla. Auk þess er staðsetning
minjasvæðis leiðrétt. Í athugun er að breyta Kambavegi í safngötu frá Vatnsendavegi – að og frá hverfinu.
Ofangreind lýsing skipulagsverkefnis er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Ef óskað er nánari upplýsinga um lýsinguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar
á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna.
Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 27. október 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir áhugasömum fagaðilum
til að vinna að hugmyndum fyrir heildarskipulag miðlægrar
íbúabyggðar, samfélagsþjónustu og græns svæðis í hjarta
Heimaeyjar. Svæðið sem um ræðir er kennt við Malarvöll
og Löngulág.
Valdir verða umsækjendur til að vinna að hugmynd fyrir
heildarnýtingu og skipulag svæðisins. Sú tillaga sem þykir
best verður þróuð áfram í samstarfi milli Vestmannaey-
jabæjar og viðkomandi fagaðila.
Val á umsækjendum mun taka mið af fyrri verkum
umsækjenda, umsögnum vegna fyrri verka og viðtölum við
viðkomandi.
Áhugasamir aðilar eru beðnir að hafa samband við skip-
ulagsfulltrúa – dagny@vestmannaeyjar.is. Með umsókn
skulu fylgja fyrri verkefni af svipuðum toga og mun valnef-
ndin styðjast við þau gögn við val á umsækjendum.
Þegar hugmyndirnar liggja fyrir verður valin sú tillaga sem
þykir best og hún þróuð áfram í samstarfi milli Vestman-
naeyjabæjar og viðkomandi fagaðila.
Aðalskipulag svæðisins má skoða á kortvef Vestmannaey-
jabæjar: https://map.is/vestm/
Markmið skipulagsins er að svæðið bjóði uppá á mann-
vænt umhverfi og fjölbreytt framboð íbúða. Fyrirhugað er
að á svæðinu verði leikskóli og að grænt svæði í Löngulág
muni halda sér. Þannig er áhersla á góða landnýtingu,
gönguvænt umhverfi og aðlaðandi tómstundarsvæði.
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2022.
Skipulagshönnun
– Miðlæg íbúabyggð í Vestmannaeyjum
Erum við
að leita að þér?
ATVINNUBLAÐIÐ 17LAUGARDAGUR 1. október 2022