Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 Á Hvammi í Hvítársíðu er Land Rover jeppi sem hefur öðlast frægð á síðustu árum eftir að hafa leikið hlutverk í Hross í oss. Árið 1976 keypti Guðlaugur Torfason, þáverandi bóndi í Hvammi, bílinn nýjan og hefur hann verið í notkun þar æ síðan. Á þessum árum fór P. Stefánsson hf. með umboðið fyrir Land Rover og aðra bíla frá Leyland í Bretlandi. Bíllinn í Hvammi var keyptur þaðan og er að mestu leyti upprunalegur. Núverandi eigandi bílsins er Torfi Guðlaugsson, sonur áðurnefnds Guðlaugs og núverandi bóndi í Hvammi. Hann man vel eftir því þegar bíllinn var keyptur á sínum tíma, en þetta var fjórði og síðasti Land Roverinn sem pabbi hans keypti. Lenti í veltu Guðlaugur og Steinunn, kona hans, voru með bílinn á skrá fram á miðjan tíunda áratuginn þó aðrir bílar hafi verið í meiri notkun seinni árin. Fyrstu árin var hann helsta farartækið í daglegan akstur til og frá Varmalandi þar sem Guðlaugur var kennari. Einn vetrardag þegar bíllinn var tiltölulega nýr lenti hann í hálku og velti. Guðlaugur slasaðist ekki, en jeppinn var talsvert tjónaður eftir á. Land Roverinn var sendur í viðgerð á verkstæði á Bæ í Bæjarsveit þar sem hann náði fyrri styrk og útliti. Hann var þó ekki einungis notaður sem farartæki þar sem hann var líka hugsaður sem landbúnaðartæki. Sumir Land Roverar komu til landsins útbúnir aflúrtaki sem var hægt að tengja við ýmis tæki, en það átti ekki við um þennan. Öflugur dráttarklár Lengi vel voru hjólamúgavélar tengdar aftur í hann – tvær saman í halarófu; stundum þrjár – og notaðar til að raka saman heyið. Hann var notaður til að dreifa áburði með gamaldags áburðardreifara sem var ekki drifskaftsknúinn. Einnig var til skítadreifari sem hægt var að draga með Land Rovernum og hentaði jeppinn vel í að slóðadraga. Þar sem jeppinn var lengi eina fjórhjóladrifna landbúnaðartækið á bænum var hann nýttur í að draga heysátur að hlöðunni. „Mamma var alltaf í því að draga sáturnar á meðan við krakkarnir vorum í því að setja böndin utan um. Land Roverinn dró þær eftir jörðinni upp fyrir hlöðu þar sem þær fóru í heyblásarann. Engin önnur vél á bænum réði jafn vel við þetta,“ segir Torfi. Þægilegasta landbúnaðar- tækið til 1999 Samkvæmt Torfa var Land Roverinn þægilegasta landbúnaðartækið á bænum þangað til að keyptur var nýr Valmet traktor árið 1999. „Svo gat maður haft með sér farþega og kjaftað í leiðinni,“ segir Torfi, en Land Roverinn var í notkun við heyskap fram á síðustu ár. Á seinni árum hefur bíllinn verið notaður sem fjórhjól, eins og Torfi orðar það. „Svo fengum við okkur sexhjól í fyrra og þá má segja að hann hafi sest í helgan stein. Hann er þó reglulega ræstur og keyrður.“ Hvað varðar notkun á þjóðvegum segir Torfi að þessir Land Roverar séu barn síns tíma. „Þeir dönsuðu á veginum og voru frekar hastir. Enda voru þeir bara með blaðfjaðrir, enga gorma.“ Benedikt Erlingsson óskaði eftir láni Við undirbúning að myndinni Hross í oss kom Benedikt Erlingsson, leik- stjóri, að máli við Torfa og óskaði eftir bílnum að láni. Myndin var tekin upp að miklu leyti á bæjunum í kring og voru nokkrar senur skotnar á hlaðinu á Hvammi. Það hentaði því ágætlega að fá afnot af þessum jeppa þó Benedikt hafi upphaflega viljað bíl í öðrum lit. Lék mikilvægt hlutverk „Við notuðum þennan bíl í Hraunsási í Hálsasveit þegar Halldóra Geirharðsdóttir og Steinn Ármann Magnússon fylgjast með sveitinni,“ segir Sindri Páll Kjartansson, sem var fenginn í framleiðslu myndarinnar Hross í oss. Þar á hann við senu í upphafi myndarinnar þar sem þau sitja á húddi bílsins með kíki og njósna um nágranna sína. Síðar í myndinni er atriði sem var tekið upp við Kolkuós í Skagafirði. Fyrir þá senu var bíllinn fluttur norður á vagni. Þar er Steinn Ármann látinn keyra bílinn á fullri ferð þar sem hann ætlar að verða sér úti um brennivín í skipi sem siglir frá landi. Smurolía bjó til reykinn Látið var líta út sem bíllinn hefði brætt úr sér á leiðinni sem varð til þess að karakter Steins Ármanns brá á það ráð að sundríða út í skipið. Aðspurður segir Sindri Páll aðferðina við að láta líta út fyrir að sjóði á bíl vera afar einfalda. „Það er bara að hella smá smurolíu á vélina og þá kemur reykur.“ Keyrði ekki mikið við tökur Steinn Ármann Magnússon leikari hafði kynnst Land Roverum sem þessum áður en hann lék í myndinni Hross í oss. „Svo þurfti ég að þrælast á þessum í myndinni,“ segir hann en viðurkennir að hafa ekki fengið að keyra bílinn mikið. „Það voru tekin nokkur skot til þess að ég sæist keyra bílinn, annars voru einhverjir „propsarar“ látnir um að keyra hann.“ Oft þegar teknar eru upp bílasenur fyrir kvikmyndir eru bílarnir dregnir þannig að leikararnir þykjast keyra. Það er gert til að dragi ekki sundur eða saman á milli bíls og myndavélar og svo leikararnir nái að einbeita sér að leiknum. Steinn Ármann segir að sú aðferð hafi verið nýtt í þessari mynd. Aðspurður hvort kynnin af Land Rovernum við töku myndarinnar hafi vakið hjá honum nostalgíu segir Steinn Ármann svo ekki vera. „Ég er ekki mikill bílakarl, en það var mjög gaman að taka þátt í þessari mynd.“ Eigum hina vinsælu vagna frá þessum þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR frá Ifor Williams Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is LÍF&STARF Hvítársíða: Land Rover með leikaraferil Steinunn Anna Guðmundsdóttir, fyrrum húsfreyja í Hvammi, situr undir stýri við heyskap með tvær Bamford múgavélar í eftirdragi. Mynd tekin upp úr árinu 2000. Mynd / Aðsend Land Rover árgerð 1976 sem var notaður sem landbúnaðartæki og farartæki. Hann settist ekki í helgan stein fyrr en sexhjól var keypt á bæinn árið 2021. Mynd / ÁL Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Með því að hella smurolíu á vélina var hægt að láta líta út fyrir að bíllinn hefði brætt úr sér. Mynd / Skjáskot Benedikt Erlingsson og Bergsteinn Björgúlfsson. P. Stefánsson hf. fór með umboðið fyrir Land Rover á þessum árum. Auglýsing sem birtist í Tímanum 27.3.1975. Mynd / Timarit.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.