Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Fjölbreyttar lausnir
fyrir hús & nýbyggingar
Strúktúr er með
lausnina fyrir húsið
Allt sem við hugsum, allt sem við gerum,
snýst um þig okkar viðskiptavin
Einingahús CLT
krosslímt tré
Z Strúktúrhús
Gluggar & hurðir
Utanhússklæðningar
Límtré
Stálgrindarhús
Yleiningar
Dúkar & þéttiborðar
Við erum alltaf
klár í spjallið
Hafðu samband við okkur
Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.
Allar upplýsingar í síma 821 0394
eða á arni@icelandiceider.com
KAUPUM ÆÐARDÚN
www.icelandiceider.com
BORGUM ALLTAF HÆSTA VERÐIÐ FYRIR ÆÐARDÚN
Fyrsti lífræni dagurinn var
haldinn sunnudaginn 18. sept-
ember á Neðra-Hálsi í Kjós.
Dagurinn var skipulagður af
neytendum og sjálfboðaliðum í
samráði við VOR (Verndun og
ræktun), sem er félag lífrænna
bænda og framleiðenda, og Lífrænt
Ísland, lifraentisland.is. Haldin var
íslensk matarveisla, eingöngu úr
lífrænum íslenskum hráefnum, og
var vel sótt af gestum.
Markmiðið með deginum var
að vekja athygli á lífrænni ræktun
á Íslandi og þeim vörum sem verið er
að rækta lífrænt á Íslandi. Ísland er
langt á eftir mörgum Evrópuþjóðum
þegar kemur að lífrænni ræktun
en aðeins um 1,0% ræktaðs lands
á Íslandi er ræktað með lífrænum
aðferðum. Lífrænu bændurnir eru
aðeins um 30 af 3.000. Sú tala hefur
nánast staðið í stað í áratugi og ekki
fylgt þeirri aukningu sem er að eiga
sér stað í nágrannalöndum.
„Anna María Björnsdóttir fékk
þessa hugmynd en við höfum unnið
saman að gerð heimildarmyndar
um lífræna ræktun á Íslandi sem
kemur út á næsta ári. Síðan höldum
við daginn í samstarfi við VOR til
að vekja athygli á þessu frábæra
starfi hjá íslenskum bændum í
lífrænni ræktun. Markmiðið er
síðan að dagurinn verði árlegur,
þriðji sunnudagurinn í september,
og að draga alla að borðinu sem
tengjast þessum málaflokki. Þetta
var dásamlegur dagur í alla staði
og eitt skref af mörgum til að vekja
fólk til vitundar um hvað lífræn
ræktun er. Síðan var ánægjulegt
að matvælaráðherra, Svandís
Svavarsdóttir, mætti á viðburðinn og
enn meira tilefni til að koma saman
og fagna nýlegu útspili hennar, að
láta gera aðgerðaráætlun til eflingar
lífrænnar framleiðslu hérlendis,“
segir Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
rithöfundur og fyrirlesari. /ehg
Lífræni dagurinn:
Íslensk matarveisla úr
lífrænum hráefnum
Fyrsti lífræni dagurinn var haldinn sunnudaginn 18. september á Neðra-Hálsi
í Kjós en þær Anna María Björnsdóttir og Jóhanna Vilhjálmsdóttir stóðu fyrir
deginum í samstarfi við VOR, félag lífrænna bænda og framleiðenda. Mynd / ehg
LÍF&STARF
Anna María Björnsdóttir og Jóhanna
Vilhjálmsdóttir.
Kræsingar á boðstólum.