Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 77
Mannauðurinn er ein
mikilvægasta auðlind sem
hver vinnustaður hefur á
að skipa hverju sinni. Þeim
fyrirtækjum sem hlúa að og
rækta mannauðinn vegnar
betur, því vellíðan og vel-
ferð starfsfólks hefur áhrif á
árangur og framleiðni fyrir-
tækja.
„Markmið Gallup, með okkar við-
skiptavinum, er að skapa heilbrigt
starfsumhverfi. Það gerum við
með því að efla helgun, þar sem
einstaklingur nær að blómstra í
starfi. Þá er lykilatriði að byggja
upp góðan grunn strax frá
byrjun,“ segir Íris Björg Birgisdóttir,
viðskiptastjóri hjá Mannauðs-
rannsóknum og ráðgjöf Gallup.
„Einn áhersluþátta er að tryggja
árangursríkt nýliðunarferli, eða
„onboarding“: Tímabilið frá því
ákvörðun um ráðningu er tekin
uns einstaklingur telst fullgildur
starfsmaður. Nýliðunarferlið snýst
meðal annars um að efna þau
loforð sem gefin voru í ráðningar-
ferlinu,“ segir hún.
Nýtt starf – nýir tímar
Fyrstu dagar og mánuðir í starfi
eru bæði skemmtilegur og
krefjandi tími. „Tímabilið ein-
kennist af umbreytingum fyrir
nýliðann jafnt sem vinnustaðinn.
Nýliðinn lærir allt í senn, nýtt
starf, aðlagast ókunnu umhverfi,
kynnist nýju samstarfsfólki, lærir
ferla og aðlagast gildum og venjum.
Nýliðunarferlið snýst því um
margt annað en bara að læra nýja
hæfni.“
Samkvæmt rannsóknum Gallup
skortir þriðjung fyrirtækja skipu-
lagt nýliðunarferli. Ávinningur
fyrirtækja sem standa vel að mót-
töku, aðlögun og þjálfun nýliða er
heilmikill. Framleiðni er allt að 70%
meiri, starfsmannavelta helmingi
minni og helgun starfsfólks er
33% meiri. Að auki dregur það úr
rekstrarkostnaði fyrirtækja,“ segir
Íris.
Nýliðunarferlið er ferðalag
Til að þetta tímabil takist vel skipta
margir þættir máli. „Samkvæmt
niðurstöðum rannsókna Gallup
um hvað skilgreinir árangursríkt
nýliðunarferli, þarf nýr starfsmað-
ur meira en einn kynningardag í
nýju starfi. Nýliðinn þarf skipu-
lagt móttökuferli, nýliðafræðslu,
tilbúna vinnuaðstöðu, skilgreinda
„fóstru“ og fleira. Nýliðunarferlið
á að vera ferðalag nýliða með yfir-
manni og teymi, þar sem byggður
er sterkur grunnur sem tryggir
langtíma árangur nýliðans og
teymisins,“ segir Íris.
Gallup veitir ráðgjöf í nýliðunar-
ferlinu sem og öðrum þáttum
sem snúa að rekstri fyrirtækis.
„Við aðstoðum viðskiptavini við
að byggja upp nýliðunarferli.
Samkvæmt rannsóknum Gallup
skulu öll nýliðunarferli svara fimm
spurningum sem snúa að gildum
og markmiðum fyrirtækisins,
styrkleikum viðkomandi, hlut-
verki hans og teymisins og framtíð
nýliðans. Í árangursríku nýlið-
unarferli fær nýliði upplýsingar og
fræðslu um starf sitt og starfsemi
vinnustaðarins á markvissan hátt,
sem og menningu, venjur og siði
vinnustaðarins.
Þrennt skiptir nýliða mestu máli
í nýliðunarferlinu: Í fyrsta lagi að
fá tækifæri til að mynda félagsleg
tengsl við fólk í teyminu og fyrir-
tækinu almennt. Í öðru lagi að
þjálfun miðist við að auka hæfni
viðkomandi til að sinna nýja starf-
inu, sem og auka skilning nýliðans
á því hvernig hlutverk hans tengist
öðru starfsfólki, verkefnum og
starfsemi vinnustaðarins í heild. Í
þriðja lagi að móttaka, þjálfun og
aðlögun viðkomandi sé skýr, fyrir-
sjáanleg og stefnumiðuð. „Allt í
takti við okkar þjónustu“ segir Íris.
Hagur í góðu nýliðunarferli
„Okkar viðskiptavinir sjá hag í
því að vinna með þessa þætti.
Þannig geta þeir haft jákvæð áhrif
á nýliðann og frammistöðu hans.
Það dregur úr álagi á hann, eykur
öryggi hans og skapar jákvæð
tengsl. Einnig dregur það úr hættu
á óþarfa mistökum og gefur
honum tækifæri til leggja sitt af
mörkum og skila af sér hámarksaf-
köstum fyrr. Með því að standa vel
að nýliðunarferlinu eflir vinnu-
staðurinn helgun starfsmanns, vel-
ferð hans, líðan, hollustu og tryggð
við vinnustaðinn. Þetta hefur líka
áhrif á það ef starfsmaður hættir,
því orðspor út á við skiptir öll
fyrirtæki máli,“ segir Íris.
Hver ertu og hvað lætur þig
tikka?
Clifton styrkleikamatið var
fyrst gefið út 1999 en að baki því
liggur um 30 ára rannsóknarvinna
Donalds Clifton, sem stundum er
kallaður faðir styrkleikamiðaðrar
sálfræði og afi jákvæðrar sálfræði.
Markmið matsins er að gera fólki
kleift að uppgötva og þróa styrk-
leika sem það býr yfir til þess að
nýta þá betur í lífi og starfi.
Jákvæð nálgun
Clifton styrkleikamatið byggir,
að sögn Auðuns Gunnars Eiríks-
sonar hjá Mannauðsrannsóknum
og ráðgjöf hjá Gallup, á jákvæðri
nálgun á það hvernig við tökumst
á við áskoranir í lífi og starfi. „Fólk
svarar 177 ólíkum staðhæfingum
um sjálft sig, sem falla í 34 styrk-
leika. Enginn styrkleiki er betri
en annar og öll höfum við okkar
einstöku samsetningu styrkleika.
Áherslan er á hvernig við getum
nýtt styrkleika okkar betur til þess
að takast á við líf og starf og skilja
betur framlag okkar til teymisins
eða verkefnanna. Þetta nýtist jafn
vel á vinnumarkaðnum sem og í líf-
inu almennt, jafnvel í samskiptum
við maka,“ segir Auðunn og hlær.
Aukin sjálfsþekking og
sterk teymi
„Styrkleikamatið er mikið notað
við stjórnendaeflingu. Eitt mikil-
vægasta verkefni stjórnenda er að
þekkja styrkleika sína og veikleika.
Matið aðstoðar þá við að skilja
hvernig þeir nálgast verkefni og
fólk og hvernig þeir koma öðrum
fyrir sjónir. Allir styrkleikar eru
jákvæðir en þeir geta líka truflað
eða verið hamlandi séu þeir
ofnotaðir. Þetta er mikilvægt
fyrir stjórnendur að skilja,“ segir
Auðunn.
„Styrkleikamatið er eitt
öflugasta tólið til að styrkja stjórn-
endateymi eða hvers konar teymi,
raunar. Allir styrkleikar koma með
eitthvað einstakt að borðinu en
hver styrkleiki hefur líka ólíkar
þarfir. Gagnkvæm þekking á þessu
tvennu er ótrúlegur styrkur fyrir
teymi að hafa,“ segir Auðunn.
Auðunn segir enn fremur gríðar-
legan kost felast í því að teymi
vinni markvisst með styrkleika
sína. „Slík teymi eru til dæmis með
meiri framleiðni, skila ánægðari
viðskiptavinum, aukinni sölu og
færri öryggisfrávikum. Fyrirtæki
sjá því hag sinn í því að leita til
okkar og leiða teymin í gegnum
styrkleikamat,“ segir Auðunn.
Það má nýta styrkleikamatið í
hvers konar starf þar sem mikil-
vægt er að þekkja fólk, tengja fólk
og auka traust. „Sem dæmi nýta
fyrirtæki Clifton styrkleika-
matið sem hluta af sínu nýliðunar-
ferli og senda nýja starfsmenn í
styrkleikamat hjá okkur. Það er
gríðarlega mikilvægt fyrir stjórn-
endur að þekkja vel styrkleika
starfsfólks síns, vita hvað það er
sem fær fólk til að „tikka“ og vita í
hvernig umhverfi það þrífst best.
Einnig er gott að skilja hvernig
er best að miðla upplýsingum til
hvers og eins og hvernig fólk hefur
tilhneigingu til að nálgast verkefni
og áskoranir. Styrkleikamatið býr
til orðaforða yfir það hvernig við
nálgumst verkefni og hvað hvetur
okkur. Þetta hjálpar bæði ein-
staklingnum og vinnustaðnum að
ræða nýliðunarferlið, samskiptin
og verkefnin,“ segir hann.
Samstarfsfélagarnir í nýju ljósi
Auðunn segir það einstaklega
gaman að vinna með starfs-
teymum og skoða útkomurnar úr
styrkleikamati með þeim. „Það
er oft hlegið mikið því fólk er
gjarnan að kynnast samstarfsfólki
sínu upp á nýtt og skilja sjónar-
horn hvers annars mun betur.“ Að
sögn Auðuns hefur það sýnt sig
að þeir einstaklingar sem vinna
með styrkleika sína í starfinu eru
almennt hamingjusamari og ólík-
legri til þess að hætta í starfi.
Byggir á vísindum
Clifton styrkleikamatið byggir á 30
ára rannsóknarvinnu og áreiðan-
leiki þess er margprófaður. „Ég vil
þó taka fram að Clifton styrkleika-
matið er ekki ráðningatæki. Það er
ekki hjálplegt sem slíkt. Matið er
tæki til þess að nota eftir ráðningu
til þess að efla traust, sjálfsþekk-
ingu starfsfólks eða stjórnenda og
til að styrkja teymi. Fyrirtæki eru
mjög mikið að skoða þetta núna og
við erum út um allan bæ í styrk-
leikavinnu vegna þess að þetta er
bæði árangursríkt og skemmti-
legt,“ segir Auðunn að lokum. n
Nánari upplýsingar um mann-
auðsrannsóknir og ráðgjöf Gallup
má finna á gallup.is
Nýliðunarferlið á
að vera ferðalag
nýliða með yfirmanni og
teymi, þar sem byggður
er sterkur grunnur sem
tryggir langtímaárangur
nýliðans og teymisins.
Íris Björg
Nýliðunarferlið er grunnur að árangri
Gallup sinnir
mannauðs-
rannsóknum
og ráðgjöf
fyrir fyrirtæki
og hefur til þess
fríðan flokk
sérfræðinga. Frá
vinstri: Tómas
Bjarnason, Arna
Frímannsdóttir,
Auðunn Gunnar
Eiríksson og Íris
Björg Birgisdótt-
ir. Á myndina
vantar Sóleyju
Kristjánsdóttur.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
kynningarblað 17LAUGARDAGUR 1. október 2022 MaNNauður