Fréttablaðið - 01.10.2022, Síða 85
Það er svo mikil-
vægt að finnast
maður tilheyra góðum
hópi þar sem fólki líður
vel og það finnur að rödd
þess heyrist þegar hún á
að heyrast.
Adriana Karólína Pétursdóttir
Tæplega 400 manns starfa
hjá ISAL í Straumsvík og
framleiðir fyrirtækið árlega
yfir 200.000 tonn af áli.
Mannauðsdeild er mikil-
væg í svona stóru fyrirtæki
og segir Adriana Karólína
Pétursdóttir, leiðtogi starfs-
mannaþjónustu hjá ISAL, að
reksturinn byggist á framúr-
skarandi starfsfólki.
Einar Aron Einarsson, fram-
kvæmdastjóri rafgreiningar, segir
að besta auðlind fyrirtækisins
sé gott og hæft starfsfólk. Mann-
auðsstjóri fyrirtækisins situr í
framkvæmdastjórn fyrirtæksins
og bendir Einar Aron á að við
framkvæmdastjóraborðið hafi
verið teknar ákvarðanir sem
tengjast rekstri og að þær tengist
nánast alltaf líka starfsfólki, hag
þeirra eða vinnuframlagi á ein-
hvern hátt.
Enn fleiri störf og innkoma
Álverið í Straumsvík framleiðir
árlega yfir 200.000 tonn af áli og
var söluandvirðið á síðasta ári 88
milljarðar króna.
„Ofan á það erum við með upp-
bræðslu en við kaupum líka ál,“
segir Einar Aron. „Steypuskálinn
getur í rauninni framleitt meira
en kerskálarnir framleiða en þeir
framleiða þessi 200.000 tonn af
heitmálmi sem fer í framleiðslu í
steypuskálanum. Svo kaupum við
um 20.000 tonn í ár af málmi frá
þriðja aðila sem við umbræðum
og steypum virðisaukandi vöru.
Þannig að við tökum aukaskref í
framleiðslunni í steypuskálanum
og framleiðum lokavöru fyrir við-
skiptavini okkar. Þannig að þessi
málmur sem kemur frá okkur er
ekki bræddur upp annars staðar
heldur fer beint í fullvinnslu hjá
viðskiptavinum okkar.“
Adriana Karólína Pétursdóttir,
leiðtogi starfsmannaþjónustu hjá
ISAL, bendir á að álverið sé stór
aðili þegar kemur að útflutningi á
Íslandi.
„Vara fyrirtækisins er framleidd
á eins umhverfisvænan hátt og
hægt er, sem skiptir verulegu máli
fyrir eftirspurnina eftir okkar
afurðum.“
Einar Aron bendir á að stór
hluti af innkomunni verður
eftir í landinu í formi launa og
aðkeyptrar þjónustu sem var yfir
sex milljarðar í fyrra.
„Til að framleiða ál þarf þrjú
meginhráefni; rafskaut, súrál og
rafmagn, og þetta eru þrír stærstu
kostnaðarliðirnir. Einn af þeim er
keyptur beint frá íslensku þjóðinni
og skilar sér í enn fleiri störfum
og auðvitað innkomu og rekstrar-
hagnaði hjá Landsvirkjun.“
Rekstrardeildirnar eru sex
„Það er rafgreiningin sem ég er
framkvæmdastjóri yfir og inni
í því eru kerskálarnir, þurr-
hreinsistöðvarnar, kersmiðjan
og skautvinnslan. Þetta er stór
deild og hefur flesta starfsmenn.
Svo erum við með aðra rekstrar-
deild sem er steypuskálinn sem í
rauninni tekur við álinu frá okkur.
Við framleiðum álið, þau taka
við því og steypa úr því bolta sem
sem við sendum svo út. Þá eru það
stoðdeildir sem eru viðhaldssvið,
fjármálasvið, HSEQ og svo auð-
vitað starfsmannasvið,“ upplýsir
Einar Aron.
Um 380 manns vinna hjá
álverinu, bæði faglærðir og ófag-
lærðir. Þar af eru sérfræðingar og
stjórnendur tæplega 80 manns og
eru þau yfirleitt háskólamenntuð.
„Sumarstarfsmenn eru síðan um
120 á ári og vinna þau frá miðjum
maí fram til loka ágúst í afleys-
ingum meðan okkar fasta fólk er í
sumarfríi.“
Mikilvægi mannauðsdeilda
Adriana og Einar Aron tala um
mikilvægi mannauðsdeilda í fyrir-
tækjum.
„Reksturinn byggist á framúr-
skarandi starfsfólki og þarf fólk
að finnast það tilheyra einhverju
samfélagi og sem hluti af stórri
skipulagsheild. Það gerist ekki af
sjálfu sér. Það er svo mikilvægt
að finnast maður tilheyra góðum
hópi þar sem fólki líður vel og það
finnur að rödd þess heyrist þegar
hún á að heyrast,“ segir Adriana.
Einar Aron segir að besta auð-
lind fyrirtækisins sé gott og hæft
starfsfólk.
„Það þarf að standa vel að
ráðningum og gera það á skipu-
legan, góðan og frambærilegan
hátt. Það er ekki nóg að ráða; það
þarf líka að halda í starfsfólkið og
leyfa því að þróast í starfi og að það
hafi góða möguleika á starfsþróun
innan fyrirtækisins.“
Nýlega innleiddi fyrirtækið
viðbrögð og stuðning við starfsfólk
sem er þolendur heimilisofbeldis.
„Þá má geta þess að starfsfólk
ISAL fær greiddar 18 vikur í fæð-
ingarorlofi þannig að fólk missir
engar tekjur, ásamt því að það
leiðir til jafnréttis í samræmingu
fjölskylduábyrgðar og einkalífs.
Þannig eru feður hvattir til að nýta
sér þetta til fulls; ekki bara tvær og
tvær vikur,“ segir Adriana.
Ekki er nóg með að hugsað sé
vel um núverandi starfsfólk ISAL
heldur er vel hugsað um fyrr-
verandi starfsfólk sem hefur hætt
sökum aldurs.
„Þeim er boðið árlega í haust-
eða vorferð að ógleymdum jólamat
þar sem við fáum öll tækifæri til
að hittast og ræða saman. Þannig
halda þau tengslum við sinn gamla
vinnustað og eru áfram hluti af
þessu samfélagi sem við erum.
Fyrrverandi starfsmenn eru mikil-
vægir talsmenn fyrirtækisins,“
segir Adriana.
„Rekstur álversins er mjög
tæknilegur og við leggjum mikla
áherslu á að gæði vinnunnar sé á
háu stigi. Það hefur marga kosti;
bæði er hagkvæmara að framleiða
álið ef vinnubrögðin eru góð en
svo skiptir líka máli að gera þetta
rétt af því að það hefur mikil áhrif
á umhverfismálin að framleiða
álið á réttan hátt. Þá hefur í raun-
inni reynsla og gæði vinnunnar hjá
starfsfólki mikið að segja og að það
hafi metnað fyrir því sem það er að
gera og fullan skilning á heildar-
ferlinu sem slíku,“ segir Einar.
Mannauðsstjóri situr líka í
framkvæmdastjórn
Margar ákvarðanir eru teknar í
stóru fyrirtæki hvort sem það er
um smávægilegar eða stórvægi-
legar breytingar og hafa þær alltaf
með beinum eða óbeinum hætti
áhrif á starfsfólkið.
„Við framkvæmdastjóraborðið
sitja fagaðilar á sínu sviði og þar
af leiðandi á mannauðsstjóri auð-
vitað að sitja við borðið, sem er líka
fagaðili á sínu sviði og getur komið
með sína sýn á hluti sem þarf að
bæta eða breyta svo eitthvað sé
nefnt svo að þessi breyting verði
árangursrík og skilvirk. Við teljum
það vera mikilvægt,“ segir Adriana
og heldur áfram:
„Einar Aron kemur til dæmis
með sín sjónarmið sem snúa að
tæknimálum og mannauðsstjóri
kemur með sjónarmið sem snúa
að lögum, reglugerðum og þjálfun
og það þarf að heyrast í breytinga-
stjórnun.“
Einar Aron tekur undir þetta og
segir að við framkvæmdastjóra-
borðið hafi verið teknar ákvarð-
anir sem tengjast rekstri og að þær
tengist nánast alltaf líka starfs-
fólki, hag þeirra eða vinnuframlagi
á einhvern hátt.
„Það er allavega mat okkar
að mannauðsstjóri eigi að sitja í
framkvæmdastjórn.“
Adriana talar um áherslu á lága
starfsmannaveltu og mikilvægi
þess að starfsfólki finnist það til-
heyra vinnustaðnum og sé stolt af
honum. Þá skiptir máli hvað stjórn-
endur gera til að viðkomandi telji
sig vera hluta af heildinni.
„Við búum að því að halda vel
í sérhæft fólk þar sem starfsemi
okkar er þess eðlis að öðlast mikla
færni og reynslu. Við verðum því
líka að halda vel á spöðunum við
að þróa fólk áfram í starfi, sér í lagi
þegar við horfum til arftakaáætlun-
ar og hafa skýra áætlun og þjálfun
svo yfirfærsla þekkingar takist með
farsælum hætti,“ segir hún.
Stóriðjuskólinn hefur lengi verið
starfræktur innan fyrirtækisins
og er það leiðtogi fræðslumála
sem sinnir honum líkt og öðrum
fræðslumálum.
„Ófaglært starfsfólk fær þar tæki-
færi til að sitja skólann í þrjár annir
og læra um stóriðju á Íslandi, um
þessa verksmiðju og þessa verkferla
sem við erum með,“ segir Einar
Aron. „Að auki er ófaglært starfsfólk
að taka grunnfög úr framhalds-
skóla eins og ensku og stærðfræði
og getur fengið einingar metnar inn
í framhaldsskóla í kjölfarið. Þessi
menntun Stóriðjuskólans leiðir af
sér launahækkun. Bæði starfsfólk
og fyrirtækið hefur mikinn hag af
þessu.
Stuðningur frá mannauðsdeild-
um til að virkja fólkið og stjórnend-
ur og leggja línurnar í starfseminni
hvað varðar menningu og hvernig
við vinnum ýtir undir það að góð
menning verður sjálfsprottin í
starfseminni. Góð menning leiðir
af sér aukna ánægju og helgun í
starfi. Okkur er umhugað um vel-
ferð starfsfólks og áhersla er lögð á
jafnrétti.“ n
Sjá meira á riotinto.is
Reksturinn byggist á framúrskarandi starfsfólki
Einar Aron Einarsson, framkvæmdastjóri rafgreiningar, og Adriana Karólína Pétursdóttir, leiðtogi starfsmannaþjónustu ÍSAL, segja framúrskarandi starfsfólk starfa hjá Rio Tinto. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kynningarblað 25LAUGARDAGUR 1. október 2022 MannauðuR