Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 LÍF&STARF Vatnsdalur: Ungir bændur taka við keflinu á Brúsastöðum Skafti Vignisson og Lisa Inga Hälterlein tóku um síðustu áramót við búinu á Brúsastöðum í Vatnsdal. Tóku þau við af þeim Sigurði Ólafssyni og Gróu Margréti Lárusdóttur sem höfðu stundað þar búskap frá árinu 1994. Á Brúsastöðum er rekið bú með nálægt 60 mjólkurkúm sem hefur oft ratað í fréttirnar vegna árangurs. Skafti er 33 ára, uppalinn á Höfnum á Skaga, og Lisa er 34 ára, uppalin í Slésvík-Holtsetalandi í Norður-Þýskalandi. Þau hafa búið á Blönduósi undanfarin ár þar sem Lisa starfar sem sjúkraþjálfari og Skafti var í vélavinnu. Hugur þeirra leitaði alla tíð til landbúnaðarstarfa. Skafti útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri árið 2014 og Lisa hefur stundað hestamennsku frá æskuárum. Íslenski hesturinn heillaði Lisa umgekkst íslenska hesta úti í Þýskalandi sem varð til þess að vekja hjá henni áhuga á Íslandi. Fyrstu kynni hennar af landinu voru þegar hún kom í hestaferð hingað 14 ára gömul og fann þá að til Íslands þyrfti hún að koma aftur. Árið 2008 fékk hún vinnu á hestabúgarði í Vestur-Húnavatnssýslu og dvaldi á árinu í eitt ár. Árið 2013 kemur hún aftur með það fyrir augum að setjast hér að og starfaði á hrossaræktarbúi í Austur-Húnavatnssýslu. Skafti og Lisa kynnast árið 2015 og grínast hjónaleysin með að af þeim tveimur sé Skafti mun áhugasamari um búsetu í Þýskalandi. Sveitin kallar Fljótlega fluttu þau út á Hafnir og tóku þátt í búskapnum með fjölskyldu Skafta. Bæði voru þau búin að einsetja sér að fara í búskap, en foreldrar Skafta voru ekki tilbúin til að bregða búi og þurftu þau því að leita annað. Heimaslóðir Lisu kallast sveit á þýskan mælikvarða og dreymdi hana alltaf um að eignast sinn eigin bæ þar sem hún gæti verið í tengslum við náttúruna og gæti ræktað sína hesta. Sjálfur segir Skafti að hann kunni best við sig við sveitastörf og hann vilji helst ekki starfa við neitt annað. „Við höfum alltaf verið að tala um að fara út í sveit,“ segir Lisa. Samt sem áður höfðu þau ekki gert kauptilboð í neina jörð þar sem lítið sé um að bújarðir séu auglýstar til sölu á svæðinu. Létu vaða Árið 2020 ákvað Skafti að hringja í Sigurð, þáverandi bónda á Brúsastöðum, og athuga að fyrra bragði hvort hjónin hefðu íhugað að selja. „Þetta kemur kannski svolítið flatt upp á fólk þegar maður spyr bara si svona hvort þetta væri til sölu,“ segir Skafti. Fljótlega eftir þetta fyrsta símtal ræddu þeir lengi saman án þess að það leiddi til nokkurs fyrst um sinn. Sumarið 2021 fór hins vegar að færast alvara yfir viðræðurnar. Skafti og Lisa eru ekkert tengd Sigurði og Gróu. Þegar ábúendaskipti eru á bújörðum er algengast að ættingjar taki við eða einhver vandalaus kaupi eftir að jörðin hefur verið kynnt í gegnum fasteignasölu. Hins vegar er algjör undantekning að ótengdir aðilar kaupi bújörð í rekstri án þess að nokkuð hafi verið auglýst, eins og í tilfelli Brúsastaða. „Ef maður er búinn að skoða hlutina vel og allt virðist ganga upp þá á maður bara að láta vaða,“ segir Lisa aðspurð um ráð til fólks sem vill fara sömu leið. Fjármögnunin púsluspil Þau þurftu sjálf að sjá hvort fjár- festingin gengi upp áður en þau púsluðu saman fjármögnun inni. Leituðu þau því til Ráðgjafar- miðstöðvar landbúnaðarins (RML) til að reikna rekstraráætlun og skoða búskapinn frá nokkrum hliðum. Þeir útreikningar sýndu að dæmið gengi upp og voru þau komin með gögn í hendurnar til að sýna lánastofnunum. „Hjá okkur byrjaði þetta bara sem hugmynd. Þegar hugmyndin fór að verða að einhverri alvöru fórum við að leita að fjármagni úr öllum áttum – hjá fjölskyldu, í eignum, bönkum, Byggðastofnun og nýliðunarstyrk. Ég var ekki bjartsýn á að þetta gengi upp, en síðan náðum við með skipulagningu að finna út úr þessu,“ segir Lisa. „Við áttum mikið í íbúðarhúsinu okkar á Blönduósi sem auðveldaði helling. Svo klórar maður saman einhverjum krónum og þetta sleppur fyrir horn,“ segir Skafti um það hvernig þeim gekk að fjármagna útborgunina. Þau leituðu til allra banka og Byggðastofnunar til þess að fjármagna jarðarkaupin. Ferlið segja þau hafa verið flókið og krafist margra símtala. Þrátt fyrir að Byggðastofnun veiti sérstök lán til ungra bænda þá enduðu þau á að fjármagna í gegnum Landsbankann. Endanleg ákvörðun um að þau skyldu taka við búinu um áramót kom þegar liðið var á nóvember. Því þurftu þau að hafa hraðar hendur og sex vikna biðtími eftir svari frá Byggðastofnun gekk ekki í þeirra tilfelli. „Við vorum búin að lenda í þessu hjá bankanum áður en við fengum svar frá Byggðastofnun,“ segir Lisa. Þau segjast hafa verið heppin varðandi tímasetningu á kaupunum og telja ólíklegt að fjármögnun hefði fengist eins og ástandið er í dag. Öll aðföng, sem og vextir á lánum, hafa hækkað svo mikið að dæmið myndi ekki ganga upp. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Lisa Inga Hälterlein og Skafti Vignisson tóku nýlega við búi á Brúsastöðum. Þar er rekið kúabú með tæplega 60 mjólkandi kúm og 97 hekturum af ræktarlandi. Þau eru ekkert tengd fyrri ábúendum og spurðu að fyrra bragði hvort jörðin væri til sölu. Mynd / ÁL Brúsastaðir er kúabú með nútímalega aðstöðu, góðan kúastofn og metnaðarfulla jarðrækt. Fyrri ábúendur slógu met í afurðasemi mjólkurkúa á sínum tíma. Mynd / Aðsend Yngstu ábúendurnir hafa áhuga á bústörfum. Mynd / Aðsend Með ábúendaskiptum á Brúsastöðum hefur samfélagið í Vatnsdalnum fengið til liðs við sig ungt fjölskyldufólk. Börn Skafta og Lisu eru þrjú, Ingimar Emil, 5 ára, Anton, Þór 4 ára og Eyrún Alma, 1 árs. Mynd / Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.